Íslensk hollusta ehf
English
  Vörur
     Krydd
     Sósur
     Baðvörur
     Jurtate
     Snakk
     Rjómaostar
     Berjasaft
     Húðvörur
     Hylki
Eftirtaldar vörur fást á:


Þarakrydd
Stórþari, söl, fjörugrös, marinkjarni og fjallagrös
Jurtirnar eru þurrkaðar og malaðar. Upplýsingar um hverja tegund fyrir sig fylgja kryddpokunum og þar er einnig að finna uppskriftir. Kryddið er gott í brauð, pottrétti, sósur, með fiski og sem dressing með salati. Við hvetjum eindregið til þess að menn prófi sig áfram og spili af fingrum fram með notkun á þarakryddinu. Við höfum bætt fjallagrösum í safnið og höfum hug á að bjóða síðar upp á villisveppi og villijurtate.

Þarasósur
Í þarasósunum er soyasósa, eplaedik, vatn og hvítlaukur, sem er kryddað með þörum og fjallagrösum. Engum aukaefnum er bætt í sósurnar. Stórþarasósan gefur hressandi sjávarbragð og kallar vel fram bragðið í réttunum. Sölvasósan er sterk með ákveðnu sölvabragði fyrir þá sem eru hrifnir af sölum og meira sjávarbragði. Fjallagrasasósan er mildust. Fjallagrösin eru hliðstæða við þara og að mörgu leyti lík þeim. Sósan er laus við sjávarbragðið fyrir þá sem síður vilja það. Fjallagrös þykja mjög holl.

Baðvörur
Baðvörur frá Íslenskri hollustu innihalda salt úr jarðsjó af Reykjanesi og þara úr ómenguðum sjó við strendur Íslands
Um er að ræða hreint Reykjanes jarðsalt sem inniheldur einstaka náttúrulega blöndu steinefna, Þarablöndu án ilm- og litarefna úr Beltis-, stór- og hrossaþara og Jarðsalts- og þarablöndu, sem gefur áhrif saltsins og þaranna saman.

Hollustusnakk
Beltisþari
Hann hefur frá náttúrunnar hendi aðeins sætukeim, frískandi sjávarbragð og er 100% náttúrulegt hollustusnakk. Hann er verkaður við lágan hita og í honum eru engin aukaefni. Hann er stökkur og bráðnar á tungunni.
Stórþari
Stórþarinn frá Íslenskri hollustu er bakaður nógu lengi til að hann verði stökkur og góður að borða hann beint. Hann er því gott snakk en einnig er hægt að nota hann í matargerð.
Heil söl
Söl eru eina tegund þara sem lifað hefur breytingar á matarræði Íslendinga. Sölin voru mikilvægur þáttur í mat hér á landi gegnum aldirnar og sennilegast vinsælasta snakk okkar. Sölin frá Hollustu úr hafinu eru þurrari en þau söl sem mest hafa verið á markaði undanfarin ár og því líkari þeim sölvum sem margir þekkja frá fyrri tíð.

NÁTTHAGI Jurtate
NÁTTHAGI - Jurtate frá Íslenskri hollustu er blandað úr þrem jurtum, sem vaxa villtar hér á landi.: Fjallgrösum, birki og hvönn, sem eru allar víðkunnar fyrir heilsusamleg áhrif og lækningamátt. Engum aukaefnum er bætt í blönduna. Fjallagrös eru nærandi, mýkjandi og örvandi fyrir öndunarfæri og meltingarveg. Þau innihalda andoxunarefni og vinna gegn sýkingu. Birkilauf hafa örvandi áhrif á þvagrásina og eru talin vinna gegn þvagsýrugigt og gigt. Hvönn er notuð gegn magakrampa, vindgangi og brjóstsviða. Hún er orkugefandi og örvar starfsemi á mjaðmagrindarsvæðinu.

Íslensk hollusta ehf | Sími: 561 3064| GSM: 864 4755 | Tölvupóstur