Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Sólberjamauk:  
  1/2 kg.
375 gr.
1 1/4 dl.
sólber
sykur
vatn
 

  Berin eru hreinsuð vel og þvegin. Látin í pott með sykrinum og vatninu og soðið þangað til ekki kemur meiri froða. Þá eru berin tekin upp með gataspaða og saftin soðin í 10 mínútur. Berin síðan sett aftur í pottinn og allt soðið í augnablik. Hellt í heitar og þurrar krukkur og bundið yfir strax.

(Úr bókinni "150 Jurtaréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda