Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur

Til baka

 

  Siginn fiskur:  
  Beztur er siginn þorskur, en nota má smáa ýsu. Venjulegast er það þyrsklingurinn, sem hengdur er upp. Fiskurinn er afhausaður, slægður, tveir fiskar eru bundnir saman með seglgarnsspyrðu. Spyrðurnar hengdar á slá í þurkhjalli, eða í skugga. Bezt er að hengja fiskinn þar sem vindur er en sólarlítið, þá morknar fiskurinn síður. Áður en fiskurinn en hengdur upp eru þunnildin tekin af honum, soðin og notuð í plokkfisk. Þegar sjóða skal fiskinn eru uggarnir skornir af, hann roðflettur og soðinn í saltvatni.
Borðaður með hamsatólg og kartöflum.

(Úr bókinni "160 Fiskréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda