|
| Terta (hrærð): |
|
75 gr.
100 gr. 3 100 gr. 1/2 teskeið |
smjörlíki
sykur egg hveiti lyftiduft jarðarberjamauk |
|
Smjörlíkið linað og hrært með sykrinum, unz það er ljóst og létt. Eggin aðskilin og rauðurnar hrærðar
saman við, ein og ein. Hrærist því næst vel. Lyftiduftinu og hveitinu blandað saman og sáldað í. Hrært
saman. Hvíturnar þeyttar vel og blandað saman við með hníf. Bezt er, að tertumótið sé með lausum botni.
Mótið smurt. 1/3 hluti deigsins smurður vel í mótið. Bakað ljósbrúnt við meiri undirhita. Hvolft á sykri
stráðan pappír. Mótið þvegið og hinir hlutarnir bakaðir á sama hátt. Botn fyrstu kökunnar smurður með
jarðarberjamauki. Önnur hinna lögð ofan á, smurð jarðarberjamauki, og síðasta kaka lögð ofan á þannig
að botninn snúi niður. Bezt að geyma tertu þessa í pergamentspappír. Nota má hvaða berjamauk sem er.
(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur) |