|
| Harðfiskur með sölvum: |
|
Áður fyrr þótti mörgum lítið varið í harðfisk eða herta þorskhausa, nema söl væru með, og gott væri að svo væri
enn, því að söl eru ábyggilega mjög holl og innihalda verðmæt efni fyrir líkama vorn.
Venjulega rífur maður harðfiskinn niður og ber hann þannig fram á kalt borð, en einnig má bera harðfiskinn fram sem skrautlegan rétt, sem þó er engu dýrara. Harðfiskurinn er skorinn í jafnlangar ræmur. Á hverja ræmu er sett lítil smjörkúla. Þessum ræmum er raðað í hring á fat, svo myndist eins konar rósetta. Í miðjuna á fatinu er sett hrúga af þurrkuðum sölvum. Þannig er harðfiskurinn borinn fram, sé hann hafður sem milliréttur. (Úr bókinni "160 Fiskréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur) |