Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Randakaka:  
  Eins og Sykurbrauðskaka (sjá hér að neðan) + ein matskeið kakó.
Í einn þriðja deigsins hrærist kakóið. Mótið smurt. Deigið, sem skift er í þrjá jafna hluta, er látið í mótið þannig, að sá hluti, sem kakóið er í, sé í miðju. - Bakað á sama hátt og sykurbrauðskaka. Eigi kakan ekki að geymast, er fallegra að baka hana í hringmóti. Borin heil á borð.

Sykurbrauðskaka:

 
  2
2
125 gr.
65 gr.
65 gr.
egg
matskeiðar vatn
flórsykur
hveiti
kartöflumjöl
 

  Eggin aðskilin. Rauðurnar hrærðar fyrst saman við vatn, því næst flórsykrinum. Hrært í tuttugu mínútur. Hveiti og kartöflumjöli sáldað í. - Hrært fljótt en gætilega saman. Eggjahvíturnar, sem eru vel þeyttar, blandist því næst saman við (með hníf). Látið í mjög vel smurðu móti inn í vel heitan ofn, er smá kólni. Bakist í tvo til þrjá stundarfjórðunga.

(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda