Þönglabakka 1, Mjódd, efsta hæð

Sími: 557 8200

Netfang: hellir@simnet.is

Heimasíða: http://www.simnet.is/hellir

 

Hraðskákkeppni taflfélaga á suðvesturlandi 1999

5. júní-15. júlí 1999


(15. júlí 1999) Skákfélag Hafnarfjarðar sigraði Taflfélag Reykjavíkur í úrslitaviðureigninni með minnsta mun, 36½ vinningum gegn 35½ vinningum. Þetta er í fyrsta sem Skákfélag Hafnarfjarðar sigrar í keppninni og ekki nóg með það, heldur í fyrsta sinn sem Skákfélagið kemst upp úr 8 liða úrslitum.

Einnig er þetta í fyrsta sinn Reykjavíkurfélögin T.R. og Hellir sigra ekki í keppninni og meira en það því félögin hafa aldrei fyrr tapað fyrir öðrum liðum en hvoru öðru.

S.H. byrjaði betur í viðureignni og náði 3 vinninga forskoti eftir 2 umferðir. T.R.-ingar jöfnuðu í 4. umferð og voru komnir með ágætis forskot í hálfleik, 20-16. Munurinn hélst svo svipaður þar til í næst síðustu umferð því þá sigruðu heimamenn 5-1 og náðu eins vinnings forskoti. Lokaviðureignin fór 3-3 og því sigruðu heimamenn með minnsta mun. Ásgeir P. Ásbjörnsson náði bestum árangri Hafnfirðinga fékk 8½ vinning. Bestum árangri T.R.-inga náði Arnar Gunnarsson með 9 vinninga.


Árangur einstakra liðsmanna var eftirfarandi:

Skákfélag Hafnarfjarðar:

Ásgeir P. Ásbjörnsson

12

Ágúst Sindri Karlsson

8

12

Sigurbjörn J. Björnsson

12

Páll Agnar Þórarinsson

6

12

Björn Freyr Björnsson

4

12

Þorvarður F. Ólafsson

10

Lárus Knútsson

0

2

Taflfélag Reykjavíkur:

Arnar E. Gunnarsson

9

12

Jón Viktor Gunnarsson

6

12

Þorsteinn Þorsteinsson

6

12

Júlíus L. Friðjónsson

12

Sigurður Daði Sigfússon

12

Bergsteinn Einarsson

4

11

Ríkharður Sveinsson

½

1

 

úrslit:

Heimalið

Útilið

Úrslit

Skákfélag Hafnarfjarðar

Taflfélag Reykjavíkur

36½-35½

 

undanúrslit:

Heimalið

Útilið

Úrslit

Taflfélag Garðabæjar

Skákfélag Hafnarfjarðar

25½-46½

Taflfélagið Hellir

Taflfélag Reykjavíkur

34-38

 

 8 liða úrslit:

Heimalið

Útilið

Úrslit

Taflfélag Garðabæjar

Taflfélag Reykjanesbæjar

72*-0*

Taflfélag Reykjavíkur

Taflfélag Kópavogs

48½-23½

Taflfélagið Hellir

Skákfélag Grandrokk

46-26

Skákfélag Hafnarfjarðar

Taflfélag Akranes

54-18

 

Sigurvegarar frá upphafi:

1995

Taflfélag Reykjavíkur

1996

Taflfélagið Hellir

1997

Taflfélag Reykjavíkur

1998

Taflfélagið Hellir

1999

Skákfélag Hafnarfjarðar


(11. júlí 1999) Úrslitaviðureign Skákfélags Hafnarfjarðar og Taflfélags Reykjavíkur fer fram í félagsheimili S.H. fimmtudaginn 15. júlí og hefst kl. 20.00.


(26. júní 1999) Viðureign Skákfélags Hafnarfjarðar og Taflfélags Garðabæjar fór fram 22. júní 1999 í Garðaskóla og sigraði Skákfélag Hafnarfjarðar 46½-25½. Bestum árangri Hafnfirðinga náði Ágúst Sindri Karlsson með 9½ vinning. Bestum árangri heimamanna náði Sævar Bjarnsson, fékk 9 vinninga. Nánari upplýsingar um keppninna má finna á heimasíðu T.G.


