|
| Kramarhús: |
|
1
1-2 matsk. 2 dl. |
egg
sykur, jafnþungur egginu hveiti, sama þyngd vatn þeyttur rjómi berjahlaup |
|
Eggið og sykurinn hrært, unz það er þétt froða. Þá er hveitinu hrært saman við og vatninu. Látið með teskeið
á vel smurða plötu. Flatt út kringlótt með breiðum hníf. Bakað ljósbrúnt. Um leið og kökurnar eru teknar af
plötunni eru þær vafðar saman eins og kramarhús og því snúið inn, sem sneri að plötunni. Kramarhúsunum stungið
hverju innan í annað um leið með opnu hliðina niður, svo að hliðin pressist saman. Kólni kökurnar of fljótt,
harðna þær, og þá þarf að velgja þær á ný, svo hægt sé að vefja þær. Hægt er að geyma kramarhúsin lengi. Þegar
kramarhúsin eru etin, er berjamauk sett í botninn, því næst þeyttum rjóma sprautað ofan á og berjamauk efst.
Raðað í hring á fat og skreytt með þeyttum rjóma.
(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur) |