|
| Hvítkálsbögglar: |
|
125 gr.
125 gr. 1 tesk. 1 tesk. 3 matsk. 1 1 1/2-2 dl. 1/8 tesk. Sósan: 30 gr. 30 gr. |
nautakjöt
svínakjöt saxaður laukur salt hveiti egg mjólk pipar Hvítkál smjörlíki hveiti Bögglasoðið Söxuð steinselja |
|
Kjötið er hreinsað og hakkað sex sinnum í söxunarvél. Hrært með saltinu, þar til það verður seigt. Hveiti
og pipar hrært saman við, eggið hrært þar í smátt og smátt. Þar á eftir mjólkin, sem er heit, 1 matskeið
í einu. Bíði um stund.
Hvítkálið er tekið blað fyrir blað frá leggnum, svo heillegt sem hægt er. Heitu vatni hellt á það, og suða látin koma upp. Vatninu hellt af því. Kjötdeigið er hrært aftur og mjólk sett í, ef þörf er. Flatbotnaður pottur er smurður með smjöri. Efst við legginn á hverju blaði er sett ein matsk. af kjötdeiginu, og blaðinu vafið vel utan um, og bögglunum raðað hverjum við hliðina á öðrum niður í pottinn. Soðnu vatni hellt á og saltað, soðið við hægan eld í 2-3 stundarfjórðunga. Sósa nr.3 er búin til úr bögglasoðinu. Bögglunum raðað á fat og lítilli sósu hellt yfir, en það, sem eftir er, er borið fram í sósuskál. (Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)
Aths.ömmu gömlu: |