Árangur einstakra liðsmanna var eftirfarandi:

Skákfélag Hafnarfjarðar:

Ágúst Sindri Karlsson

12

Ásgeir P. Ásbjörnsson

12

Páll Agnar Þórarinsson

12

Sigurbjörn Björnsson

12

Björn Freyr Björnsson

7

12

Guðmundur Halldórsson

12

Taflfélag Garðabæjar:

Sævar Bjarnason

9

12

Kristján Guðmundsson

12

Ásgeir Þór Árnason

4

12

Jóhann H. Ragnarsson

4

12

Leifur Ingi Vilmundarson

7

Matthías Kjeld

12

Björn Jónsson

0

5

undanúrslit:

Heimalið

Útilið

Úrslit

Taflfélag Garðabæjar

Skákfélag Hafnarfjarðar

25½-46½

Taflfélagið Hellir

Taflfélag Reykjavíkur

34-38


(24. júní 1999) Taflfélag Reykjavíkur sigraði Taflfélagið Helli í spennandi viðureign sem fram fór í kvöld í Hellisheimilinu. Keppnin var hnífjöfn til að byrja með en T.R-ingar sigu yfir og höfðu yfir í hálfleik 20-16. Hellir náði jafna eftir 8 umferðir en T.R. seig aftur yfir og hafði 6 vinninga forystu fyrir síðustu umferð. T.R. þurfti því aðeins ½ vinning í síðustu umferð. T.R. fékk tvo og sigraði 38-34. Margeir Pétursson stóð sig best T.R.-inga, fékk 8½ vinning. Helgi Ólafsson stóð sig best Hellismanna fékk 10 vinninga. Þetta er fimmta sinn á fimm árum sem Hellir og T.R. mætast og hafa félögin sigrað til skiptist. Það verða því Skákfélag Hafnarfjarðar og Taflfélag Reykjavíkur sem tefla til úrslita. Viðureignin fer fram á heimavelli S.H. Dagsetning hefur ekki verið ákveðin. Heimasíðu Hellis hafa enn ekki borist einstök úrslit í viðureign T.G. og S.H.

Árangur skákmannanna í viðureigninni varð sem hér segir.

Taflfélag Reykjavíkur:

Margeir Pétursson

12

Þröstur Þórhallsson

7

12

Jón Viktor Gunnarsson

6

12

Arnar E. Gunnarsson

6

12

Sigurður Daði Sigfússon

5

Benedikt Jónasson

9

Þorsteinn Þorsteinsson

10

Taflfélagið Hellir:

Helgi Ólafsson

10

12

Hannes Hlífar Stefánsson

12

Ingvar Ásmundsson

5

12

Karl Þorsteins

12

Andri Áss Grétarsson

12

Bragi Þorfinnsson

½

12


(23. júní 1999) Skákfélag Hafnarfjarðar sigraði Taflfélag Garðabæjar örugglega í Garðaskóla í gærkveldi. Úrsltin urðu 46½-25½. Nánari upplýsingar um einstök úrslit hafa ekki enn borist. Viðureign Taflfélagins Hellis og Taflfélags Reykjavíkur fer fram fimmtudaginn 24. júní kl. 20:00 í Hellisheimilinu. Áhorfendur velkomnir!


(20. júní 1999) Nú liggja fyrir öll úrslit í 8 liða úrslitum og jafnframt hverjir tefla saman í undanúrslitum. Nánari upplýsingar um einstakar viðureignir má finna neðar á síðunni. Undanúrslitum á að vera lokið í s.l. 25. júní n.k.

8 liða úrslit:

Heimalið

Útilið

Úrslit

Taflfélag Garðabæjar

Taflfélag Reykjanesbæjar

72*-0*

Taflfélag Reykjavíkur

Taflfélag Kópavogs

48½-23½

Taflfélagið Hellir

Skákfélag Grandrokk

46-26

Skákfélag Hafnarfjarðar

Taflfélag Akranes

54-18


(20. júní 1999) Taflfélag Reykjavíkur vann öruggan sigur á Taflfélag Kópavogs í lokaviðureign 8 liða úrslita í kvöld. Viðureignin fór fram í félagsheimili T.R. Úrslitin urðu 48½-23½. Jón Viktor Gunnarsson stóð sig best T.R.-manna. Vann allar 12 skákirnar! Bestum árangri T.K.-manna náði Einar Hjalti Jensson. Hann fékk 8½ vinning. Annars varð árangur skákmannanna sem hér segir:

Taflfélag Reykjavíkur:

Jón Viktor Gunnarsson

12

12

Arnar E. Gunnarsson

9

12

Sigurður Daði Sigfússon

12

Magnús Örn Úlfarsson

7

12

Þorsteinn Þorsteinsson

7

12

Ríkharður Sveinsson

5

12

Taflfélag Kópavogs:

Einar Hjalti Jensson

12

Hlíðar Þór Hreinsson

5

12

Haraldur Baldursson

4

12

Jóhann Ingvason

4

12

Jónas Jónasson

2

12

Matthías Kormáksson

0

12


(17. júní 1999) Skákfélag Hafnarfjarðar vann öruggan sigur á Taflfélagi Akranesi þann 15. júní. Nú er aðeins einni viðureign 8 liða úrslita ólokið en það er viðureign T.R. og T.K. Mun hún fara fram sunnudaginn 20. júní kl. 20:00 í félagsheimili T.R. Lokaúrslit í viðureign S.H. og T.A. urðu 54-18. Páll Agnar Þórarinsson fékk flesta vinninga Hafnfirðinga eða 10½ vinning 12 skákum. Ágúst Sindri Karlsson næði hins vegar besta prósentuhlutfalli. Fékk 8 vinninga af 8 mögulegum. Bestum árangri Akurnesinga náði Magnús Magnússon, fékk 5½ vinning úr 12 skákum. Annars varð árangur skákmannanna sem hér segir:

Skákfélag Hafnarfjarðar:

Páll Agnar Þórarinsson

10½

12

Þorvarður F. Ólafsson

12

Ágúst Sindri Karlsson

8

8

Björn Freyr Björnsson

8

12

Lárus Knútsson

8

12

Sigurbjörn J. Björnsson

7

11

Þór Stefánsson

3

5

Taflfélag Akranes:

Magnús Magnússon

12

Gunnar Freyr Rúnarsson

12

Gunnar Magnússon

3

12

Einar Kristinn Einarsson

8

Pétur Atli Lárusson

12

Þröstur H. Þráinsson

1

4

Hörður Garðarsson

1

12

 


(14. júní 1999) Taflfélagið Hellir vann öruggan sigur á Skákfélagi Grandrokk í kvöld. Fyrsta viðureignin fór 3-3 en síðan vann Hellir 5-1 og bætti forskot sitt jafnt og þétt. Í hálfleik var staðan 24-12. Lokaúrslit urðu svo 46-26. Bestum árangri Hellisbúa náði Ingvar Ásmundsson. Bestum árangri Grandara náði Tómas Björnsson. Báðir fengu 9 vinninga. Annars varð árangur skákmannanna sem hér segir:

Taflfélagið Hellir:

Ingvar Ásmundsson

9

12

Andri Áss Grétarsson

12

Ögmundur Kristinsson

8

12

Gunnar Björnsson

8

12

Kristján Eðvarðsson

12

Bragi Halldórsson

6

12

Skákfélag Grandrokk:

Tómas Björnsson

9

12

Róbert Harðarson

10

Dan Hansson

4

12

Sigurður P. Guðjónsson

2

12

Kristján Örn Elíasson

2

12

Bjarni Hjartarson

12

Hrannar Jónsson

1

2

 


(13. júní 1999) Skákfélag Selfoss og nágrennis dró sig til baka í keppninni í dag vegna þess að ekki gekk að ná saman liði. Mun Skákfélag Grandrokk koma inn fyrir þá í staðinn. Það verða því Taflfélagið Hellir og Skákfélag Grandrokk sem mætast í Hellisheimilinu mánudaginn 14. júní kl. 20.00.


(11. júní 1999) Taflfélag Garðabæjar er komið í undanúrslit þar sem Taflfélag Reykjanesbæjar gaf umferðina vegna þess að þeir náðu ekki saman liði. Viðureign Hellis og Selfoss fer fram í Hellisheimilinu 14. júní kl. 20.00. Umsjónarmanni er ekki kunnugt um hvenær aðrar viðureignir 8 liða úrslita fara fram en þeim á að vera lokið í s.l. 15. júní n.k.


(4. júní 1999) Taflfélagið Hellir stendur nú fyrir í fimmta skipti fyrir hraðskákkeppni taflfélaga á suðvesturlandi. Sem fyrr taka 8 lið þátt. Hafa sömu félög tekið þátt frá byrjun. Keppni þessi er mjög vinsæl meðal félagana. T.d. var það haft á orði við umsjónarmann síðunnar af einum liðsstjóranum "að þetta væri skemmtilegasta keppni hvers árs"

Nú er búið að draga saman í 8 liða úrslit og er röðun sem hér segir (fyrra liðið á heimavelli). 8 liða úrslitum skal lokið í s.l. þann 15. júní n.k. Hægt verður að fylgjast með keppninni hér á síðunni.

Yfirdómari keppninnar er Ólafur S. Ásgrímsson alþjóðlegur skákdómari. Hann sér jafnframt að draga liðin saman fyrir hverja umferð. 


Sigurvegarar frá upphafi:

1995

Taflfélag Reykjavíkur

1996

Taflfélagið Hellir

1997

Taflfélag Reykjavíkur

1998

Taflfélagið Hellir

1999

??????????????????

 



Taflfélagið Hellir (hellir@simnet.is)
Heimasíða Hellis (www.simnet.is/hellir)