|
| Soðnar kjötbollur: |
|
250 gr.
1 60 gr. 1 tesk. 1/8 tesk. 1 1/2-1 dl. |
kálfskjöt
laukur hveiti salt pipar egg rjómi eða mjólk |
|
Kjötið er hreinsað og saxað 10 sinnum í söxunarvél. Laukurinn með í 2 seinustu skiptin. Kjötið er hrært
með hveitinu, saltinu og piparnum. Egginu og mjólkinni hrært smátt og smátt þar í. Bíði um stund. Gerist
þess þörf, er meiri mjólk hrærð í. Þegar vatnið sýður með saltinu, er suðan tekin úr því, og kjötdeigið mótað
með skeið, sem stungið er ofan í vatnið, svo að bollan losni af sjálfu sér. Soðnar í 10 mín. Bollurnar eru
borðaðar með allskonar sósum og soðnum jarðeplum (kartöflum). Þetta kjötdeig er ágætt í smábollur, sem notaðar
eru í súpur. Eru þá bollurnar mótaðar með teskeið og soðnar mikið styttri tíma.
(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)
Aths.ömmu gömlu: |