Lord of the Rings

Three
Rings for the Elven-kings under the sky,
Seven for the Dwarf-lords in their halls of stone,
Nine for Mortal Men doomed to die,
One for the Dark Lord on his dark throne
In the Land of Mordor where the Shadows lie.
One Ring to rule them all. One Ring to find them,
One Ring to bring them all and in the darkness bind them
In the Land of Mordor where the Shadows lie.
Lord of the Rings kom fyrst út árið 1949. Aðdáendur Hobbitans höfðu þá fengið að bíða í 12 ár.
Þetta er löng saga í 3 bindum sem af mörgum er talin vera eitt besta bókmenntaverk aldarinnar.
Hér er kynntur Frodo sonur Drogo, sem Bilbó
ættleiddi. Þegar sagan byrjar er Frodo að verða 33 ára en Bilbó 111 ára; þeir
áttu sama æfmælisdag. Ákveða þeir þá að efna til stórafmælis, þar sem gestir
úr öllu Héraði komu og jafnvel víðar, því Gandalfur og nokkrir
dvergar komu einnig. Í miðri veislunni hverfur Bilbó þó allt í einu. Hafði
hann þá sett upp dularfulla hringinn sinn sem hann fann í fyrsta ævintýri
sínu og fæstir vissu af. Ástæðan fyrir þessu var að Bilbó var orðinn leiður
á vistinni á Héraði og langaði til þess að ferðast um heiminn á ný. Þetta
hvarf hans var því skipulagt af honum og Gandalfi.
Þegar Bilbó fer, arfleiðir hann Frodo, fósturson sinn að öllum eignum sínum, þar með talið hringnum sínum og leggur á stað í síðasta ævintýrið sitt.
Níu
árum síðar skýtur Gandalfur upp kolli sínum á ný á Héraði. Fer hann og heimsækir
þá Frodoí Baggabotni og segir hann honum sögu hins dularfulla hrings. Kemur
í ljós þá að hringur þessi var búinn til af Myrkradróttni sjálfum og ræður
hann yfir gífurlega miklum mætti. Þetta verður til þess að Frodoleggur á stað
í hættulegustu ferð sem að hobbiti hefur nokkurn tímann farið í, ásamt 3 félögum
sínum og er áfangastaðurinn Rivendell
þar sem Elrond hinn vitri
hálfálfur ræður húsum. Ferðafélagar Frodo eru Samwise Gamgee, garðyrkjumaður
Frodoa, Peregrin sonur Paladins eða einfaldlega Pípinn og Meriadoc eða Merry.
Þetta líkist ferð Bilbós í fyrstu en raunin verður allt önnur. Á veg hobbitanna verða margar furðulegar verur. Í fyrstu mæta þeir svartri veru ríðandi svörtum hesti er þeir halda fyrst að sé Gandalfur, strax í upphafi ferðar. Annað kemur þó í ljós og neyðast þeir til þess að fela sig í snatri fyrir veru þessari. Næst mæta þeir álfum nokkrum sem eru á leið yfir hafið mikla til hins blessaða Amanslands. Þeir spyrja hina söngglöðu álfa út í þessa furðuveru en bregður þá álfunum mjög í brún og þora ekki að svara.
Hobbitarnir halda áfram, gista eina nótt hjá Maggot sveppabónda, halda svo yfir ána ánaog loks inn í hinn dularfulla og stórhættulega skóg er nefnist Forni Skógur, þrátt fyrir ótal viðvaranir. Þeim tekst þó að sleppa út úr skóginum þökk sé Tom Bombadilog komast útfyrir Hérað og inn í Bree-bæ þar sem menn, hobbitar og dvergar búa í sátt og samlyndi.
Enn bolar ekkert á Gandalfi og eru hobbitarnir orðnir mjög áhyggjufullir. Sem betur fer hitta þeir þá dularfullan mann sem gengur undir nafninu Strider og og er vinur Gandalfs. Seinna segir hann þeim hið rétta nafn sitt sem er Aragorn Araþornsson, nafn sem er mun mikilvægara en þeir geta ímyndað sér.
Þökk sé honum geta þeir haldið áfram til Rivendell. Þá byrja þeir að taka eftir því að svarta veran sem þeir sáu fyrst á Héraði er komin aftur og í þetta sinn er hún í fleirtölu. Einhverra hluta vegna eru þessir s.k Svörtu Riddarar að elta Hobbitana og er Frodo farið að gruna hvers vegna. Er hópurinn er kominn hálfa leið til Rivendell, ráðast hinir Svörtu Riddarar á þá. Þeir ná þó að hrekja þá burt en Frodo særist. Verður það hið mesta basl að koma honum til Rivendell og hefði þeim sennilega aldrei tekist það ef Glorfindill hefði ekki seinna komið til sögunnar.
Með
Frodo nær dauða en lífi, tekst hópnum að halda áfram og koma þeir inn í skóg
einn sem er sami skógur og Bilbó hitti tröllin í, á sínum tíma. Bregður þeim
þá fyrst mjög í brún er þeir sjá einmitt 3 risastór tröll standandi á skógarstígnum.
Í ljós kemur að þetta eru einmitt hin sömu tröll og Bilbó hitti, eini munurinn
er að þessi eru orðin að steini rétt eins og gerðist í
Hobbitanum þegar Gandalfur
plataði tröllin þannig að dagsbirtan náði að skína á þau.
Þegar Glorfindill hittir þá í skóginum lánar hann Frodo hestinn sinn sem sér til þess að Frodo kemst heill á húfi til Rofadals. Það hefði þó ekki mátt seinna vera því Svörtu Riddararnir ráðast aftur á hópinn og einblína nú á Frodo og vilja fyrir allan mun ná honum.
Er hópurinn loks kemst til Rivendell hitta þeir Gandalf og Bilbó, Frodo til mikillar gleði. Næst er haldin mikil ráðstefna þar sem ráðgert er um hvað gert verði við hinn hættulega hring. Á ráðstefnunni eru saman komnir fulltrúar Álfa, Dverga, Manna og Hobbita auk Gandalfs og Elronds. Af fulltrúum Álfa er mikilvægast að nefna Glorfindil, Legolas og Galdór, fulltrúar Dverga eru Glóin (félagi Bilbós gamla) og Gimli, sonur Glóins ásamt nokkrum öðrum, Bilbó og Frodo eru fulltrúar Hobbita en Aragorn og Boromír fyrir Menn. Boromír er maður úr suðrinu frá hinu mikla mannaveldi Gondor. Eftir mikil fundarhöld kemst ráðið að niðurstöðu. Stofnað skal föruneyti Hringsins en takmark föruneytisins á að vera að koma hringnum til eldfjallsins Dómsdyngju en það er eini möguleikinn til þess að tortíma hringnum. Því miður vill svo til að Dómsdyngja liggur inn í miðju landi Mordor þar sem Myrkradróttinn ríkir og er að hefja sínar fyrstu ráðagerðir.
Í föruneytinu verður Hringberinn Frodo, Gandalfur, Aragorn, Legolas,
Gimli, Boromír og svo Hobbitarnir þrír Sam, Merry og Pípinn.
Halda skal af stað strax en tíminn er naumur. Stríðið er hafið!
Á vegi föruneytisins verða mörg ævintýri og koma þeir við á mörgum stöðum. Þar á meðal er hið fagra Álfaland Lotlóríen, hinar dimmu námur Moría, sléttur Edóras, hið mikla fljót Anduin, Róhansléttur, dularfulli skógurinn Fangorn, Vitkadalurinn í Ísarngerði, Hjálmsdýpi, land manna í Gondor og síðast en ekki síst hið dimma og drungalega land Mordor.
Lord of the Rings kom út í góðri þýðingu Þorsteins Thorarensen árið 1993 hjá Fjölva sem Hringadróttinssaga.
Myndir á síðu þessari eru eftir listamennina John Howe og Ted Nasmith. Á Rolozo Tolkien Gallery er hægt að sjá fleiri myndir eftir þá.

A Elbereth Gilthoniel, Silivren penna míriel
o menel aglar elenath! Na-chaered palan-díriel
o galadhremmin ennorath, Fanuilos, le linnathon
Nef aear, sí nef aearon!