Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Egta klumpkaka:  
  200 gr.
200 gr.
5
200 gr.
1/2 teskeið
100 gr.
100 gr.
50 gr.
smjörlíki
sykur
egg
hveiti
lyftiduft
kúrenur
rúsínur
súkkat
 

  Smjörlíkið linað og hrært með sykrinum. Einni og einni eggjarauðu hrært saman við. Hrært vel. Kúrenurnar og rúsínurnar eru hreinsaðar, súkkatið skorið smátt. Öllu hrært saman. Hveitinu og lyftiduftinu sáldað saman við. Deigið hrært. Síðast eru hvíturnar þeyttar vel og blandaðar saman við með hníf. Látið í vel smurt mót. Bakað í þrjá stundarfjórðunga. Eigi kakan ekki að geymast, bakist hún í hringmóti, og berist þá í heilu lagi á borð. Annars í aflöngu móti.

(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda