Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Parísar bollur:  
  250 gr.
3 teskeiðar
50 gr.
40 gr.
1
1/2 dl.
4
1 matskeið
 
hveiti
lyftiduft
smjörlíki
sykur
egg
mjólk
möndlur
sykur
eggjahvíta
 

  Hveiti og lyftiduft sáldist í skál. Sykur og smjörlíki mulið saman við. Vætt í með egginu og mjólkinni. Hnoðað í lengjur, sem skornar eru í jafnstóra bita. Bitarnir eru gerðir hnöttóttir milli handanna. Smurðir með eggi. Dýft í sykur og smásaxaðar möndlur. Látnar á smurða plötu. Bakaðir brúnir við meðalhita. Geymast illa lengur en 2-3 daga. Gott er að láta smáskorin ný epli saman við.

Aths. ömmu:
Þetta er ekki stór uppskrift svo geymsluþolið verður varla vandamál - og svo hlýtur að vera allt í lagi að frysta þessar bollur. Ég myndi að minnsta kosti láta á það reyna.

(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda