Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Kerfilsúpa:  
  30 gr.
25 gr.
1 1/4 l.
1 hnefi
2-3
smjörlíki
hveiti
kjötsoð
kerfill
egg
Salt, pipar
 

  Smjörlíkið brætt, hveitið hrært saman við og þynnt út með heitu kjötsoðinu. Kerfillinn þveginn og saxaður og soðinn í 4 mín. í súpunni. Krydd látið í eftir geðþótta. Eggin harðsoðin, skorin í 4 parta, og tveir partar látnir í hvern disk.
Kerfil má nota í allskonar grjóna-kjötsúpur.

(Úr bókinni "150 Jurtaréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda