|
| Steiktur fiskur: |
|
1 - 1 1/2 kg.
1 1/2 matsk. 1 tesk. 1/4 tesk. 75 gr. 200 gr. |
fiskur
hveiti salt pipar laukur smjörlíki Soðin jarðepli (kartöflur) |
|
Lesið allt um hreinsun og steikingu á fiski. Laukurinn er flysjaður og skorinn í sneiðar.
Hveiti, salti og pipar er blandað saman. Helmingurinn af smjörlíkinu er brúnaður á pönnu, laukurinn brúnaður
þar í, þar til hann er ljósbrúnn. Látinn á disk. Helmingurinn af smjörlíkinu, sem eftir er, er látinn á pönnuna
og brúnaður. Fiskstykkjunum snúið upp úr hveitiblöndunni. Brúnuð móbrún við mikinn hita. Þá er smjörlíkið, sem
eftir er, látið á pönnuna. Steiktur við hægan eld í 10 mínútur. Fiskinum raðað upp á fat. Laukurinn settur í smjörið
á pönnunni og því hellt yfir fiskinn. Soðnum jarðeplum raðað í kring.
Aths. Þannig má steikja allskonar fisk. Þorskur og ýsa eru flött. Lax, silungur, steinbítur og heilagfiski er skorið í þunnar sneiðar. (Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur) |