|
| Hertir þorskhausar: |
|
Stórir þorskhausar eru skornir báðum megin við hnakkabeinið og það tekið í burt. Stungin úr þeim augun, hausinn
þaninn í sundur með spýtu og þeir hertir á möl eða hengdir á rá.
Fyrrum þótti það list að rífa þorskhausa þannig að allur fiskurinn héngi saman, þegar búið var að taka öll beinin úr. (Úr bókinni "160 Fiskréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur) |