Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Napóleonskökur:  
    Smjördeig
hindberjamauk
eggjabráð nr.II
flórsykur og vatn
þeyttur rjómi
 

  Smjördeigið flatt út fremur þunnt, og skorið í lengjur ca. sex cm. breiðar. Látnar á plötu. Pikkaðar. Bakaðar. Kældar. Ein lengjan er smurð eggjabráð, þá hindberjamauki. Þá er önnur lengja lögð yfir. Flórsykurinn hrærður út í vatni og smurður ofan á. Látið bíða í tvær til þrjár klukkustundir. Skorið í nærri ferhyrnt stykki, sem þeyttum rjóma er sprautað utan og ofan á til skrauts.

Aths. ömmu:
Smjördeigið má vitanlega kaupa úti í búð í stað þess að búa það til.

(Úr bókinni "Bökun i heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda