Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Hjónabandssæla:  
  125 gr.
200 gr.
200 gr.
125 gr.
1 tesk.
1 dl.

Döðlumauk:
450 gr.
1 bolli

haframjöl
hveiti
púðursykur
smjörlíki
natron
kalt vatn


döðlur
púðursykur
vatn eftir þörfum

 

  Hveiti, natroni, haframjöli og sykri er blandað saman, þar í mulið smjörlíkið. Stórt tertumót er smurt, helmingurinn settur í mótið, þar ofan á döðlumaukið og það sem eftir er af deigblöndunni. 1 dl. af köldu vatni dreift yfir í mótið, bakað við meiri undirhita. Baka skal köku þessa við frekar mikinn hita. Gott er að hafa þeyttan rjóma á kökunni.

Döðlumauk:
Döðlurnar eru saxaðar og steinarnir teknir úr, séu þeir. Soðnar með sykri og vatni þar til það er samfellt, þétt mauk.

(Úr bókinni "Matur og drykkur" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda