Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Söxuð kjötstappa:  
  400 gr.
40 gr.
40 gr.
1



soðið kjöt
smjörlíki
hveiti
lítill laukur
Kjötsoð
Sósulitur
Salt og pipar eftir vild
Brúnuð jarðepli (kartöflur)
 

  Það má nota nýtt kjöt, saltkjöt eða hvaða kjötleifar sem er í þennan rétt, hvort heldur er brúnað eða soðið. Kjötið er brytjað og saxað i söxunarvél, laukurinn er flysjaður og saxaður með, seinast er soðið jarðepli saxað í vélinni. Smjörlíkið er brætt í potti, hveiti er hrært saman við með þeytara, þynnt út með kjötsoðinu, sem er heitt, og soðið í 10 mín. Þá er kjötið sett út í og allt hrært saman. Sett á steikarfat og brúnuðum jarðeplum raðað utan utan um. Í stað brúnaðra jarðepla má nota soðið jarðepli, sem þá má setja út í stöppuna. Hafi maður kjötsósuleifar, er hún notuð í stað jafnings. Gott er að hafa alls konar grænmeti með þessu.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

Aths.ömmu gömlu:
Ég man eftir því úr æsku að höfð væru egg með þessum rétti, annaðhvort harðsoðin og þá skorin í báta og raðað ofan á fatið - eða spæld og þá eitt spælegg á mann.

 

Húsmóðir að elda