|
| Kjötsúpa: |
|
1/2-3/4 kg.
2 1/2 l. 1 matsk. 75 gr. 1/2 kg. 250 gr. 250 gr. |
kjöt
vatn salt hrísgrjón gulrófur jarðepli (kartöflur) hvítkál |
|
Það má nota hvort heldur er saltað kjöt eða nýtt. Sé notað saltkjöt, er súpan ekki söltuð, en saltkjötið
þarf að afvanta. Beztur er frampartur af kindakjöti. Kjötið er sagað í fremur smáa bita, sem þvegnir eru
úr köldu vatni. Kjötið er látið út í sjóðandi vatn. Þegar sýður aftur, er froðan veidd vel ofan af með
gataspaða, sem hafður er í köldu vatni. Soðið í 15 mín. Grjónin eru þvegin úr köldu vatni og látin út í,
og soðið aftur í 15 mín. Rófurnar og jarðeplin eru flysjuð og kálið brytjað. Látið út í og
soðið við frekar hægan eld, með hlemm yfir pottinum í 2-3 stundarfjórðunga. Salt er látið eftir smekk í
súpuna. Kjötinu er raðað öðru megin á steikarfat og jarðeplum og rófum hinum megin. Súpan er borðuð með
kjötinu.
(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur) |