|
| Gullkaka: |
|
90 gr.
90 gr. 4 1 dl. 125 gr. 1 teskeið 50 gr. 25 gr. |
smjörlíki
sykur eggjarauður rjómi hveiti lyftiduft sykraðir ávextir saxaðar möndlur |
|
Smjörlíkið linað og hrært ásamt sykrinum. Þá er eggjarauðunum hrært saman við, einni og einni.
Lyftiduftinu og hveitinu sáldað í deigið, vætt í með rjómanum. Ávöxtunum, vel brytjuðum, er blandað
saman við, ásamt möndlunum, afhýddum og söxuðum. Látið í vel smurt hringmót, og bakað við meðalhita
í eina klukkustund.
(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur) |