Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Heil bláber (mauk):  
  1/2 kg.
1 1/4 l.
1/2 kg.
bláber
vatn
sykur
 

  Berin eru hreinsuð mjög vel. Þau mega ekki vera marin. Sykurinn látinn í vatnið, og þegar hann er runninn eru berin sett út í. Soðið í 15 mínútur.
Berin síuð frá á gatasigti og berin látin í vel hreina og þurra krukku, saftin síðan soðin í 10-20 mín., og hellt yfir berin. Smjörpappír settur yfir eins og annað mauk. Borðað með steik og öðrum kjötréttum, einnig er það gott með pönnukökum og brauði yfirleitt.

(Úr bókinni "150 Jurtaréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda