|
| Rjómabollur (vandbakkelse): |
|
75 gr.
1 1/4 dl. 75 gr. 3 1/4 ltr. |
smjörlíki
vatn hveiti egg salt sykur rjómi súkkulaði vatn |
|
Smjörlíkið og vatnið látið í pott og soðið. Þegar sýður, er hveitið hrært út í. Hrært fljótt og vel saman með
sleif, unz það losnar við sleifina og pottinn. Látið í skál. Salti og sykri stráð á. Kælt. Deigið hrært.
Eggin hrærð saman við, eitt og eitt í senn. Því næst hrært í 20 mínútur. Látið á smurða plötu með teskeið eða
sprautað úr poka. Bakað við meðalhita. Má eigi opna ofninn fyrstu 2-3 mínúturnar. Bakist 20 mín. Á að
stækka mikið.
Súkkulaði skafið niður mjög smátt og brætt á þann hátt, að það er látið ásamt ögn af vatni í skaftpott, sem
settur er ofan í heitt vatn, og hrært í því þangað til það er bráðið. Borið á bollurnar.
Efsti hluti bollunnar skorinn af og þeyttur rjómi látinn á milli. Þeyttum rjóma sprautað á súkkulaðið.
Gott er einnig að láta berjamauk eða eggjabráð í botn kökunnar. (Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur) |