Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur

Til baka

 

  Að sjóða fisk:  

  1. Fiskurinn er skorinn í sneiðar og látinn ofan í sjóðandi vatn með salti og ediki. Þykkustu sneiðarnar eru látnar fyrst ofan í, en stirtlan seinust.

2. Þegar sýður, er froðan veidd vel ofan af með gataspaða. Soðið þar til fiskurinn er laus frá beininu, í 10-20 mín. Suðan fer eftir því, hvaða fiskitegund það er.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda