|
| Kútmagar: |
|
Bezt er að hreinsa kútmagana úr sandi eða grófu salti. Kútmagarnir eru nuddaðir uppúr sandinum og allt sem
lauslegt er á þeim, er tekið burtu. Þvegnir vel utan og innan úr köldu vatni, hreinsaðri lifur er troðið í
kútmagana, hnýtt fyrir. Soðið í hálfa kl.st. í saltvatni. Saman við lifrina má blanda rúgmjöli, er það þá
hnoðað vel saman, troðið í kútmagana, þeir mega þá ekki vera eins fullir. Hnýtt fyrir þá og þeir soðnir í
saltvatni í 1-1 1/2 kl.st. Borðað með soðnum kartöflum.
Aths. ömmu: (Úr bókinni "160 Fiskréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur) |