Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Laufabrauð:  
  1 kg.
1 1/2 teskeið
1 teskeið
5-6 dl.
 
hveiti
lyftiduft
salt
mjólk
Fita til að sjóða í
 

  Mjólkin er soðin. Hveitið er sett á borð, þar í er blandað salti og lyftidufti, og nú er mjólkinni, sem er sjóðandi heit hrært í. Hrært þar til það er alveg jafnt, en á að vera vel þykkt. Þá er deigið hnoðað saman, og nú er hnoðað, þar til það er gljáandi, hart og sprungulaust, en það má ekki festast við borðið, það á að vera seigt og hart. Formað í lengjur, sem skornar eru í jafn stóra bita. Bitarnir hnoðaðir milli handanna í jafnar kökur, sem eru breiddar svo þunnt út sem mögulegt er. Þá er kakan tekin undan diski og skorin með alls konar laufaskurði. Hægt er að skera stafi o.m.fl. Kökurnar eru soðnar í feiti við mikinn hita og eiga að vera ljósbrúnar. Laufabrauð er mest búið til fyrir jólin, og er það gamall og góður siður.

(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda