Þessar uppskriftir eru frá henni Írisi Brynju í Danmörku en ég hitti hana á Barnalandi, hún er með mjög sniðugar tillögur af barnamat. En eins og þið sjáið þá eru sum orðin á Dönsku en það ætti nú að vera í lagi því öll höfum við lært Dönskuna :) ATH að þessi síða er gerð með það í huga að hægt sé að prenta út auðveldlega án þess að hafa myndir og aukahluti á.
Takk kærlega fyrir Íris
4-6 mánaða:
Heimatilbúnir grautar af maismjöli, rísmjöli, hirsi (hirseflager) og bókhveiti:
2 dl vatn, 2-3 msk mjöl, 1 tsk smjör eða olía, þurrmjólkurduft sem samsvarar 2 dl vatni.
Aðferð: Vatn og mjöl pískað saman í potti og soðið í nokkrar mín (2-3 mín en bókhveiti í 30 mín). Smjör eða olía sett út í og svo þarf að kæla aðeins niður áður en þurrmjólkurduftinu er hrært út í.
Svo getur maður blandað saman við þetta annað hvort grænmetismauki eða ávaxtamauki til að fá smá tilbreytingu.
Grænmeti: kartöflur, gulrætur, blómkál og brokkóli.
Það sem að ég geri er að ég sýð grænmetið sér í potti og sker það niður í lítla bita (því minni suðutími, því meiri vítamín). Svo mauka ég það með stafablandara og frysti í ísteningaboxi. Þegar að þetta er frosið þá flyt ég þetta yfir í frystipoka. Þetta ætti að geymast í ca. 2-3 mánuði í frysti. Það er einfalt að þýða því að þú getur annað hvort tekið þetta út daginn áður á að nota og látið þiðna inn í ísskáp eða þýða þetta í örbylgjuofninum. Ég frysti allt nema kartöflurnar því að þær verða skrítnar í frosti. Þær síð ég bara daglega.
Aðferð: Kartafla skornar smátt og soðin í smá vatni þangað til að hún er tilbúin. Vatninu hellt af og svo er kartaflan stöppuð vel og sett aftur út í pottinn. Svo píska ég kartöfluna saman við smá tilbúna þurrmjólk þangað til að þetta er búið að fá þann þykkleika sem ég vil. Í byrjun er betra að gefa börnunum svolítið þunnt. Svo bæti ég 1 tsk smjöri eða olíu út í og svo er ég búin að afþýða nokkra "klaka" af grænmetismaukinu og bæti því út í. Þegar að maður byrjar að gefa barninu eitthvað nýtt að borða þá ætti maður að endurtaka það í nokkra daga áður en maður gefur því eitthvað annað, svo að það venjist bragðinu. Ef að það eru miklir köglar í kartöflumúsinni þá getur maður reynt að sigta hana eða að þrýsta í gegnum hvítlaukspressu. Maður getur líka í staðinn fyrir að píska kartöfluna með þurrmjól notað smá suðuvatn af kartöflunni eða grænmeti en minn strákur vildi frekar borða þegar að hann fann smá mjólkurbragð. Þegar að hann varð 6 mánaða þá hætti ég að nota þurrmjólkina saman við og hætti líka að sigta.
Ávextir: Perur, epli, plómur, hindber, banani. Allt þetta er bara soðið eins og grænmetið og fryst niður (nema bananinn :-))
Núna kemur smá framhald frá mataruppskriftir 4-6 mánaða.
Núna getur maður bætt hafragrautnum við. Sama aðferð og í grautar fyrir 4-6 mánaða.
Af grænmeti þá geturðu bætt við: púrru, rósakál, hvítkál, baunir, spínat, avakadó, sellerí.
Af ávöxtum geturðu bætt við jarðaber, sólber, rifsber, brumber.
Svo mega þau fá kjöt, kjúkling, fisk , innmat og egg.
Ég bjó til kjötbollur úr nautahakki. Ég útbjó litlar bollur 25-30 g og sauð þær þangað til að þær voru tilbúnar með alls konar grænmeti til að fá smá bragð í bollurnar. Svo frysti ég þær og svo afþýði ég bara jafnóðum í örbylgjunni og hræri saman við kartöflu/grænmetismaukið. Einnig er allt í lagi að gefa þeim smá sósu út í annað slagið.
Einnig getur maður soðið kjúklingakjöt og gefið og soðinn fisk (en aðeins ef að það er ekki ofnæmi í fjölskyldunni).
Núna mega þau líka fá mjólkurvörur. Hérna í DK mega þau fá súrar mjólkurvörur t.d A38 (svipað og AB mjólk) og hreint jógúrt. Ég gef mínum A38 og blanda banana eða öðrum ávöxtum út í.
Frá 8 mánaða aldri getur maður breytt stundum um og gefið pasta eða hrís í staðinn fyrir kartöflur. Einnig geta þau farið að fá brauð (rugbrauð-franskbrauð) með áleggi af t.d lifrakæfu, kjötpulsu, kjötbollu, hrogn, makril, smjörost, egg, avakadó, rifið grænmeti.
Einnig mega þau smátt byrja að fá nýmjólk. Annað hvort annað slagið í glas eða út í grautinn í staðinn fyrir þurrmjólk. Ég persónulega nota þurrmjólkina út af næringunni.
Það er ráðlagt á þessum aldri að þau fá 1/2 - 3/4 l af mjólkurvörum (mjólk, þurrmjólk, brjóstmjólk, jógúrt o.s.frv.)
Kær kveðja Íris Brynja