Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Tröllasúrumauk nr.I:  
  1 kg.
1 kg.
tröllasúra (rabarbari)
sykur
 

  Tröllasúran er hreinsuð vel og vigtuð áður en hún er þvegin. Skorin í litla bita, sem látnir eru strax í kalt vatn og þvegnir. Fyrst er dálítið af tröllasúru látið í pottinn, þá sykur og tröllasúra á víxl. Látið yfir eld og soðið við hægan hita þar til það er jafnt og þykkt. Það þarf oft að hræra í maukinu og stöðugt síðast. Þegar maukið er soðið er það látið í vel hreinar, þurrar og heitar krukkur. Krukkurnar eru þurkaðar strax með heitum klút, sérstaklega vel af börmunum. Þegar maukið er orðið kalt og skán komin ofan á, er smjörpappír, sem dýft hefur verið í vín eða edik, lagður ofan á þannig, að hann leggist vel ofan að maukinu. Þá er bundið tvöföldum smjörpappír, með blautu seglgarni yfir krukkuna. Geymist á köldum stað.

Aths.ömmu gömlu:
Mér hefur reynst mjög vel að geyma þveginn og skorinn rabarbarann í hæfilega stórum skömmtum í frysti og sjóða síðan sultuna eftir hendinni, því nýsoðin rabarbarasulta er ólíkt betri en sú sem geymd hefur verið í nokkra mánuði. Ég tek þá úr frystinum svona 1 kíló af rabarbara og set í pott ásamt sykrinum og læt standa yfir nótt. Sýð svo sultuna eins og segir hér að ofan.

(Úr bókinni "150 Jurtaréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda