|
| Að steikja í bakarofni: |
|
Í ofni eru vanalega brúnaðar stórsteikur, t.d. læri af kind eða kálfi og stór stykki af nauta- eða svínakjöti.
1. Ofninn þarf að vera vel heitur, 250° C. (bréf verður þá gulbrúnt inni í honum). 2. Steikarskúffan er smurð með smjöri. Steikin er þurrkuð með heitum klút. Salti og pipar er nuddað inn í steikina. Sé steikin mögur, er hún smurð með smjöri. 3. Fallegri hliðin, sem meira kjöt er á, er látin snúa upp í steikarskúffunni. 4. Brúnað í 15-30 mínútur. 5. Heitu vatni eða soði er hellt yfir steikina í skúffunni, þegar hún er orðin vel brún. 6. Soðinu, sem er í skúffunni, er nú ausið yfir steikina 5.-10. hverja mínútu, svo að steikin verði ekki hörð. (Feitar steikur má ekki ausa yfir, t.d. svínasteik). 7. Það má ekki stinga með gaffli eða hníf í steikina. 8. Hve lengi á að steikja steikina, fer eftir stærð hennar, og hvort hún er af gamalli eða ungri skepnu. Venjulega eru það 30-40 mín. fyrir hvert kg. kjöts. 9. Þegar steikin er soðin, er soðinu fleytt af henni og það síað og feitinni fleytt ofan af. 10. Steikin sett augnablik í ofninn aftur. Sé ekki borðað stax, er ofninn hafður hálf-opinn. 11. Gætið að skera steikina þversum á vöðvana, þegar hún er borin inn. 12. Steikarsoðið er notað í sósu út á steikina. (Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur) |