Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Slöngukaka:  
  100 gr.
100 gr.
100 gr.
1/2 teskeið
2
 
smjörlíki
sykur
hveiti
lyftiduft
egg
berjamauk
 

  Smjörlíkið linað og hrært með sykrinum. Eggjarauðurnar hrærðar í, ein og ein. Hveitinu og lyftiduftinu sáldað í. Síðast er hvítunum, vel þeyttum, blandað saman við með hníf. Pergamentspappír er sniðinn eftir ofnplötunni og smurður svo vel, að hvergi sé neinn blettur eftir. Brotinn upp á öllum hliðum og vafinn upp á hornunum. Deigið er látið í pergamentsskúffuna og smurt jafnt yfir hana alla. Skúffan látin á plötuna og bakist ljósbrún við mikinn hita. Þegar kakan er bökuð, er henni hvolft á sykri stráðan pappír, og allt látið á heitu plötuna. Volgu berjamaukinu er smurt á kökuna, og hún vafin upp og innan í smjörpappírinn.
Fallegt er að skera hverja slönguköku í 2 parta og skera endann af. Flórsykur er hrærður út í vatni með rauðum lit, smurt vel á kökuna og líka á endana, skreytt með skrautsykri, sett á pentudúk og borin inn í heilu lagi.

Aths. ömmu:
Á þeim tíma sem þetta er skrifað voru rúllutertumót ekki farin að fást í búðum, svo bjargast varð við pappír.

(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda