|
| Steiktar fiskibollur: |
|
400 gr.
2 matsk. 1 1/2 matsk. 2 tesk. 1/4 tesk. 1/2 matsk. 2 dl. 50 gr. 50 gr. |
beinlaus fiskur
hveiti jarðeplamjöl (kartöflumjöl) salt pipar saxaður laukur mjólk plöntufeiti smjörlíki |
|
Sjá hreinsun á fiski og fiskdeig. Saxað 4 sinnum með lauknum, saltinu og piparnum. Hveitið og
jarðeplamjölið (kartöflumjöl) hrært saman við. Mjólkin hrærð í smátt og smátt. Hrært í 1/2 klst.
Plöntufeitin og smjörlíkið brúnað á pönnu og fiskdeigið sett á með matskeið, sem dýft er ofan í feitina.
Steiktar í 15 mín. Borðaðar með soðnum kartöflum.
Sjóða má bollurnar, og eru þá margskonar sósur notaðar út á þær. Sé það gert, er lauknum sleppt. (Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur) Aths.ömmu gömlu:Rétt að benda á tíminn sem Helga telur hæfilegt að hræra deigið miðast við að hrært sé í höndum eins og þá tíðkaðist - en í hrærivél þarf vitanlega ekki að hræra svona lengi. |