Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Sódakaka:  
  60 gr.
60 gr.
2
250 gr.
3 teskeiðar

1 1/2 dl.
smjörlíki
sykur
egg
hveiti
lyftiduft
Kardemommur eða sítrónudropar
mjólk
 

  Smjörlíkið linað og sykurinn hrærður saman við, unz það er ljóst og létt. Því næst er hvorri eggjarauðu um sig hrært saman við. Kardimommum og lyftidufti sáldað á disk ásamt hveitinu. 1/3 hluti hveitiblöndunnar er látinn í deigið, sömuleiðis 1/3 hluti mjólkurinnar. Og þannig haldið áfram, unz öllu er blandað. Sleifin tekin upp úr, og eggjahvíturnar, vel þeyttar, hrærðar gætilega saman við með hníf. Deigið látið í vel smurt mót. Bakað við góðan hita í þrjá stundarfjórðunga. Sé kakan bökuð, er hreint hljóð, sé slegið létt í mótið. Þegar mótið er tekið út úr ofninum. er það látið á hliðina og kakan ekki tekin úr því, fyrr en hún er laus frá og nærri köld. Svo er um allar hrærðrar mótkökur.

(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur, 1930)

Aths.ömmu gömlu:
Til gamans má geta þess að þetta er fyrsta uppskriftin í fyrstu bók Helgu og eftir því sem ég kemst næst var þetta fyrsta bókin sem út kom á íslensku sem fjallaði einvörðungu um bökun.

 

Húsmóðir að elda