|
| Súrir kútmagar: |
|
Ágætis matur eru súrir kútmagar, en betri þykir mér þeir kútmagar, sem bara eru þá fylltir með lifrinni.
Kútmagarnir þurfa tæplega eins langa suðu, þegar á að súrsa þá. Þeir eru matreiddir eins og
áður er sagt, kældir og settir í góðan súr. Bezt er að súrsa þá í áfum.
Við ættum að borða þannig lifraða kútmaga mikið meira en gert er, þar sem lifrin er mjög holl.
(Úr bókinni "160 Fiskréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur) |