Ættarmótið 2002

Upplýsingar um ættarmótið

Frá fundi í Reykjavík þann 18.4.2002.
Kæru ættingjar.

Stefnt er að því að halda ættarmót á Djúpavogi og Stöðvarfirði í sumar, dagana 15 og 16 júni. Það yrðu afkomendur
1. Hans Jónatans 1784 á St.Croix - 11.12.1827 og Katrínar Antoníusardóttur 1798 - 07.08 1869.

Allar upplýsingar um mótið verða birtar á heimasíðu ættatmótsins slóðin er www.simnet.is/hansjonatan

Dagskrá

Fjölbreytt dagskrá verður í boði þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi t.d sjóferð, safnaferð, gönguferðir og kaffihúsaspjall og sýning og fróðleikur um ættarsöguna.

Við stefnum á að hittast laugardaginn 15. júni á Djúpavogi milli kl 16.00 og kl. 17.00. í Löngubúð, kl.17.00 förum við í gönguferð og skoðum menningarsögulegar slóðir með góðri leiðsögn Ingimars Sveinssonar og Hrafns Baldurssonar. Kl.20.00. verður sameiginlegur kvöldverður á Hótelinu á Djúpavogi

Verð og matseðill kemur mjög fljótlega á netið.
Síðan er ætlunin að rifja upp söguna og gamlar minningar eitthvað fram eftir kvöldi. Gestir geta síðan ráðið því hvort þeir gista á Djúpavogi eða keyra yfir á Stöðvarfjörð.

Á sunnudeginum er ætlunin að bjóða uppá fjölbreytta dagskrá á Stöðvarfirði.
Boðið verður uppá gönguferð, safnaferð, og siglingu, farið verður í leiki með yngstu kynslóðinni og kaffhúsaspjall verður í Grunnskólanum fram eftir degi og síðan ræður fólk hvort það vill halda heim eða gista aðra nótt.
Gistimöguleikar eru ýmsir t.d er tjaldstæði á Stöðvarfirði (frítt) og við höfum fengið afnot af Grunnskólanum (svefnpokapláss , mjög ódýrt). Hótel er á Djúpavogi og aðeins er klukkustundar akstur þarna á milli. Þeir sem vilja fá aðstoð við að útvega gistingu er bent á að hafa samband við Önnu Maríu í síma 475-8842 og gsm 869-7368
Við bendum einnig á að sundlaug er á staðnum.

Staðsetning

Stodvarkort