Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Kjöt í karrí með hrísgrjónum:  
  700 gr.
8 dl.
2 tesk.
1-2
1/2 tesk.
30 gr.
30 gr.
120 gr.
1 1/2 ltr.
1 tesk.
kinda- eða kálfakjöt
vatn
salt
gulrætur
karrý
smjörlíki
hveiti
hrísgrjón
vatn
salt
 

  Kjötið er þvegið og skorið í bita. Látið í sjóðandi vatn með salti. Froðan er veidd ofan af. Soðið þar til kjötið er meyrt. Gulrótin er soðin með í síðustu 20 mínúturnar. Allt tekið upp úr og soðið síað. Karrýið er hrært saman við hveitið, og jafningur nr.3 er búinn til úr kjötsoðinu. Salt sett í eftir smekk.
Soðin hrísgrjón. Hrísgrjónin eru þvegin úr köldu vatni. Látin í sjóðandi vatn með salti og soðin í opnum potti í 20 mín. Grjónunum hellt á gatasigti, og þar yfir er köldu vatni hellt. Haldið heitu yfir gufu. Kjötinu er raðað á mitt fatið og sósunni hellt yfir. Hrísgrjónin sett í hring utan um með matskeið.
Maður hagnýtir sér oft leifar af allskonar kjöti í karrýsósu með hrísgrjónum. Einnig er gott af hafa karrý með steiktum eða soðnum fiskleifum og þá einnig jarðepli (kartöflur) eða hrísgrjón.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda