Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Plokkfiskur:  
  30 gr.
30 gr.
3-4 dl.


1/2 kg.
1/2 kg.
smjörlíki eða flot
hveiti
mjólk eða fisksoð
Graslaukur
Salt og pipar
soðinn, hreinsaður fiskur
soðnar kartöflur og rófur
 

  Nota má hvaða fiskleifar sem er í plokkfisk, hvort heldur er saltaður eða nýr, sé það saltfiskur er réttara að saxa hann einu sinni. Munið einnig að betra er að taka roð og bein úr fiskinum á meðan hann er heitur. Smjörlíkið er brætt, hveiti hrært út í, þynnt út með mjólkinni og soðinu, saxaður laukur látinn í, salt og pipar eftir smekk og sinnep ef vill. Fiskinum og kartöflunum er blandað gætilega saman við, látið á fat og soðnum rófum eða gulrótum raðað utan með.

(Úr bókinni "160 Fiskréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda