Íslandsmótið í netskák 1998
Haldið á E-FICS: The European Internet Chess Server
Sunnudaginn 22. Nóvember 1998 20:00 - 24:00
English Version
Taflfélagið Hellir gengst fyrir Íslandsmótinu í Netskák sunnudaginn 22.nóvember kl 20:00. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad kerfi, 4 mínútna skákir með 2. sek viðbót við hvern leik. Þetta er í þriðja sinn sem mótið er haldið, en Þráinn Vigfússon varð fyrsti Íslandsmeistarinn (sjá: Úrslit fyrsta mótsins 1996). Núverandi handhafi titilsins er Benedikt Jónasson (sjá: Úrslit mótsins 1997. Mótið fer fram með dálítið óhefðbundnum hætti því að keppendur tefla undir dulnefnum og vita þeir því ekki hvort andstæðingur þeirra er byrjandi eða stórmeistari ! Verðlaun, sem eru farandbikar og verðlaumapeningar, verða veitt í þremur flokkum: Íslandsmeistari, Íslandsmeistari áhugamanna (1800 stig eða minna) og Besti byrjandinn (skákmenn án íslenskra Elo-stiga). Einnig fær Íslandsmeistarinn 10.000 kr vöruúttekt hjá gefanda verðlaunanaa, EJS - Einar J. Skúlason hf. Einnig er hægt að fá aðstöðu til að tefla í Tölvuleigunni, Laugarnesvegi 112. Nauðsynlegt er að panta tíma sem fyrst hjá Arinbirni Gunnarsson, í tölvupósti: tl@itn.is eða í síma: 588 2868. Skák á Internetinu breiðist hratt út og eru að jafnaði yfir eitt þúsund skákmenn hvaðanæva úr heiminum að tafli á vinsælustu skákþjónunum.
Teflt verður á Evrópska skákþjóninum í Árósum.
Þátttökutilkynningar (munið eftir að láta dulnefnið fylgja !) og fyrirspurnir sendist til giggo@samskipti.is (Kristjáns Eðvarðssonar). Þátttakendur fá póst með aðgangsorði til að komast inn á Evrópska þjóninn laugardaginn 21.nóvember.
Mótið er í boði Taflfélagsins Hellis og EJS hf og er því þátttakan ókeypis!
Hægt er að ná í forrit til að tefla á http://rvik.ismennt.is/~asb/netskak.exe eða Heimasíðu CHESSBD
Þegar inn í forritið er komið er farið í ICS möguleikann, EICS-Timeseal Evrópa valinn, sett inn dulnefnið í "login" og svo aðgangsorðið í "password". Næst er gefin skipunin: style 12
Nú ætti allt að ganga vel !
Keppendalisti [14.11.1998] :
Dagskrá mótsins
(Getur auðveldlega breyst!)
20:00 - 20:15 Keppendur gefa tvær skipanir til að skrá sig: + ch 49 og tell mamer join
20:15 Lokað verður fyrir skráningu.
20:15 Mótið byrjar með því að pörun fyrstu umferðar byrtist á skjánum.
20:15 Hvítur gefur eftirfarandi skipun : match 4 2 w
20:15 Svartur svarar með : acc
20:15 - 20:30 1. umferð
20:30 Pörun annarar umferðar byrtist á skjánum.
20:30 Hvítur gefur eftirfarandi skipun : match 4 2 w
20:30 Svartur svarar með : acc
20:30 - 20:45 2. umferð
20:45 - 21:00 3. umferð
21:00 - 21:30 4. umferð
21:30 - 21:45 5. umferð
21:45 - 22:00 6. umferð
22:00 - 22:15 Kaffihlé ef mótið er á áætlun!
22:15 - 22:30 7. umferð
22:30 - 22:45 8. umferð
22:45 - 23:00 9. umferð
23:05 Úrslit mótsins byrtast.
23:30 Úrslit mótsins með raunverulegum nöfnum verða þá komin á eftirfarandi síðu: http://www.simnet.is/hellir/neturslit98.htm
Kristján Eðvarðsson er mótstjóri og er skráður undir "motstjori" á skákþjóninum.
"mamer" er forrit sem parar saman keppendur, heldur utan um úrslit , passar upp á að keppendur tefli með réttum litum og réttum tímamörkum og fleira.
Ef þið þurfið aðstoð þá verður Kristján Eðvarðsson skráður inn undir nafninu "motstjori" og þið getið sent honum orðsendingu með t.d. : tell motstjori Eg er i vanda staddur ! og reynir hann þá að aðstoða eftir bestu getu. Einnig verður Kristján dómari í vafamálum.
Ef þið missið samband skuluð þið "logga" ykkur aftur inn og gefa skipunina: match og þegar andstæðingur ykkar hefur svarað með: acc heldur skákin áfram þar sem frá var horfið!
Nokkrar hagnýtar ábendingar:
Með því að setja : CHESSBD.EXE TOUPS.INI sem "Command line" fær maður flottari menn á skákborðið.
Skipanirnar: draw (jafnteflisboð), resign (uppgjöf), acc (samþykkja) og dec (hafna) geta komið sér vel.
Með því að fara í OPEN á CHESSBD forritinu og velja ICSGAMES.PGN er hægt að skoða allar skákir sem maður hefur teflt með forritinu!
Með skipuninni: tell mamer games sérð þú pörun og úrslit í þeirri umferð sem stendur yfir.
Með skipuninni: ob getur maður fylgst með skákum.
Með skipuninni: whisper getur þú spjallað við þá sem eru að horfa á viðkomandi skák, án þess að teflendurnir verði þess varir.
Með skipuninni: tell mamer standings eða tell mamer grid færð þú upp stöðuna í mótinu.
mamer skipanir
tell mamer help skipanir ?>t.d.: tell mamer help pairings
best -- list top ratings with 5 tourneys
finger -- show info for a player
games -- show list of current games
grid -- show tourney grid
help -- show this help
info -- list or set variables
join -- join tournament
leave -- leave tournament (must be a player in the tourney)
managers -- list possible managers
pairings -- show list of current games
players -- list players and their status
rank -- show player's rank
vars -- list variables
version -- show mamer version
standings -- list current standings
who -- list players and their status
Heimasíða Hellis Chessclub Hellir Homepage