Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Njólasúpa:  
  80 gr.
80 gr.
2 1/2 l.

1/2 kg.
smjörlíki
hveiti
kjötsoð
Salt og pipar
njóli
 

  Njólinn er beztur sem fyrst á vorin, áður en hann fer að blómstra. Allt sem ormétið er eða skemmt í njólablöðunum, er tekið burt. Þveginn úr köldu vatni. Þar á eftir úr heitu vatni og saxaður smátt. Smjörlíkið brætt, hveiti hrært út í og þynnt út með kjötsoðinu. Þegar súpan sýður er njólinn settur út í og allt soðið í 15 mínútur. Gott er að borða þessa súpu með harðsoðnum eggjum. Einnig er gott, hafi maður ekki egg, að hafa jarðepli (kartöflur) og rófur út í súpuna.

Um heimilisnjóla segir í Matjurtabók Eggerts Ólafssonar:
"Fardagakál kallast heimilisnjólablöðkur. Þetta kál er tilreitt sem kálgrautur, túnsúrur eru góðar þar saman við. Jurtin er annars blóðhreinsandi, mótstendur skyrbjúgi og gulu. Kjötfita á hér vel við."
Blöð af heimilisnjóla má nota á líkan hátt og spínat.

(Úr bókinni "150 Jurtaréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda