|
Annáll myndavélar í Holtakoti |
||
|
|
Hér verður stiklað á stóru í sögu vefmyndavélar í Holtakoti, nýjustu fréttir eru efst.
31. desember 2011: Veðurstöðin sjálf skemmdist lítið þegar hún féll niður á aðfangadag, fór bara í nokkra parta sem fundust allir að lokum á eða við dyrapallinn.
Hún var sett upp aftur nú fyrir hádegi á Gamlársdag í góðu veðri (þakið þarf helst að vera snjólaust á meðan). Nú notuð sterkari stög á mastrið og betur fest, dugar vonandi fyrir öll veður hér eftir.
25. desember 2011: Veðurstöðin var sett á mastur uppi á íbúðarhúsinu um miðjan október. Mastrið fest við skorsteininn, náði 6m upp fyrir mæni hússins og stagað í 3 áttir.
Eitthvað hefur frágangurinn hjá mér verið lélegur, því mastrið fauk og brotnaði í stormi á aðfangadag, rétt fyrir klukkan 18. Þá mældist vindhraði 30,4m/s, en mastrið hafði áður þolað um 35m/s
2. október 2011: Nú hefur vinnuveitandi minn (VMA) sagt upp samningi um netföng og aðra þjónustu Menntanetsins ismennt.is sem hýst er hjá Skýrr.
Þess vegna verður vefmyndavélin og vefsvæði Holtakots flutt frá ismennt.is til simnet.is
28. september 2011: "Data Logger" og tölvukapall fyrir Davis kom nú í vikunni. Verður prófað um næstu helgi.
15. september 2011: Veðurstöðin hefur verið biluð síðan á miðju sumri. Nú hef ég eignast Davis Vantage Pro2 sem lofar góðu, nema tölvutenging fylgdi ekki með, það er sérbúnaður.
2. apríl 2011: Veðurstöðin virðist nú vera í lagi, seint gekk að finna bilunina, teikningar og upplýsingar um stöðina liggja ekki á lausu og ég gaf mér heldur ekki nægan tíma til að sinna þessu. Aðalstöðin (sú sem hefur skjá, er inni og tengist líka PC-tölvunni) getur hvort heldur sem er fengið upplýsingar frá útiskynjurum þráðlaust eða eftir 4-víra kapli. Hvorugt virkaði, en samt mátti sjá púlsa koma inn í aðalstöðina eftir báðum leiðum, hins vegar komu engar tölur á skjáinn. Strax var augljóst að tengingar úti í garði voru mikið tærðar (bara óvarin símasnúrutengi) en ekkert breyttist við að hreinsa þær. Þráðlausa tengingin virkaði ekki heldur, sama þótt hlutirnir væru hlið við hlið á vinnuborðinu. Leit á veraldarvef gaf allt of margar niðurstöður, lengi vel fannst ekkert bitastætt í þeirri hrúgu, en í lok mars rakst ég á skrif þar sem kom fram að ef einhver af útiskynjurunum er ekki tengdur, eða sendir rangar upplýsingar, þá hætta þeir allir að virka, því aðalstöðin er svo heimskulega forrituð að hún skilur ekki það sem inn kemur nema það sé allt rétt. Þar með fékkst skýringin á því hvers vegna þráðlausa tengingin virkaði ekki á vinnuborðinu, vindmælirinn var enn úti í garði og því ekki í sambandi!! Ég ákvað því að reyna einu sinni enn, tók núna tengistykkin úr útihlutanum og færði það sem leit best út yfir á vindmælinn, þá kom í ljós bilun í prentrás (tæring) undir einu tenginu og eftir að hún var lagfærð virkar allt aftur.
20. mars 2011: Hef verið að svipast um eftir veðurstöð, ætlaði helst að fá aðra WS-3600, en þær eru ekki lengur framleiddar. Þær sem nú fást eru annað hvort nokkuð dýrar eða þær vantar vindmælingar sem duga fyrir íslenskt veður.
6. febrúar 2011: WS-3600 veðurstöðin bilaði 4. febrúar um kl. 20:30, upplýsingar frá úti-skynjurum hættu að birtast, veit ekki hvort bilun er úti eða inni, það koma einhverjir púlsar eftir kaplinum, en stöðin skilur þá ekki.
11. júlí 2010: Gerði við úrkomumæli sem hefur verið bilaður lengi, segulnæmur flöskurofi (reed switch) í vegasalti var hættur að virka, fann annan í gamalli framplötu úr DNG-handfæravindu.
26. október 2009: Í dag var sett upp ADSL-tenging (Fjarskiptasjóðs-háhraðatenging). Línan í kotið reyndist við mælingu flytja um 2,3Mb/s og þótt ég hafi bara beðið um 1Mb/s, þá mælist "download" hraði um og yfir 2mb/s. "Upload" er hins vegar ekki nema um 0,2Mb/s sem er heldur í lægri kantinum.
30. september 2009: Pantaði ADSL-tengingu sem nefnist "GÓÐUR" (1Mb/s og 4GB/mán). Var sagt að nokkur tími gæti liðið þar til hún yrði sett upp.
25. september 2009: Vodafone getur ekki sett upp ADSL á ISDN línur Mílu. 3G tenging er líklega ekki góður kostur því þar er greitt fyrir allt gagnamagn, bæði til og frá kotinu. Veðurstöð og myndavél senda um 50MB/dag, eða 1,5GB á mánuði.
23. september 2009: Fékk bréf um að nú væri verið að setja upp háhraðatengingar á svæðinu og þeir sem pöntuðu tengingu innan mánaðar fengju fría uppsetningu. Þarf að athuga hvort Vodafone getur bætt þessu inn í Og1 samninginn.
26. júlí 2009: Fékk annað Fritz! ferjald sem virkar bara vel, hef ekkert frétt meira um væntanlegar háhraðatengingar.
5. júlí 2009: FritzX! ISDN ferjaldið bilaði 2. júlí, eitthvert meiriháttar skammhlaup sem ekki verður gert við, enda eru nú fleiri tengimöguleikar í boði sem verða skoðaðir á næstu dögum.
26. febrúar 2009: Nú nýlega hefur fjarskiptasjóður samið við Símann um háhraðatengingar til allra landsmanna.
20. febrúar 2009: Um jólin sendi ég höfundi veðurstöðvarforritsins fyrirspurn um takmörkun á vindhraða. Hann brást vel við og uppfærði forritið þannig að nú sést ef vindur/vindhviður fara yfir 30m/s. Staðfesting á því sést í línuritum frá 16. og 17. febrúar.
17. sept. 2008: Síðan veðurstöðin var kapaltengd hafa gögn frá mælitækjum skilað sér villulaust. Hins vegar kom í ljós nú í nótt að hugbúnaðurinn sem sendir upplýsingarnar út á vefinn tekur ekki mark á vindhraða yfir 30m/s, allt sem mælist þar yfir er skráð og teiknað á línurit sem logn!! Það var nú samt ekki beinlínis logn, veðurstöðin sjálf skráði 10mín. meðalvindhraða 39,9m/s klukkan 5:45 og 3sek. vindhviður upp í 47,3m/s skömmu áður, sem er það mesta sem mælst hefur síðan hún var sett upp.
17. júní 2008: Síðustu 6 til 8 vikur hefur verið verulegt vesen með gagnaflutninga og líka símasamband í kotinu. Gagnaflutningshraði lækkar af og til niður í næstum ekkert, miklar truflanir í talsíma og ef hringt er í kotið virðist oft "á tali" þótt enginn sé að nota símann. Þessu fylgir líka að símtalsflutningur í GSM símann minn hættir að virka (á að flytja símtal ef ekki er svarað og ef síminn er á tali). Bilanir þessar koma upp með óreglulegu millibili, allt frá nokkrum mínútum upp í nokkra daga, oftast virðist nóg að láta mæla línuna, þá lagast hún tímabundið, einnig virðist virka vel að taka NT-boxið úr sambandi og hringja svo í númerið, en til þess þarf einhver að vera á staðnum. Ég skrapp til Kína með rafkennurum í byrjun júní og að sjálfsögðu var línan biluð frá því ég lagði af stað þar til ég kom aftur heim (31. maí til 15. júní) og hefur síðustu 2 daga dottið út a. m. k. 3 sinnum. Þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir hefur engin breyting orðið og þetta er enn "opið mál" hjá 8007000 og/eða Mílu.
7. apríl 2008: Undanfarna daga hefur þráðlausa sambandið frá mælitækjum sem eru úti ekki virkað neitt, sama hvernig ég brasa við það. Í dag gafst ég loks upp og fann 30m langan kapal, henti honum ofan á snjóinn og fasttengdi draslið, vonandi gengur það betur þannig. Verð svo að bíða eftir vorinu til að grafa kapalinn.
28. mars 2008: Eftir að "Mouse & Key Recorder" var settur í málið hafa upplýsingar frá veðurstöð skilað sér nokkuð vel, hins vegar hafa myndir ekki komist til skila nema svona 90%. Svo hafa aðrar bilanir verið til smá vandræða, ISDN-mótaldið í tölvunni á Akureyri fór að virka óreglulega um mánaðarmót febrúar-mars og var því skipt út með gömlu usb-ISDN mótaldi sem hefur virkað vel. Í gær kom upp bilun á símalínu rétt fyrir kl. 18:00, línan komst í lag eftir stutt símtal við 8007000 rétt eftir kl. 8:00 í morgun, en datt svo út aftur kl. 21:30 í kvöld. Mæling á línunni gefur til kynna bilun og málið var sent til fjarskiptanets til frekari skoðunar og lagfæringar, en gæti tekið 1-3 daga samkv. vinnureglum.
6. febrúar 2008: Ætlunin var að keyra myndavélina bara meðan bjart er og senda myndir á sama tíma og veðurstöðin sendir sínar upplýsingar (sem er á 5 mín. fresti), en það vill ekki að ganga andskotalaust. Í fyrsta lagi; Tölvu dótið veit ekkert hvenær er bjart. Í annan stað; myndavélarforritið kann ekki á klukku, það getur bara beðið í tilsettan tíma milli gagnasendinga, en þær taka mismunandi langan tíma svo það ruglast svo til strax í ríminu. Í þriðja lagi; Veðurstöðin rýfur alltaf internettenginguna þegar hún hefur lokið sér af, án tillits til þess hvort einhver annar FTP-aðili er að nota hana. Fjórða vandamál; þegar myndavélarforritið fer í gang, þá eru um 20% líkur á að það finni ekki myndavélina, þá dugir ekkert minna en að slökkva alveg á öllu draslinu (POWER OFF) og keyra upp aftur. Sem sagt; til að þetta gangi þarf helst einhver að sitja við tölvuna og ýta á takka á réttum tíma!!! Eftir nokkra leit þá fannst ódýr starfskraftur í þetta verkefni, sá heitir "Mouse & Key Recorder" og er dálítið forrit sem kann að þykjast ýta á takka á réttum stað á réttum tíma. Þetta grey vinnur nú eftir áætlun og hermir með 5 mín millibili eftir því að ég ýtti á START, Internet Explorer, CaptureMAX, Upload Now, stop IE. Tilgangurinn með að ræsa IE er bara sá að koma á internettengingu og halda henni í friði meðan bæði veðurstöðin og myndavélin klára sinn gagnaflutning. Tölvan sem sér um þetta virðist náttúrulega andsetin, músarbendillinn hendist útum allt með stuttu millibili og gluggar koma og fara. Þetta verður prófað fyrst um sinn, en upplýsingar um birtutíma verður að setja inn handvirkt.
4. febrúar 2008: Símabilunin sem sagt var frá 6. janúar var upphaflega í Bjarmastíg, en hún hefur trúlega lagast við fyrstu mælingu, en næstum því samtímis og það komst í lag þá bilaði línan í Holtakoti, bæði talsími og netsamband og það tók nokkra daga fyrir mig og símamenn að átta okkur á því þeir voru alltaf að reyna að gera við í Bjarmastíg!! Í framhaldinu kom ég mér upp betri bilanagreiningu svo nú er fremur auðvelt að prófa hvor endinn klikkar.
6. janúar 2008: Hmm, það er orðið nokkuð langt frá síðustu færslu hér, sennilega vegna þess að allt hefur gengið vandræðalítið, hér er nefnilega varla skrifað um neitt nema það sem miður fer. Árið 2007 var sem sé tíðindalítið hvað varðar tæknimál og viðskipti mín við fjarskiptafyrirtæki. ISDN-línan í kotinu fraus reyndar 18. júni og komst ekki í lag fyrr en ég kom frá Ameríku þann 22. júní. Aftur hikstaði sambandið í september. Í bæði skiptin komst það í lag við það að þjónustuver Símans "mældi" línurnar án þess að finna nokkuð mikið að. Í júlí eignaðist ég veðurstöð og kom henni fyrir í garðinum, vindmæli á 10m hárri súlu og hita + rakamæli í 2m hæð yfir jörð. Ekkert gekk samt að koma upplýsingum frá stöðinni inn á netið og tókst ekki fyrr en ég skipti um tölvu núna um áramótin. Þá kom í ljós að ég, vefmyndavélin og veðurstöðin eru ekki sammála um hver á að ráða hvenær símtali lýkur. Ég vil ekki hafa línuna í samfelldri notkun, en annað hvort vilja þær báðar hafa símalínuna opna alltaf, eða báðar leggja á, án tillits til þess hvort hin hefur lokið sér af! Reyndar held ég að lausn sé fundin, en tókst ekki að prófa hana nema í svona 20 mínútur þann 4. janúar, því þá bilaði símasambandið! Ég hélt fyrst að það væri bilun í Holtakoti og fór þangað, en þá kom í ljós að bilunin var á hinum endanum. Við það situr, því mér tókst ekki að fá þjónustuver Símans til að framkvæma alvöru mælingu á línunni í Bjarmastíg fyrir lok vinnu föstudaginn 4. janúar. Sjáum til eftir helgina.
18. júlí 2006: Mér datt í hug að skoða símareikninga mína á þjónustuvef Símans í morgun. Þar var flest eins og við mátti búast, nema nú var gjaldfært fyrir "fasta IP-tölu" fyrir holtakot@simnet.is. Þetta er að sjálfsögðu komið á reikning og verður gjaldfært á VISA-kortið eins og aðrar vitleysur þessa fyrirtækis. Þjónustuverja í 8007000 upplýsti að Leifur hefði hringt úr mínum síma og beðið um þetta 11. maí. Ég kannaðist ekki við neinn Leif sem gæti hafa gert það. Nákvæmlega hvaða símanúmer Leifur notaði var ekki hægt að sjá. Ég bað um að fá þetta endurgreitt, en þá vildi stúlkan vita hvort ég þekkti ekki þennan Leif og hvort ekki gæti verið að hann hefði hringt fyrir mína hönd! Til að gera langa sögu stutta, þá lauk samtalinu með því að hún sagðist senda beiðni um endurgreiðslu, en ég skyldi ekki búast við henni á næsta reikningi. Eftir hádegið fór ég svo á afgreiðslu Símans hf. á Akureyri og sagði upp nettengingu og póstfangi holtakot@simnet.is. P. S. Samkvæmt sundurliðun símtala á þjónustuvefnum, þá var ekkert hringt úr neinum af mínum símum þann 11. maí.
9. júlí 2006: Hef ekkert heyrt um kostnað við leigulínu ennþá, þarf þess varla úr þessu, því það gengur bærilega með gagnaflutning á ISDN milli eigin heimasíma á taxta Og1 hjá OgVodafone (kostar 0 kr.). Reyndar er þessi aðferð ekki alveg ókeypis, það kostar svolítið meira en venjulegur heimasími að hafa ISDN með aukanúmeri og tölvu sem gengur stöðugt. Hressti loks aðeins upp á útlit og skipulag forsíðunnar.
16. júní 2006: Undanfarnar vikur hef ég leitað leiða til að koma aftur á nothæfu netsambandi hér í kotinu. Eftir að ég gaf ISDN-plús upp á bátinn þá hef ég af og til notast við venjulegt ISDN upphringisamband og greitt fyrir það mínútuverð eins og það kostar. Myndavélina er ókleift að tengja með þeim hætti, ef sendar væru myndir á 5mín. fresti eins og gert var þegar sítengingin ISDN-plús var notuð, þá kæmi það til með að kosta 60 til 80þúsund kr. á mánuði!! Ég hef spurst fyrir um þráðlausar nettengingar; WiFi (E-Max) eða WiMax (Síminn) en ekkert slíkt virðist í boði fyrr en einhvern tíma seinna. Ég sendi líka fyrirspurn um verð á leigulínu frá Akureyri til Holtakots til fyrirtækjaþjónustu Símans fyrir 10 vikum eða svo og hef ítrekaði hana mánaðarlega. Ekki hefur enn tekist að reikna út hve mikið slík lína kostar, kannsli það sé svo dýrt að ekki finnist reiknivél með nógu mörgum stöfum á skjánum? Í lok maí flutti ég síma- og net-viðskipti mín til OgVodafone. Og1-tilboðið (ADSL+GSM+heimasími) gæti komið vel út, það á að vera alveg frítt milli heimasíma, allavega ætlaði ég að prófa að senda gögn úr kotinu í heimasímann minn á Akureyri og þaðan með ADSL-tengingunni. Fyrst gekk illa að fá þessa hugmynd til að virka, gamla Aethra-ferjaldið var ekkert nema þvermóðskan, en með nýju (gömlu!) ISDN módemi sem sett var í Akureyrartölvuna í kvöld þá gengur þessi tenging fljótt á litið bara vel.
28. apríl 2006: Nú hefur ISDN-plús verið sambandslaust í 10 sólarhringa í þetta sinn. Þá eru búnir 118 dagar af árinu og þar af 62 sólahringar án sambands. Ég spurði þjónustuver nú í vikunni, enn og aftur hvort ég mætti nota venjulegt ISDN upphringisamband, en semja um fyrirfram að fá fellt niður upphafsgjald hringinga eins og gert er með ISDN-plús. Þjónustufulltrúi spurðist fyrir og kom eftir stutta stund aftur með svarið: "NEI, það er því miður ekki hægt". Jæja, þá er það komið á hreint. Ég hringdi í verkstjóra á Húsavík sem gat ekki gefið mér neina sérstaka von um að hægt væri að gera við á næstunni. Ég fór því núna áðan og sagði skriflega upp þessari tengingu með öllu sem henni fylgir. Þar með sparast nokkrar krónur sem hægt er að nota með öðrum hætti. Svo fór ég að bera saman þá þjónustu sem ég hef fengið og þá þjónustu sem ég hef greitt fyrir. Nú eru liðnir 4 mánuðir af árinu. þar af hefur ISDN plús virkað í tæpa 2 mánuði. Ég hef greitt á hverjum mánuði kr. 590 fyrir línuna og kr. 1.320 mánaðargjald fyrir internetáskrift ISDN Plús 200 MB vegna holtakot2@simnet.is. Meðan bilunin var í febrúar og mars þá notaði ég venjulegt ISDN lítið eitt. Síminn hf. hefur vegna bilana endurgreitt 2x590 vegna línu með D-rás og 2.106 + 2.180 vegna upphafsgjalda á hringingum. Það er þakkarvert. Hins vegar hefur ekkert verið fellt niður fyrir internetáskriftina sjálfa holtakot2@simnet.is. Sú áskrift var eingöngu til vegna ISDN-plús og ég notaði hvorki vefsvæðið né póstfangið nema til að taka við upplýsingum frá Símanum hf. um gagnanotkun á tengingunni, sem er ekki mjög brýnt meðan ekkert samband er. Vissulega nota ég vefsvæði hjá Símanum en það tilheyrir holtakot@simnet.is sem er hin internetáskriftin sem ég hef haft hjá þessu fyrirtæki. Ég hafði því samband við þjónustuverið og fór fram á að fá endurgreitt tvo mánuði af mánaðargjaldi internetáskrift ISDN Plús 200 MB, alls 2.640. Endurgreiðsla var ófáanleg, en mér var að lokum boðin fríáskrift í einn mánuð. Lítið upp úr því að hafa fyrir mig; í fyrsta lagi er tengingin biluð núna svo fríáskrift er í mesta lagi bætur fyrir núverandi bilun, en ekki bætur fyrir febrúar-mars sem ég greiddi en hafði lítil not af og öðru lagi er ég búinn að segja upp tengingunni svo fríáskrift hefur af þeim sökum engan tilgang!!!
18. apríl 2006: Jæja, þá klikkaði gagnaflutningur um D-rás eina ferðina enn, búinn að tilkynna bilun til 8007000. Nú er bara að bíða og sjá hve langan tíma tekur að koma þessu í lag.
28. mars 2006: Nú seinnipartinn í dag komu símamenn og byrjuðu á að laga eitthvað til í símstöð á Hrútey.
Við þá aðgerð tengdi tölvan sig strax inn á netið með gamla FritzX! ferjaldinu. Næst komu þeir færandi hendi í Holtakot og settu upp annan "router" hér í kotinu og FritzX! fékk frí, a. m. k. um stundarsakir. Þetta apparat er Virtual Access Service Managed Gateway Model GW4205-SE-50 og dauðvirkar, ég er að vísu byrjaður að fikta í uppsetningu hans, stillti þröskuldsgildi D-B1 dálítið upp, svo maður veit svo sem ekki hve lengi þetta verður í lagi :-). Ég á svo líka eftir að finna út hvernig ég tengi ISDN-símann, rafstöðina, raforkumælinn og síðast en ekki síst alla hina símana, sem ég svara reyndar aldrei í!!, eftir að þessi búnaður var settur upp.
24. mars 2006: Heimsókn tæknimanna með mælitæki frestað a. m. k. til næsta miðvikudags (30. mars).
26. febrúar 2006: ISDN-plús hefur verið óvirkt síðan 5. febrúar.
6. febrúar 2006: Þann 5/2 2006, klukkan 13:30 eða þar um bil, hætti ISDN-plús að virka.
Talaði áðan við ágæta konu í 800 7000 og við fórum í gegnum enduruppsetningu á nettengingunni án árangurs.
1. febrúar 2006: Það var víst einhver misskilningur að VMA hefði sagt upp samningi við Íslenska menntanetið,
ég borgaði reyndar í sumar um 2000kr fyrir að halda netfanginu mínu thorh@ismennt.is en komst seinna að því að það hefði verið óþarfi því aðeins var um endurskoðun á samningi að ræða en ekki uppsögn.
19. desember 2005: Nú hefur aftur komist á samband eftir 10 daga bilun í ISDN-plús nettengingunni. Fyrst tók 1 eða 2 daga að koma þeim hjá 800-7000 í skilning um að bilunin væri ekki í tölvunni hjá mér, svo tók nokkra daga í viðbót að keyra frá Húsavík og færa tengingar í símstöðinni hér á Hrútey. Í millitíðinni tók ég saman hvernig þetta hefur gengið á árinu.
Ég nota forrit (KeepRAS) til að vakta tenginguna og endurtengja ef hún dettur út, sem gerðist 62 sinnum fyrstu 11 mánuði ársins 2005 í samtals um 124klst, samkvæmt skráningu KeepRAS, og svo til viðbótar rúmar 230 klst frá 9.-19. desember 2005.
10. júlí 2005: Nú verður vefmyndavélin og vefsvæði Holtakots flutt frá ismennt.is til simnet.is vegna þess að vinnuveitandi minn, Verkmenntaskólinn á Akureyri, hefur sagt upp samningi sínum við Íslenska menntanetið (ísmennt) svo ég hef ekki lengur tölvupóst og vefsvæði þar, nema borga fyrir það sjálfur. Það finnst mér alger óþarfi því að með ISDN-plús aðganginum hér í kotinu fylgja a.m.k. 3 netföng og 50MB heimasíðupláss sem ég hef bara ekki notað fyrr en núna.
9. júlí 2005: ISDN-plús nettengingin hefur gengið eins og vel stillt klukka síðan í september 2004. Grunur leikur á að þá hafi símamenn fundið og drepið einhverja pöddu sem gekk laus í kerfinu, a. m. k. gerði ég ekkert. Reyndar slitnar sambandið af og til ennþá, en það kemst alltaf á aftur vandræðalítið.
27. maí 2004: Klukka myndatökutölvu stillt á réttan tíma. Síðan 8. janúar hefur klukka tölvunnar hér í kotinu verið 2 klukkustundir á undan flestum landsins klukkum. Þetta var gert til að skoða hvort ISDN-Plús sambandsslit sem verða um klukkan 2:30 færu eftir tíma í tölvunni hér eða tíma í kerfi Símans. Mér sýnist nú fullreynt að það er ekki minn tími sem gildir, síðan 8. janúar hafa verið skráð milli 15 og 20 sambandsslit klukkan 2:30 sem ekki er hægt að endurtengja nema slökkva og kveikja á tölvunni. Þessi sambandsslit sem verða klukkan 2:30 eru sérlega illvíg að því leyti að ekki er hægt að láta stýrikerfið (WinXP Pro) endurræsa, það frýs í miðju kafi með "Saving Your Settings" á sjánum. Þegar samband fer af á öðrum tímum, þá tekst lang oftast að endurtengja tafarlaust án þess að endurræsa vélina.
29. janúar 2004: Fékk annað ferjald í stað þess sem bilaði.
24. janúar 2004: ISDN-plús netsamband enn óvirkt. Símamenn sem komu í vikunni höfðu ekki búnað til að umgangast ítalska Aethra ferjaldið sem ég er að nota núna meðan Fritz!X ferjaldið er í viðgerð. Það er ekki komið til baka frá verkstæði innflytjandans og þeir gátu ekki gefið upplýsingar um það í gær hvernig viðgerð gengi eða hvort ég fengi annað.
22. janúar 2004: ISDN-plús netsamband enn óvirkt, nú er búin a. m. k. 1 vika síðan sambandið hætti að virka. Símamenn hafa komið og skoðað málið, en án árangurs.
19. janúar 2004: ISDN-plús netsamband enn óvirkt.
17. janúar 2004: Settur upp snjódýptarmælir; það sést hvort sem nánast ekkert annað á myndum núna en skaflinn fyrir utan gluggann. Merkin á stönginni eru í 2m 2,2m og 2,4m hæð frá jörðu..
17. janúar 2004: Tölvan reyndist ekki mikið biluð og komst á sinn stað kvöldið 15. janúar, þegar Víkurskarð var orðið fært. Þá kom hins vegar í ljós að nýja Fritz!X ferjaldið var bilað þannig að hvorki virkaði talsími né tölvusmband. Gamla Aethra ferjaldið var því tengt aftur. Ekki var samt allt búið, ISDN-plús virkaði ekki og ekki heldur venjulegt ISDN hjá simnet.is og það var orðið of áliðið til að fá hjálp hjá þjónustulínu simnet, hún sefur frá 21:00- 9:00. Í gær náði ég sambandi (eftir nokkuð langa bið) við mann á þeirri línu sem sá ekkert að og gat vandræðalaust loggað sig inn sem holtakot@simnet.is þar sem hann var á landinu. Hins vegar lagaðist ekkert hér og þá gaf hann mér samband við bilanir sem mældu línuna og sáu heldur ekkert að! Að þessu loknu var reyndar hægt að komast inn sem venjulegur 64k eða 128k ISDN notandi (og borga fyrir eins og það kostar) en ISDN-plús hefur ekki lagast. Það á að athuga í næstu viku skilst mér.
14. janúar 2004: Tölvan sem vakir yfir kotinu bilaði klukkan 21:30 á sunnudagskvöld 11. janúar.
8. janúar 2004: Nú á að reyna að finna út hvort 2:30 er minn tími eða tími annarra íslendinga.
Klukkan hérna í kotinu er núna stillt á super-sumar tíma, það er 2 klst
á undan þeim tíma sem er annars staðar á Íslandi og hér hefur jú verið
stöðugur sumartími (+1klst) í aldarfjórðung minnir mig!!
Tímasetning á myndum verður því skökk um 2 klukkustundir meðan tilraunin stendur yfir.
4. janúar 2004: Ekki þurfti að bíða lengi eftir að prófa endurræsingarbúnaðinn, sambandið rofnaði um kl 2:30 í nótt, (síðasta mynd kl. 2:22) eftir u. þ. b. 20 mínútur ákvað ég að hringja í tölvuna og 10 mín. síðar var hún komin í samband aftur.
2-3. janúar 2004: Sambandsslitið 1. jan. hafði í för með sér að myndavélarforritið fraus líka, það hefur annars ekki gerst hingað til. Í kvöld var smíðaður og settur upp einfaldur endurræsingarbúnaður sem hægt er að hringja í, það er stundum fljótlegra og þægilegra en að fara á staðinn og ýta á RESET á sjálfri tölvunni. Nú er bara að bíða og sjá til hvort það dugir þegar sambandið fellur niður næst, varla þarf að bíða lengi.
1. janúar 2004: Á nýársnótt datt sambandið út um kl. 2:30 eins og oft hefur gerst áður.
30. desember 2003: Lítið hefur í raun breyst varðandi áreiðanleika netsambandsins, Þegar sambandið dettur út, þá hætta gagnaflutningar, en staða tengingarinnar er samt "connected" svo stýrikerfið og forrit sem eiga að halda nettengingum lifandi átta sig ekki á að neitt sé að. Eitt lítið forrit, "keepRAS.exe" virtist þó geta haldið uppi eftirliti með því að senda "ping" á valda netþjóna og rjúfa tengingu og endurtengja ef enginn þeirra svaraði. Þetta virkaði og gerði það sem þurfti í rúmlega einn sólarhring, en um kl. 2:30 þá gerðist eitthvað þannig að ekki tókst að framkvæma "disconnect" og í framhaldi af því þurfti eins og oftast áður að slökkva alveg á tölvunni, "shutdown" frýs með "saving your settings" skjáinn uppi.
7. desember 2003: Nú nýlega var skipt um ferjald fyrir síma og nettengingu.
29. nóvember 2003: Undanfarna viku var ekkert símasamband í kotinu. Um kl. 20:45 sunnudaginn 23. nóv hætti ISDN-plús að virka, en það er nú svo sem ekkert óvenjulegt :(. Daginn eftir varð svo einhver önnur bilun þannig að síminn datt alveg úr sambandi. Þegar þetta er skrifað laugardag 29. nóv. er líklega búið að gera við símabilunina, en tölvan hefur samt ekki náð sambandi ennþá.
7. maí 2003: Aftengdi símalínu og NT-box nú í kvöld, samband komst í lag.
25. apríl 2003: Ekkert varð af hugbúnaðaruppfærslu, ISDN-plús fór úr sambandi eina ferðina enn rétt eftir að starfsmenn símnets fóru í páskafrí kl. 19 á laugardeginum. Þar með var sambandslaust í kotinu alla páskana, eins og reyndar öll jólin,
18. apríl 2003: Hugbúnaðaruppfærsla: Hætt að nota CoffeCup Webcam 3.0, þróun þess hefur engin verið og möguleikar takmarkaðir.
Myndir hætta að berast 13.04.03 kl. 4:57
29. mars 2003: ftp-flutningur til ismennt.is hættir að virka 29. mars kl. 17:00,
27. mars 2003: Samband ISDN-plús kemst á aftur.
25. mars 2003: Nú fór sambandið af ISDN-plús laugardaginn 22. mars vegna bilunar í símstöð á Akureyri.
13. mars 2003: 5. nóvember 2002 - hraðspólun.
17. febrúar 2003: Veður og færð.
14. febrúar 2003:
Nú komst internettengingin í lag rétt fyrir hádegi,
6. febrúar 2003:
Eins og fastagestir síðunnar hafa séð, þá eru enn einhver vandræði með ISDN-plús,
26. janúar 2003:
Klukkan 17:30 var sett upp 10W snjóbræðsluelement utan við gluggann
20. janúar 2003:
Þar kom að því; truflanirnar undanfarna daga voru vegna þess að
19. janúar 2003:
Var varla búinn að skrifa þetta hérna neðan við, þegar eitthvert vesen
13. janúar 2003:
Milli jóla og nýárs uppfærðu símamenn hugbúnað sinn fyrir ISDN-PLÚS,
23. desember 2002:
Undanfarna daga hefur ISDN-PLÚS tengingin verið sambandslaus.
21. Október 2002:
Harði diskurinn sem nýja vefhönnunin var geymd á hættir að virka.
20. Október 2002:
Byrjað að hressa upp á vefinn í tilefni af betri nettengingu.
18. Október 2002:
Gamla myndavélin sett upp í vesturglugganum og ISDN-plús tengingin
17. Október2002:
Undanfarna daga hefur verið unnið að því að koma Holtakoti í samband
Október 2002: Sótt um ISDN-plús áskrift hjá símanum-internet (holtakot@simnet.is),
internettengingin virkar ekki (það er að segja plús parturinn
September 2002: ISDN
stöð sett upp á Hrútey um 1km frá kotinu. Símaáskrift breytt
11. ágúst 2002: Yfirlitsmynd af þaki Holtakots.
Júlí 2002:
Tímarofinn bilar og tölvan grípur tækifærið til að tala í 72 klukkustundir samfleytt!!.
10. Júní 2002: Sótt um ISDN-plús sítengingu og keyptur búnaður til þess á tilboði hjá
Janúar 2002: Myndavélin í Holtakoti er nú kominn hér á vefþjón hjá Ísmennt,
Janúar 2002: Gamla myndavélin sett upp aftur eftir nokkurt hlé,
Nóvember 2001: Harði diskur tölvunnar bilar og allt myndasafnið glatast.
Júní 2001: Vél sett upp aftur.
Keypt önnur myndavél, Creative WebCam III USB, með hærri upplausn.
Janúar 2001: Kotið leigt út og vélin tekin niður
Desember 2000: Í ljós kemur að ekki er hægt að treysta tölvunni
Nóvember 2000: Vélin sett upp í vesturglugga stofu í Holtakoti
Október 2000: Keypt Creative Web
Cam II á tilboðsverði hjá BT. Vélin tengist prentaratenginu
(parallel-port) sem þykir nokkuð gamaldags aðferð.
|