Barnamatur
Hér koma nokkar uppskriftir af barnamat sem ég er að prufa og einnig eru uppskriftir frá
Þetta er úr ýmsum áttum en einnig tekið mið af bókunum Södd og sæl á fyrsta ári frá Iðunni og Brjóstagjöf og barnamatur frá Almenna bókaforlaginu en þær bækur standa alltaf fyrir sínu og ekki spurning um að kaupa þær því þar eru mjög sniðugar uppskriftir fyrir börn á öllum aldri.
Írisi Brynju í Danmörku sem ég nota líka.
Uppskriftir frá Írisi Brynju í Danmörku
Þetta er tekið úr Barnamöppu sem ég fékk þegar Þór fæddist.
Til að byrja með er því nauðsynlegt að mauka og jafnvel sía matinn. Jafnframt er æskilegt að koma á reglubundinni máltíðaskipan. Upp úr 8 mánaða aldri þarf að byrja að auka grófleika fæðisins. Þá má einnig fara að gefa börnum brauð og mjúkt grænmeti og ávexti til að japla . Einföld matreiðsla reynist oftast best á þess tímabili t.d soðinn, ofnbakaður eða gufusoðinn matur, lítið sem ekkert kryddaður.
Maukaður matur ætti að haldast góður í 3 mánuði í frystiskáp/kistu við -18-20°
Fæðutegundir sem EKKI skal gefa barni undir 8 mánaða aldri:
Léttmjólk eða undarenna, rabarbari, spínat, laukur, hvítkál, unnar kjötvörur, saltur matur, pakka eða dósamatur (nema hann sé sérstaklega ætlaður ungbörnum, sætur eða sykraður matur.
Fæðutegundir sem má gefa barni frá 6 mánaða
Korn: Grautur úr hrís eða byggi, haframjöl, hveiti, rúgur, hirsi.
Mjólkurvörur: Móðurmjólk, nýmjólk, súrmjólk, ab-mjólk, hrein jógúrt.
Grænmeti:Soðnar kartöflur, rófur, gulrætur, spergilkál, blómkál, maiskorn, grænar baunir
Ávaxtir: maukuð epli, perur, bananar
Safar: sólberjasafi, eplasafi,perusafi
Kjöt og fiskur: nýtt soðið og maukað kjöt soðinn fiskur og soðin egg.
Fita: Matarolía, smjör, smjörlíki.
Bætiefni: 1 teskeið af Þorskalýsi eða fjórir dropar af AD-dropum.
Fæðutegundir sem má gefa barni frá 8 mánaða
Brauð, skyr, slátur, appelsínur, og aðra súrir ávextir bætast við matseðilinn og vnejulegur hafragrautur eða aðrir heimatilbúnir grautar koma að einhverju leyti í stað ungbarnagrauta.
Hér eru svo uppskriftir af Barnamat foreldra
Eplamauk: skrælið 5 konfektepli, takið kjarnan úr. Setjið í pottt og látið 1/2-1 dl af vatni í pottinn. Sjóðið í 5 mín. Hellið safanum af og látið í glas. Maukið eplinn með töfrasprota og hellið hluta af soðinu saman við eins og þurfa þykir, þangað til maukið er orðið eins og þið viljið.
40 gr kjúklingakjöt, 3msk soðin hrísgrjón, 1 msk maískorn frosin eða fersk, 1/2 gulrót, vatn.
Sjóða frampartsbita eða lærisneiðar í ca. 1 klst. ca.500 gr með beini eða 300 gr án. ein rófa, 4 gulrætur og 8 kartöflur mixa svo öllu saman og bæta smá vatni við, og frysta svo í smá skömmtum.
Þetta er úr ýmsum áttum en einnig tekið mið af bókunum Södd og sæl á fyrsta ári frá Iðunni og Brjóstagjöf og barnamatur frá Almenna bókaforlaginu en þær bækur standa alltaf fyrir sínu og ekki spurning um að kaupa þær því þar eru mjög sniðugar uppskriftir fyrir börn á öllum aldri.
Matur handa 6 mánaða
Hrísgrjónagrautur
Sjóða ½ dl hýðishrísgrjón með 3 dl af vatni, láta grjónin sjóða ærlega í um 30-45 mín svo þau verði mjúk, stappa/mauka hrísgrjónin svo saman við soðið, má setja smá sólblómaolíu saman við sem er ágæt viðbót.
Bókahveitigrautur
Sjóða ½ dl af bókahveitimjöli og 2 ½ dl af vatni, þegar suða kemur upp hræra þá í og taka pottinn af hellunni og láta grautinn jafna sig í um 10-15 mín. Á þeim tíma blotnar mjölið betur upp, það bólgnar út og grautinn þykknar. Með mjólk í eða á grautinn farið þið að eins og með hrísgrjónagrautinn.
Bættir korngrautar
Þegar barnið hefur vanist þessum grautum þá er sniðugt að bæta út í þá t.d banana, eplum og perum og eins að nota grænmeti í þá.
Matur handa 7 mánaða börnum
Hrísgrjón með kjöti
Sjóða saman ½ dl af hrísgrjónum og 50-100 gr af kjöti eða innmat og um 3 dl af vatni. Látið sjóða vel svo hrísgrjónin verði mjúk og sjúgi í sig sem mest af vatninu. Stappið/maukið þetta eins og hentar. Ef eitthvert soð er eftir stappa það þá saman við matinn því það inniheldur mikið af efnum úr matnum. Einnig er hægt að nota soðnar kartöflur með þessu í stað hrísgrjóna. Ég notaði magurt lambakjöt og magurt nautakjöt en Kálfakjöt kemur líka til greina.
Maísgrautur
Notið maísmjöl fyrst í stað og síðan maísgrjón í grautinn. Maísmjöl fæst í heilsubúðum. Það er fíngert ljógult mjöl, maisenamjöl sem fæst í búðum er ekki eins næringaríkt eins og hitt. Sjóða um ½ dl af maismjöli eða grjónum í um 2-2 ½ dl af vatni. Látið suðuna koma upp og hræra í þar til grauturinn þykknar svolítið. Takið hann af hellunni og láta þykkna og kólna í um 10-15 mín. Það er líka hægt að nota mjólk í grautinn og líka hægt að bæta ávöxtum og grænmeti út í.
Maísgrjón með kjöti
Eins og með bætta korngrautinn.
Matur fyrir 8 mánaða og eldri
Brauðgrautur
1 rúgbrauðsneið án skorpu, 1 ½ msk hrísmjöl eða maísmjöl, 1 dl nýmjólk, ½ dl vatn
Mylja brauðið og leggja í bleyti í vökvanum, hita með hrísmjöli og hræra vel, það þarf ekki að sjóða þennan lengi.
Lambakjötsréttur
30 gr lambakjöt t.d framhryggsbiti, 1 lítil kartafla, ½ gulrót, ¼ rófa, vatn. Sjóða lambakjöt með grænmeti og kartöflum, það er ekki gott að hafa kjötið of feitt en það þarf ekki að hreinsa alla fitu af heldur.
Stór uppskrift til að frysta úr 300 gr lambakjöt, 8 kartöflur 4 gulrætur, 1 rófa, vatn.
Lambakjöt með gulum baunum og hrísgrjónum
30 gr lambakjöt, 2 msk soðin hrísgrjón, 2 msk gular baunir og vatn. Sjóða kjöt, láta gulu baunirnar út í og sjóða í 5 mín, mauka með soðnu hrísgrjónunum.
Lambakjöt með blómkáli og kartöflum
30 gr lambakjöt, 1 lítil kartafla, 30 gr blómkál, vatn. Sjóða kjötið, afhýða kartöflu og skera í bita og hreinsa blómkálið og setja út í pottinn og sjóða með kjötinu þar til grænmetið er orðið meyrt. Mauka með soðinu.
Kjúklingur með maískorni
40 gr kjúklingur, 3 msk soðin hrísgrjón, 1 msk maískorn soðin eða fersk, ½ gulrót, vatn. Annað hvort steikið kjúkling í ofni eða sjóðið hann alveg í gegn, brytja gulrót og sjóða maískorn (ef þau eru ekki soðin), mauka með soðnum hrísgrjónum og beinlausa kjúklingnum
Fiskur með kartöflum og grænmeti
30gr soðinn eða ofnbökuð ýsa eða lúða, ½ gulrót, brokkál eða blómkál, smyrja álpappír með smá smjöri eða smjörlíki og vefja fiskinn og grænmetið, setjið álpappírinn í sjóðandi vatn t.d í kartöflupottinn og sjóðið í 10-15 mín. Passa að soðið fari ekki úr álbréfinu og stappið allt saman með soðinu.
Ath að þetta er sett svona upp svo það sé betra að prenta út mataruppskriftirnar, og einnig að ath að það sem við þekkjum okkar börn best þá eru mismunandi þarfir hvers barns á ábyrgð foreldra svo þetta er aðeins það sem ég hef reynt sjálf og hefur gagnast vel.
Hér er líka síðan hjá yggdrasill sem ég notaði mjög mikið
Umhverfistofnun er hér með lista hvað má vera í barnamat og hvað skal varast