Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Svikinn héri (úr saltkjöti):  
  1/2 kg.
1/4 kg.
1
1/8 teskeið
75 gr.
1/2 l.
1/2 l.


Sósan:
30 gr.
30 gr.

1 tesk.
kjöt
soðin jarðepli (kartöflur)
egg (því má sleppa)
pipar
smjörlíki
mjólk
vatn
Brúnuð jarðepli (kartöflur)


smjörlíki
hveiti
Mjólkursoðið
sykur
sósulitur
 

  Saltkjötið er afvatnað og þurrkað vel. Saxað þrisvar sinnum í söxunarvél. Soðin jarðepli eru söxuð tvisvar þar með. Látið í skál og hrært með egginu. Piparinn látinn í. Hnoðað á borði og mótað sem hveitibrauð. Látið í steikarskúffu, sem er smurð með smjöri. Smjörklattar eru settir ofan á deigið hingað og þangað. Sett inn í heitan ofn og steikt móbrúnt. Mjólk og vatn er hitað saman, hellt yfir hérann, þegar hann er brúnaður. Soðið í 1/2 klst. Soðinu ausið yfir 10. hverja mínútu. Soðinu hellt af og síað. Hérinn settur augnablik aftur í ofninn. Sósa nr.3 er löguð. Sósulitur settur í eftir þörf og kryddið eftir smekk. Hérinn settur í heilu lagi á mitt fatið. Lítil sósa þar yfir. Brúnuð jarðepli utan um. Gott er að hafa soðið grænmeti með þessum rétti. Sósan borin með í sósuskál.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda