|
| Stórar tvíbökur (skonrok): |
|
750 gr.
4 1/2 dl. 125 gr. 100 gr. 50 gr. |
hveiti
mjólk smjörlíki sykur pressuger |
|
Gerið er hrært með einni matskeið af sykri. 1 dl. af volgri mjólk látinn þar í. Hveiti hrært þar í þar til það
er þykkt. Bíði í 20 mín. Hveitið er látið á borð. Sykri og volgri mjólk hrært þar saman við, þá deigið með
gerinu hrært saman við. Smjörlíkið barið inn í deigið með kefli. Hnoðað þar til það er gljáandi. Bíði eina
klst. á volgum stað. Formaðar úr því kringlóttar bollur, sem settar eru á smurða plötu. Bíði aftur í einn
fjórðung stundar. Bakað í heitum ofni. Skorið í sundur með heitum, beittum hníf og þurrkað þar til það er hart.
(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur) |