Gott og Vel - Vertu velkomin(n)

Gott & Vel sérhæfir sig í einföldum og ódýrum heimasíðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Boðið er uppá vefsíðugerð á besta verðinu í bænum auk þess sem að við skoðum öll verkefni á borð við lógó, auglýsingar og aðra grafíska hönnun.

Ég notast við "Open Source" forritun og ókeypis "Web Template" á borð við vefkerfið ZIMPLIT til þess að halda kostnaði í lágmarki en með því er hægt að eignast einfalda en glæsilega heimasíðu á algjöru lágmarksverði.

Til að fá nánari upplýsingar um verð, vefumsjónarkerfið sjálft, og þau verkefni sem ég hef tekið að mér, endilega notaðu valmyndina hér til hliðar.



Hugmyndin að Gott & Vel kviknaði sumarið 2008 þegar að ég var mikið í því að búa til vefsíður og ýmislegt grafíktengt fyrir hina ýmsu aðila. Tilhugsunin að búa til stílhreinar, einfaldar og vel framsettar heimasíður á verði sem enginn annar væri að bjóða uppá þótti mér mjög spennandi. Það var svo núna vorið 2009 að ég fór að skoða nýjustu verðskrár þeirra fyrirtækja sem sérhæfa sig í vefsíðugerð og þar með fór Gott & Vel af stað.