Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur

Til baka

 

  Að hreinsa fisk:  

  1. Fiskurinn er lagður á fjöl með bréfi ofan á og slægður. Gætið að því, að sprengja ekki gallið.

2. Fiskurinn er þveginn úr köldu vatni.

3. Fiskurinn er lagður á bréf, og til að ná af honum slíminu er hann skafinn með hreistrinu, síðan á móti hreistrinu til að ná því af. Fiskurinn er hreinn, þegar hann er snarpur. Bæði fljótlegast og bezt er að nota fiskhreinsara til að hreinsa fiskinn.

4. Hausinn skorinn af og allar svartar himnur og sundmaginn tekið burtu.

5. Fiskurinn er þveginn og burstaður að innan úr köldu vatni, svo að blóð verði ekki eftir. Eigi að borða hausinn, er hann einnig burstaður. Hann hefir auðvitað verið skafinn um leið og fiskurinn.

6. Uggarnir eru klipptir eða skornir af.

7. Salti er stráð utan og innan í fiskinn, bíði svo í 15 mínútur.

8. Fiskurinn er þveginn og skafinn úr köldu vatni, þar til ekki kemur neitt svart slím.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda