Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Soðin hrogn með grænmeti:  
  1 1/2 kg.

1/4 kg.
1
30 gr.
30 gr.
1/2-3/4 l.

hrogn
Vatn og salt
gulrætur eða rófur
blómkál eða 1 kg. hvítkál
smjörlíki
hveiti
grænmetis- og hrognasoð
Salt og pipar
Saxaður graslaukur
 

  Hrognin þvegin og soðin í saltvatni í 1/2 kl.st. Tekin upp og skorin í þykkar sneiðar, sem raðað er á fat. Grænmetið, sem hreinsað hefir verið og soðið í saltvatni, er skorið í jafna bita og raðað yfir hrognin. Þar er sósunni hellt yfir.
Sósa: Smjörlíkið brætt, hveiti hrært út í, þynnt út með grænmetis- og hrognasoðinu. Soðið í 5 mín. Graslaukur, sem saxaður er og salt og pipar er látið í sósuna eftir smekk. Í staðinn fyrir grænmeti má borða kartöflur með hrognunum.

(Úr bókinni "160 Fiskréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda