Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Tröllasúrugrautur:  
  1/2 kg.
8 dl.
100 gr.
50 gr.
2 dl.
tröllasúra (rabarbari)
vatn
sykur
sagómjöl eða jarðeplamjöl (kartöflumjöl)
vatn
 

  Tröllasúran er þvegin,og skorin í bita. Þegar vatnið sýður, er hún látin í pottinn ásamt sykrinum. Soðin, þar til hún er komin í mauk. Mjölið er hrært út í köldu vatni. Látin í grautinn, og er hrært í, þar til sýður. Það má ekki hræra í hring, því að þá verður grauturinn seigur. Hellt upp í skál og sykri stráð á. Borðaður með sykri og rjómablöndu. Gott er að þeyta rjóma, sem látinn er saman við nýmjólkina ofan á í mjólkurkönnuna.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda