|
| Meðferð á slátri: |
|
Blóðið er strax sett í emalérað ílát og geymt á köldum stað, og ekki hafður hlemmur yfir. Vambirnar eru
lagðar í kalt vatn. Hjarta, lifur og lungu eru aðskilin. Barkinn er tekinn af, ristur og skafinn. Gallið
er tekið frá lifrinni (gætið þess, að sprengja það ekki). Lifrin og nýrun eru notuð í lifrarpylsu eða steik.
Hjartað er notað í lundabagga eða steikt. Lungum eru stundum soðin og súrsuð, séu þau af ungri skepnu,
annars er þeim fleygt. Barkinn er soðinn og súrsaður. Allur mör er tekinn frá innyflunum og notaður í
slátrið. Sé óþarflega mikill mör, er hann bræddur í tólg.
Að hreinsa vambir:
Slátursúpa - uppskrift Lifrarpylsa - uppskrift (Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur) |