Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Spínatsúpa:  
  80 gr.
80 gr.
2 1/2 l.
1/2 kg.
2
smjörlíki
hveiti
kjötsoð
spínat
gulrætur
Salt og pipar
 

  Spínatið þvegið vel úr köldu vatni, látið í vatn, sem sýður, með natróni og salti, soðið í opnum potti þar til það er meyrt, vatninu hellt af því og skolað úr heitu og köldu vatni. Nuddað í gegnum gatasigti eða saxað í söxunarvél. Smjörlíkið brætt, hveiti hrært saman við, þynnt út með kjötsoðinu, spínatið sett út í og sömuleiðis gulrótin, sem skorin hefur verið smátt, sjóði í 10 mín. - Noti maður spínatsoðið, er ekki látið natrón út í vatnið.

Fín spínatsúpa, II:
Búin til á sama hátt og spínatsúpa nr.I. Þykkur rjómi látinn í súpuskálina, súpunni hrært þar út í, ausið upp á diskana og hálft harðsoðið egg, sundurskorið, sett út í hvern disk.

(Úr bókinni "150 Jurtaréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda