J.R.R. Tolkien

The Hobbit

The Lord of the Rings

The Silmarillion

Tolkien & Eddan

.......................................

Kvikmyndatrílógían

FOTR | TTT | ROTK

Myndasafn & Trailerar

DVD-útgáfur

.......................................

Hafðu samband

 

Sumar

ROTK á DVD og vídeó

Nóvember

ROTK: Extended Edition á DVD og vídeó

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




 

ROTK á DVD at May 23, 2004 19:38:39 af Vefstjóri

Byrjað er að selja Return of the King á DVD á nokkrum stöðum nú þegar en almennur útgáfudagur er 25. maí hér heima.
Ég fann ROTK í 2001 á Hverfisgötunni og svo sá ég hana líka í ELKO (að vísu með dönskum titli, Ringenes herre).

Lengri útgáfan er sem fyrr áætluð að koma í nóvember.

DVD upplýsingar at Apr 29, 2004 19:50:58 af Vefstjóri

Jæja, loksins smá upplýsingar um komandi DVD útgáfur.

25. maí kemur Return of the King út á DVD í heiminum og væntanlega á mjög svipuðum tíma hér á landi.
Ekki er komin útgáfudagur lengri útgáfunnar en nóvember verður sennilega eins og verið hefur. Ekki fyrr, alla vega.

Hérna er svo mjög gott viðtal við mann innan New Line Cinema sem svarar ýmsum spurningum varðandi DVD útgáfurnar. Sérstaklega er áhugavert það sem sagt er um lengri útgáfuna.
Sjá hér

Framtíð þessa vefs at Apr 9, 2004 14:36:38 af Vefstjóri

Eins og þið sjáið hefur vefurinn verið dauður núna í mánuð. Ástæðan er náttúrulega sú að það er ekkert að gerast. Það er búið að frumsýna allar þrjár myndirnar í seríunni, verðlaunaafhendingar eru búnar og það eina sem stendur eftir er útgáfa síðustu myndarinnar á DVD.

Í rauninni er ekki hægt lengur að halda úti þessum vef í sama stíl og hann hefur verið. Það þarf einfaldlega eitthvað að vera framundan til þess að það geti verið spennandi að líta við hér reglulega.

Þessi vefur er orðinn 3 ára gamall, ég er búinn að halda honum við í 3 ár sem er meira en hægt er að segja um marga aðra einstaklingsvefi. Það verður að viðurkennast að ég er orðinn hundleiður á þessu. Þetta er mikil vinna og ég er eiginlega hálf feginn að ég hafi núna afsökun til þess að hætta.
Þetta þýðir þó ekki að ég ætli að leggja niður vefinn. Hins vegar verður hann að breyta um form. Ég get einfaldlega ekki uppfært hann nærri eins reglulega og áður. Það verður héðan í frá mjög lítið um fréttir. Satt að segja verður sennilega það lítið að gerast hérna að margir gestir eigi eftir að gleyma þessum vef. Einu fréttirnar sem ég sé fram á eru dagsetningar á því þegar DVD-útgáfurnar koma.

Það sem ég hafði hugsað mér er að láta vefinn lifa áfram á netinu sem góður upplýsingarvefur um kvikmyndirnar (og bækurnar náttúrulega líka). Þ.e.a.s. ég mun klára upplýsingasíðuna um Return of the King og fara yfir allt efnið á vefnum til að sjá hvort upplýsingar séu orðnar úreltar og sennilega bæta fullt af efni við. Sjá til þess að það sé nóg af upplýsingum um DVD útgáfurnar og að tenglar í alla trailera séu á sínum stað o.s.frv.
Hins vegar vegna háskólanáms hef ég ekki tíma til þess að byrja á þessu fyrr en í sumar.

Þegar því er lokið mun sennilega mínum þætti verða einnig lokið. Eftir það getur vefurinn bara verið þar sem hann er án minna afskipta.


Ég hef ákveðið að opna smá gestabók í tilefni af þessum tímamótum: [Gestabók eytt]

Það væri gaman ef fólk sem hefur fylgst með þessum vef í gegnum tíðina gæti séð sér fært að skrifa í hana. Dálítið gaman fyrir mig að sjá hvaða fólk þetta er sem hefur verið að fylgjast með í þessi ár. Hef vissulega fengið e-mail frá mörgum en sumir hafa bara birst sem tölur frá teljaraforritinu yfir heimsóknir.

Jæja, ævintýrinu fer að ljúka. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa stutt mig í gegnum tíðina við að halda þessum vef við. Ég hefði hætt þessu fyrir löngu síðan ef það hefði ekki verið fyrir ykkar stuðning.

Kveðja,

Ragnar Björnsson
Stofnandi, hönnuður og vefstjóri Íslenska Lord of the Rings vefsins

ROTK: lengri útgáfa at Mar 12, 2004 15:28:01 af Vefstjóri

Getgátur um hvað muni koma til með að vera í lengri útgáfu Return of the King. Sjá hér

DVD útgáfa at Mar 9, 2004 13:57:15 af Vefstjóri

Upplýsingar um DVD útgáfuna í Maí eru komnar á Lordoftherings.net. Sjá hér

ROTK á DVD og Vídeó 25. maí at Mar 8, 2004 14:11:46 af Vefstjóri

Almenna DVD og vídeó útgáfa Return of the King verður gefin út 25. maí næstkomandi í Bandaríkjunum.
Væntanlega verður svipuð dagsetning hér heima.

Special Extended útgáfan er sögð koma út fyrir jól, sem þýðir væntanlega einhvern tímann í nóvember eins og síðast.

Peter Jackson um DVD útgáfu í framtíðinni at Mar 2, 2004 18:25:10 af Vefstjóri

"I'm sure most of you have heard me blabbing off in the past few weeks but we've just finished the extended cut of the DVD. I finished the edit before I came over here - these poor bastards at Weta have got another 350 effects shots to do! They're well on the way. Elijah's seen the extended cut. New Line have announced some box set that's supposed to be coming out which I didn't know anything about. When I've done 'King Kong' I'd like to do a proper box set and we've got a whole bunch of material - not of the movie but we've got a whole lot of bloopers out there! When King Kong's out the way I'd like to do a really high definition version with the best possbile picture quality. "

Lord of the Rings trailerinn kominn at Mar 2, 2004 00:46:33 af Vefstjóri

He he, ekki bjóst maður nú við þessu: Lord of the Rins trailer að koma út í mars árið 2004.

Á lordoftherings.net var verið að setja e.k. trailer fyrir alla Lord of the Rings trílígíuna. Trailerinn inniheldur brot úr öllum myndunum þremur. Er satt að segja þess virði að skoða. Trailer(14.5 MB) og Trailer(71 MB)

Return of the King stórsigurvegari á Óskarsverðlaununum at Mar 1, 2004 05:38:28 af Vefstjóri

The Lord of the Rings: The Return of the King hefur skráð nafn sitt í sögu Óskarsins.
Myndin fékk 11 verðlaun og jafnaði þar með met Ben Hur og Titanic.
En það sem gerir sigurinn enn glæstari er að myndin vann öll þau verðlaun sem hún var tilnefnd fyrir og þetta er því stærsti 100 % sigur í sögu Óskarsins en fyrra metið átti Gigi og Last Emperor með 9 tilnefningar og 9 verðlaun.

Myndin fékk verðlaun fyrir bestu mynd, leikstjórn, handrit, förðun, tæknibrellur, hljóð, tónlist, lag (Into the West), listræna stjórnun, búningahönnun og klippingu.

Það var komið að því að Akademían verðlaunaði Lord of the Rings trílógíuna almennilega. Ef til vill er þetta eitthvað sem þegjandi samkomulag var um strax þegar FOTR fékk sínar tilnefningar, að láta Return of the King fá aðalverðlaunin sem fulltrúa allrar trílógíunnar.
Þetta er í fyrsta skipti sem ævintýramynd hlýtur aðalverðlaunin og gott að búið sé að brjóta ísinn í þeim efnum.

Þess má geta að samanlagt hefur trílógían unnið nú 17 verðlaun og fengið 30 tilnefningar.
Trílógían hefur unnið öll möguleg verðlaun sem hún hefði getað unnið, fyrir utan leikaraverðlaunin. Þetta er án eitthvert farsælasta kvikmyndaverk sögunnar.

Annars, var þetta mjög skemmtileg verðlaunaafhending í ár. Billy Crystal fór á kostum sem kynnir, reytti meðal annars af sér Lord of the Rings brandara.

Jæja, ævintýrið er eiginlega bara búið. Þetta er stund sem ég hef beðið eftir, að sjá þessar kvikmyndir sem ég hef beðið svo lengi eftir, slá svona rosalega í gegn. Þær hafa ekki bara slegið í gegn hjá mér, heldur líka hjá gagnrýnendum, bíóalmenningi, kvikmyndasamtökum, vinum mínum, meira að segja mömmu.


Jæja, góða nótt....

Óskarinn í nótt at Feb 29, 2004 18:28:05 af Vefstjóri

Það er komið að því. Óskarsverðlaunin eru í nótt og þá fáum við að sjá hvort að Akademían gefi í fyrsti skipti ævintýramynd aðalverðlaunin.
Return of the King er tilnefnd til 11 verðlauna og flestir verðbankar og Óskarsspekúlantar spá myndinni 7-8 verðlaunum þar á meðal bestu mynd og besta leikstjóra.

Stöð 2 sýnir beint (held ég alla vega) frá hátíðinni.

ROTK DVD at Feb 27, 2004 00:35:54 af Vefstjóri

Ekkert merkilegt en ég fann mynd sem virðist vera af komandi DVD útgáfu í sumar (bíóútgáfan).
Sjá hér

Svo er orðrómur í gangi um að á annari hvorri DVD útgáfunni muni koma til með að vera s.k. blooper reel en það er myndskeið sem sýnir mistök á tökustað, oft bráðfyndið.

Ég er svo búinn að skipa sjálfum mér að taka vefinn í gegn um helgina. Ég þarf að fara uppfæra hitt og þetta, búa til almennilega ROTK upplýsinga síðu o.fl.
Vonandi stend ég við.

ROTK i 2. sæti yfir söluhæstu kvikmyndir allra tíma at Feb 24, 2004 00:32:14 af Vefstjóri

Return of the King er komin í annað sæti yfir söluhæstu myndir allra tíma og nýjustu fréttir herma að myndin sé komin yfir eins milljarða markið í miðasölu um allan heim.
Toppnum hefur þar með eiginlega verið náð, fleiri met verða ekki slegin.
Titanic sem trónir efst á listanum er með um 2svar sinnum meiri sölu.

ROTK vann SAG verðlaunin at Feb 23, 2004 15:51:34 af Vefstjóri

Það kom að því. Fyrstu alvöru verðlaunin sem Lord of the Rings trílógían fær fyrir leik. Screen Actors Guild (Bandalag leikara i Bandaríkjunum) veitti Return of the King verðlaun fyrir besta leikhóp í kvikmynd.
Þessi verðlaun þýða að myndin er meira en einhver tæknibrelluhlaðin ævintýramynd eins og sumir hafa viljað halda fram og sýnir að leikarar eru almennt hrifnir af myndinni líka. Þetta boðar vel fyrir Óskarinn en margir sem kjósa um SAG verðlaunin kjósa um bestu mynd á Óskarshátíðinni einnig.

Önnur verðlaun:
Besti leikari í aðalhlutverki: Johnny Depp (þetta kom mjög ánægjulega á óvart)
Besta leikkona í aðalhlutverki: Charlize Theron
Besti leikari í aukahlutverki: Tim Robbins
Besta leikkona í aukahlutverki: Renée Zellweger

ROTK fékk ekki WGA at Feb 22, 2004 13:01:25 af Vefstjóri

Return of the King vann því miður ekki verðlaun Writer's Guild of America fyrir besta handrit byggt á áður útgefnu efni, en verðlaunin gefa oft góða vísbendingu um handritsverðlaunin á Óskarnum.
American Splendor fékk verðlaunin sem ROTK fékk ekki og Lost in Translation fékk verðlaun fyrir besta frumsamda handrit.

LOTR DVD Set árið 2005 at Feb 18, 2004 19:36:28 af Vefstjóri

Orðrómur er í gangi um að New Line muni gefa út alla trílógíuna í einum pakka árið 2005 sem auk þess að innihalda hinar 3 lengri útgáfur myndanna, muni einnig innihalda auka DVD disk með klipptum senum sem ekki voru í lengri útgáfunum.

ROTK sigurvegari BAFTA at Feb 16, 2004 22:23:16 af Vefstjóri

Return of the King gekk býsna vel á BAFTA hátíðinni í gær. Myndin fékk 5 verðlaun:
Besta mynd, besta kvikmyndataka, bestu tæknibrellur og besta handrit (byggt á áður útgefnu efni). Einnig var myndin valin besta mynd ársins af breskum bíóhúsgestum.
Það kom þó á óvart að leikstjórnarverðlaunin skyldu fara til annars Péturs, en Peter Weir fékk leikstjórnarverðlaunin fyrir Master & Commander. Þess skal þó geta að Peter Jackson fékk leikstjórnarverðlaunin fyrir Fellowship of the Ring á sínum tíma.

Annars var þetta skemmtileg verðlaunaafhending, mun skemmtilegri en t.d. Golden Globe og eiginlega Óskarinn líka. Þar hefur mikið að segja bráðfyndin kynning Stephen Fry og einnig er verðlaunaafhendingin talsvert styttri en hinar tvær.
Sjá meira hér



Skemmtilegt viðtal við Peter Jackson sem segir dálítið frá ferli hans. Sjá hér

BAFTa verðlaun í kvöld at Feb 15, 2004 17:54:48 af Vefstjóri

Í kvöld eru BAFTA verðlaunin afhend (verðlaun bresku kvikmyndaakademíunnar). ROTK er tilnefnd til 12 verðlauna, þar á meðal fyrir bestu mynd, besta leikstjóra og besta leik í aukahlutverk (Ian McKellen).

Fellowship of the Ring var valin besta myndin á BAFTA hátíðinni fyrir 2 árum.

Viðtal við PJ og fleiri at Feb 10, 2004 21:51:43 af Vefstjóri

Mjög fróðlegt viðtal við Peter Jackson, John Rhys Davies, Sean Astin og fleiri. Sjá hér

Grammy & lengri útgáfa at Feb 9, 2004 14:14:36 af Vefstjóri

Howard Shore fékk Grammy verðlaun fyrir tónlist sína í The Two Towers á Grammy verðlaunahátíðinni í Los Angeles í dag.

Peter Jackson hefur staðfest að lengri útgáfa The Return of the King innihaldi 50 mínútur af viðbættum senum. Lengri útgáfa The Two Towers var 40 mínútunum lengri.
Ekki er vitað enn um útgáfudag lengri útgáfunnar en nóvember er enn talið líklegast.

Peter Jackson vann DGA verðlaunin at Feb 8, 2004 14:32:04 af Vefstjóri

Það kom að því.
Peter Jackson fékk aðalverðlaun Director's Guild of America í gær.
Peter Jackson hefur verið tilnefndur þrisvar sinnum (fyrir LOTR myndirnar þrjár) en í þetta skiptið fékk hann það sem hann átti svo sannarlega skilið.

Þetta er enn ein vísbending um hvernig Return of the King eigi eftir að ganga á Óskarsverðlaunahátíðinni. Þeir sem kjósa um DGA verðlaunin eru að mörgu leyti þeir sömu og kjósa um leikstjóraverðlaun og bestu myndarverðlaun á Óskarshátíðinni og nær alltaf hefur leikstjóri sem fær DGA verðlaunin líka fengið Óskarsverðlaunin. Sjá grein hér

Hitt og þetta at Feb 6, 2004 18:34:19 af Vefstjóri

Afsaka letina síðustu daga....

New Line heldur úti ágætri síðu um þessar mundir þar sem verið er að kynna Return of the King rækilega til þess að reyna hafa áhrif á Akademíuna sem kýs fyrir Óskarsverðlaunin í þessum mánuði. Hægt er að sjá nokkur brot úr myndinni og ýmislegt fleira. New Line Awards

Orðrómur er í gangi um að bíóútgáfa ROTK komi út á DVD & Vídeó 25. maí. Ég efast þó um að eitthvað sé að marka þetta þar sem að hið sama var sagt um TTT á sínum tíma. Líklegast verður myndin gefin út í ágúst eins og síðast og lengri útgáfan í nóvember.

Mjög gott viðtal við Peter Jackson, Clint Eastwood, Sofia Coppola, Anthony Minghella og Gary Ross þar sem rætt er um kvikmyndir þeirra og ýmislegt fleira. Peter, Clint og Sofia voru tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár. Sjá hér

Director's Guild verðlaunin eru afhend á morgun en Peter Jackson er tilnefndur í þriðja sinn. Talið er mjög líklegt að Peter Jackson fari með sigur af hólmi.

Lengd ROTK EE at Jan 29, 2004 12:28:00 af Vefstjóri

Lengri útgáfa The Return of the King er 4 klst. og 10 mín skv. viðtali við Peter Jackson sem var víst að enda við að klára klippa útgáfuna til.
Ekki er vitað hvort þessi tala innihaldi kredits-listann einnig. Bíóútgáfan var 3 klst. 21 mín með kreditslista þannig að hér er sennilega um að ræða auka 50 mínútur af efni.

Ath. þó að þrátt fyrir að klipping sé tilbúin þá þýðir það ekkert að myndin sé tilbúin og að útgáfan gæti komið út bráðlega. Það er væntanlega enn hellings tæknibrellnavinna eftir ásamt hljóðvinnslu og tónlistarupptöku.
Áætlaður útgáfudagur lengri útgáfunnar er einhvern tímann í nóvember síðast þegar ég vissi og ég efast um að það eigi eftir að breytast.

ROTK með 11 Óskarstilnefningar at Jan 28, 2004 01:01:34 af Vefstjóri

Return of the King fékk 11 tilnefningar til Óskarsverðlauna og var með flest þetta árið. Næst kom Master & Commander með 10.
Myndin fékk eftirtaldar tilnefningar:

Besta mynd
Besta leikstjórn
Besta handrit (byggt á áður útgefnu efni)
Besta tónlist
Besta lag (Into the West)
Besta listræna stjórnun
Besta búningahönnun
Besta klipping
Bestu tæknibrellur
Besta hljóð
Besta förðun

Myndin fékk ekki tilnefningu fyrir kvikmyndatöku og hljóðvinnslu en athygli skal vakin á því að FOTR vann kvikmyndatökuverðlaunin og TTT hljóðvinnsluverðlaunin og Akademían er greinilega að líta sem svo á að búið sé að verðlauna trílógíuna fyrir þetta tvennt.

Ef allt gengur eftir er möguleiki að trílógían sitji eftir með verðlaun í nær öllum flokkum (nema náttúrlega leikaraflokkunum).
Viss vonbrigði að Sean Astin hafi ekki verið tilnefndur fyrir hlutverk sitt en hann var á mörgum veðbönkum talinn nokkuð líklegur til að komast í hópinn fyrir besta aukahlutverk.

Miðað við hvernig gengið hefur (sigur á Golden Globe, tilnefningar og verðlaun hér og þar) þá er mjög ljóst að myndin er langlíklegust til að vinna Óskarinn þetta árið skv. mönnum sem þekkja bransann.

Enda á myndin það skilið sem fulltrúi einnar bestu ævintýratrílógíu allra tía.

ROTK sigurvegari Golden Globe verðlauna at Jan 26, 2004 04:15:11 af Vefstjóri

Það hefði ekki getað farið betur. Lord of the Rings: The Return of the King vann öll þau verðlaun sem myndin var tilnefnd fyrir:
Besta mynd , drama
Besta leikstjórn
Besta tónlist
Besta lag

Ef ég man rétt er þetta í fyrsta skipti sem LOTR mynd fær einhver verðlaun á Golden Globe hátíðinni þrátt fyrir tilnefningar öll árin.
Þetta er mjög góð vísbending um að ROTK fái það sem myndin á skilið á Óskarsverðlaunahátíðinni í febrúar. Myndin hefur verið að fá tilnefningar og verðlaun alls staðar þetta árið, þar á meðal mikilsvirt verðlaun frá fagfólki í kvikmyndageiranum. Sigur á Golden Globe þýðir hins vegar að myndin er einnig mikils metin í Hollywood.


Óskarstilnefningar koma í ljós á þriðjudaginn....

Golden Globe verðlaun í kvöld at Jan 25, 2004 15:23:36 af Vefstjóri

Í kvöld er Golden Globe verðlaunaafhendingin en bein útsending verður á Stöð 2. Útsending hefst um miðnætti.
Return of the King er tilnefnd fyrir bestu mynd, leikstjóra, tónlist og lag.

BAFTA tilnefningar at Jan 19, 2004 20:00:38 af Vefstjóri

Tilfefningar til BAFTA verðlauna (bresku kvikmyndaakademíunnar) eru komnar í ljós. Return of the King fékk 12 tilnefningar, einni færri en Cold Mountain. ROTK fékk m.a. tilnefningar fyrir bestu mynd, leikstjóra og besta leik í aukahlutverki (Ian McKellen).

ROTK vann Producers Guild Awards at Jan 18, 2004 23:55:50 af Vefstjóri

Return of the King vann Producers Guild verðlaunin en þau þykja mjög sterk vísbending um hvaða mynd vinnur á Óskarnum. Ástæðan er víst sú að margir þeir sem kjósa um Producers Guild verðlaunin hafa einnig kosningarrétt á Óskarnum.

Námskeið hjá Endurmenntun HÍ at Jan 16, 2004 17:43:45 af Vefstjóri

Hjá Endurmenntun Háskóla Íslands á að fara halda námskeið um Hringadróttinssögu. Ármann Jakobsson mun kenna námskeiðið en hann gaf einmitt út fyrir stuttu "Tolkien og hringinn" sem ég er einmitt sjálfur að lesa núna og líkar vel.

-----------
Hringadróttinssaga eftir Tolkien er ein vinsælasta skáldsaga allra tíma og þótti þó sérkennileg í meira lagi þegar hún kom fyrst út. Hún hefur verið kosin bók aldarinnar og kvikmyndir eftir sögunni hafa notið fádæma hylli. Hver er galdurinn á bak við söguna? Hvers konar bókmenntir eru hér á ferð? Hvaðan sótti höfundurinn fyrirmyndir sínar og hvert var markmið hans? Skírskotar sagan til samtímans og þá hvernig? Hversu vel fylgja kvikmyndirnar þræði sögunnar og anda og hvað segja frávikin okkur um Tolkien og tíðarandann?


Kennari:  Ármann Jakobsson dr. phil, stundakennari við HÍ og Menntaskólann í Reykjavík.
Tími: Fim. 29. jan. - 26. feb. kl. 20:15-22:15 (5x).
Verð: 13.900 kr.
Skráning hér
------------

Hitt og þetta at Jan 12, 2004 10:25:27 af Vefstjóri

Nokkrar lýsingar frá ROTK sýningu í Bandaríkjunum þar sem einnig Peter Jackson og nokkrir leikarar komu fram og voru spurðir út úr af áhorfendum. Mjög fróðlegt og sérstaklega seinni tengillinn þar sem sagt var frá ýmsum baksviðs-uppákomum. Sjá hér eða hér

Peter Jackson fær þriðju DGA tilnefninguna sína at Jan 7, 2004 16:58:03 af Vefstjóri

Peter Jackson hefur verið tilnefndur hið þriðja sinn (sem er í fyrsta skipti nokkurn tímann) til Directors Guild of America Awards sem eru mjög virt verðlaun og yfirleitt eru tilnefningarnar mjög svipaðar og tilnefningarnar til Óskars.


Hér er svo smá dagatal yfir helstu verðlaunahátíðir á næstunni. Ég er hins vegar svo latur að ég nenni ekki að þýða eftirfarandi:

Wed 7th: LAFCA awards
Sat 10th: BFCA awards
Sat 17th: Oscar ballots due in
PGA awards
Mon 19th: BAFTA noms announced
Mon 25th: Golden Globes
Wed 27th: Oscar noms announced

Then in Feb:
Sat 7th: DGA awards
Sun 15th: BAFTAs
Sat 21st: WGA awards
Sun 22nd: SAG awards
Sun 29th: OSCAR!

Gleðilegt ár at Jan 2, 2004 03:20:44 af Vefstjóri

Óska gestum vefsins gleðilegt nýtt ár.

Fer að koma með eitthvað nýtt bráðlega...

Hitt og þetta at Dec 29, 2003 20:14:10 af Vefstjóri

Return of the King er komin í þriðja sæti yfir bestu myndir allra tíma skv. kosningu á IMDB.com . Godfather er í fyrsta sæti og Shawshank Redemption í öðru. Sjá hér

Góð síða þar sem sjá má samanburð á gengi ROTK í miðasölu miðað við FOTR og TTT. Uppfærð daglega. Sjá hér

ROTK er með 97 % jákvæðar umsagnir á RottenTomatoes en 185 umsagnir eru til staðar. Ein allra besta einkunn ársins og ROTK á sennilega eftir að fá bestu einkunn ársins eins og FOTR og TTT fengu. Sjá hér

Listi yfir feluhlutverk í Return of the King. Þ.e.a.s. listi yfir þekktar persónur sem koma fyrir í myndinni í smá aukahlutverki. Þar má meðal annars nefna Peter Jackson, börnin hans, og barnabarn Tolkien. Kannski eitthvað sem gaman er að hafa auga með þegar farið er á myndina aftur. Sjá hér

Sjálfur hef ég farið þrisvar á myndina hingað til og er alltaf að taka eftir einhverju nýju. T.d. finnst mér ég sjá Andy Serkis í aukahlutverki sem fallinn Gondor-hermaður atriðinu þar sem Orkar ráðast á Osgiliath. Svo er alltaf að vissu leyti gaman að reyna finna einhver smá mistök í myndinni en hér er listi yfir það sem menn hafa fundið þó sumt jaðri nú við að vera óttalega heimskuleg upptalning. Sjá hér

Mjög fróðlegur og skemmtilegur listi yfir athyglisverða hluti sem sjá má í myndinni. Listinn er samansettur af Tolkien aðdáendum og er mjög ítarlegur. Sjá hér

Nóg í bili...

Á döfinni er að smíða síðu um klipptar senur úr ROTK, smíða sér ROTK síðu með svipuðu sniði og gert var fyrir hinar myndirnar tvær og eitthvað fleira. Svo þarf sennilega að fara uppfæra ýmislegt efni á vefnum.

Gleðileg jól at Dec 25, 2003 15:39:23 af Vefstjóri

Ég óska gestum vefsins gleðilegra jóla og þakka þær heimsóknir sem ég hef fengið. Það er alltaf gaman að sjá vikuyfirlitið yfir heimsóknir sérstaklega á þessum tíma og sjá að hátt í 200 manns leggja leið sína hingað á dag.

Ég er í smá fríi núna en ætla svo annaðhvort 27. eða 28. að taka aðeins til á vefnum og uppfæra og koma með fréttir o.s.frv.

Þangað til getið þið spáð í það hvort eitthvað sé til í orðróminum um að ROTK:Extended Edition verði yfir 4 klst. og 50 mín.

Maraþon o.fl. at Dec 20, 2003 17:19:02 af Vefstjóri

Var á maraþon sýningu í gær, þ.e.a.s. sýningu á öllum þremur Lord of the Rings myndunum. Þetta var náttúrulega mögnuð upplifun að fá að sjá myndirnar þrjár í einu og það eina sem gæti mögulega slegið þessu við er sýning á lengri útgáfum allra myndanna sem vonandi verður hægt einhvern tímann.
Myndirnar voru náttúrulega frábærar en það sem eyðilagði mjög fyrir var hins vegar salurinn sem var virkilega slæmur. Það voru símar hringjandi, fólk talandi, fólk labbandi út áður en myndirnar voru búnar, óteljandi klósettferðir o.fl. sem virkilega skemmdi fyrir.

Return of the King græddi $57,6 M. fyrsta sýningardag sinn (17. des.) um allan heim.
Í Bandaríkjunum græddi myndin $34,1 M. og átti þar með stærstu miðvikudagsopnun allra tíma þar í landi. Einnig er myndin í þriðja sæti yfir stærsta opnunardag allra tíma í Bandaríkjunum. Sjá meiri tölfræði

Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig myndinni gengur í framhaldi. Það er talið nær augljóst að myndinni eigi eftir að ganga enn betur en FOTR og TTT og verða jafnvel með söluhæstu myndum allra tíma, þó ómögulegt sé samt talið að met Titanic verði slegið.


Return of the King er komin á lista yfir bestu myndir allra tíma skv. IMDB . Myndin er í 8 sæti en á ábyggilega eftir að hækka sig eftir því sem hún fær fleiri atkvæði. Sjá hér

Fínt viðtal við Peter Jackson og Fran Walsh. Sjá hér

Return of the King er ein af þeim 7 myndum sem Akademían hefur á lista sem koma til greina varðandi tilnefningar til Óskarsverðlauna fyrir bestu tæknibrellur sem kemur svo sem ekki á óvart. Athygli vekur að hvorug Matrix myndin er á listanum. Aðaltilnefningar koma í ljós í janúar að mig minnir. Sjá hér

Orðrómur um hvaða senur við megum eiga von á í lengri útgáfu Return of the King. Sjá hér

ROTK er að fá frábæra dóma alls staðar, er með 97 % jákvæða dóma á Rotten Tomatoes af 164 greinum sem er eitthvað sem mjög fáar myndir fá. Sjá hér

Golden Globe tilnefningar at Dec 18, 2003 16:39:59 af Vefstjóri

Tilnefningar til Golden Globe verðlauna eru komnar í ljós. Lord of the Rings:The Return of the King fékk tilnefningar fyrir bestu mynd, leikstjóra, tónlist og lag.

Gagnrýni at Dec 16, 2003 21:25:04 af Vefstjóri

Gagnrýni mín er komin á netið. Verði ykkur að góðu. Inniheldur ekki spilla. Sjá hér

Lord of the Rings: The Return of the King at Dec 16, 2003 12:42:32 af Vefstjóri

Ég var svo heppinn að komast á sýningu á Lord of the Rings:The Return of the King í gær og er að vinna að gagnrýni sem verður komin á netið eftir nokkra klukkutíma.

Í stuttu máli þá er myndin einfaldlega frábær. Betri en hinar tvær. Það er ekkert réttlæti í heiminum ef myndin fær ekki þá viðurkenningu sem hún á skilið á næstu Óskarshátíð. Peter Jackson tekst að klára söguna á fullkomin hátt. Get ekki beðið eftir að fá að sjá myndina aftur, sem verður þann 19. des. þegar ég mæti á maraþonsýningu í Regnboganum og fæ að sjá hvernig myndirnar þrjár njóta sín sem ein heild. Hlakka gífurlega til.

Spennan magnast... at Dec 13, 2003 13:59:53 af Vefstjóri

Mjög gott viðtal við Fran Walsh og Philippa Boyens (handritshöfunda). Er tiltölulega laust við spilla en segir þó frá upphafsatriði myndarinnar og frá persónu sem sleppt er í myndinni (sem flestir vita reyndar nú þegar). Sjá hér

Áhugavert viðtal við klippara myndarinnar.Sjá hér

Komnar eru 16 greinar inn á Rotten Tomatoes.Com og ekki ein af þeim er neikvæð. Sjá hér
Því er spáð að Return of the King eigi eftir að vegna enn betur meðal gagnrýnenda en fyrri myndirnar og nú þegar eru fjöldamörg dæmi um gagnrýnendur sem fannst lítið varið í fyrri myndirnar en en finnst Return of the King frábær. Þar á meðal eru Ebert og Roeper, Sjá hér

Myndin er sem sagt að fá góða dóma alls staðar, bæði meðal gagnrýnenda og Tolkien aðdáendur eru líka himinlifandi flestir. Flestir virðast sammála um að Return of the King sé sú besta í trílógíunni.

Hitt og þetta at Dec 9, 2003 15:49:20 af Vefstjóri

Mjög gott viðtal við Peter Jackson um Return of the King, Sarúman, DVD útgáfur, King Kong o.fl. Sjá hér

M.a. nefnir Peter Jackson að til sé 4 klst. og 15 mín. útgáfa af Return of the King.

Annað viðtal við Peter Jackson þar sem hann m.a. nefnir kvikmyndun Hobbitans. Sjá hér

Forsala á maraþonsýningar hafin at Dec 5, 2003 16:33:50 af Vefstjóri

Úr Morgunblaðinu í dag:
"Í dag hefst forsala á sérstakar maraþonsýningar á Hringadróttinssögu þríleikinn
í Regnboganum. Dagana 19.-22.
desember gefst aðdáendum tækifæri til að sjá allar þrjár
myndirnar í einu, þ.m.t. nýja myndin Hilmir Snýr Heim - ein
sýning á dag þessa 4 daga. Það verða tvö hlé, eftir Föruneyti
Hringsins og svo eftir Tveggja Turna Tal og þá verður hægt að kaupa sér
eitthvað matarmeira en popp og kók enda hljóta bíógestir að verða allsvangir á svo langri sýningu.
Miðaverð á allan pakkann er 1900kr. og aðeins verða haldnar
þessar fjórar sýningar þannig að takmarkað magn miða er í boði. Miðasala hefst Í DAG kl 17:30 og kl 15.00 laugardag og sunnudag."

Tónlist ROTK at Dec 4, 2003 17:42:03 af Vefstjóri

Tónlistin úr Return of the King er komin út á geisladisk hér á landi og fæst í verslunum Skífunnar.

Heimsfrumsýningin í gær at Dec 2, 2003 13:27:04 af Vefstjóri

Fín grein um það sem sagt var eftir heimsfrumsýninguna um myndina. Sjá hér

Heimsfrumsýning í dag at Dec 1, 2003 15:01:48 af Vefstjóri

Myndir frá heimsfrumsýningu Return of the King í Wellington sem fór fram í gær (en samt í dag). Man ekki hvernig tímamismunurinn virkar. Sjá hér

Viðtal við Peter Jackson og fleiri um lokavinnslu myndarinnar. Sjá hér

Brot úr Return of the King sem sýnir Aragorn, Legolas og Gimli nálgast Dauðraslóð (Paths of Dead). Sjá hér(Quicktime)

Það styttist vonandi bráðlega í meiri gagnrýni berist á netið. Þó mörgum fjölmiðlum hafi verið boðið á sérstaka fjölmiðlasýningu mega þeir víst ekki enn segja frá myndinni fyrr en eftir heimsfrumsýningu.
Einhverjar umsagnir má finna á www.aintitcool.com .

Fyrsta alvöru gagnrýni at Nov 29, 2003 15:44:03 af Vefstjóri

RottenTomatoes.Com sem er vefur sem safnar saman gagnrýni helstu fjölmiðla á kvikmyndum og gefur myndinni svo einkunn miðað við góða umfjöllun, er komið með gagnrýni fyrir Return of the King frá VariaGallery.
Myndin fær lofsamlega dóma og greinarhöfundi finnst ROTK vera sú besta í trílógíunni. Dáítið er um spilla en ekkert of mikið.
Sjá hér

ROTK umfjöllun á netinu at Nov 28, 2003 17:11:41 af Vefstjóri

Jæja, fyrsta sýning á Return of the King var í gær og þar af leiðandi hefur þónokkuð af lýsingum á myndinni strax birst á netið.

Ég hef sjálfur ekki áhuga að fá að vita nákvæmlega allt um myndina svo sem hvaða breytingar hafa verið gerðar og hvernig einstakar senur eru þannig að ég hef ekki lesið mikið af lýsingunum.
Þeir sem það hins vegar vilja, þá mæli ég með þessum umræðuvef hérna þar sem hægt er að fá að vita nákvæmlega allt um myndina. Tolkien-Online (Fullt af spillum)


Þeir sem vilja (eins og ég) fá smá upplýsingar um hversu góð myndin er og aðrar upplýsingar sem spilla ekki fyrir þá mæli ég með þessum þræði hér: Sjá hér

Lengd Return of the King at Nov 26, 2003 17:15:23 af Vefstjóri

Jæja, ég er kominn með staðfesta tölu á hversu löng Lord of the Rings:Return of the King eiginlega er. Það hafa verið miklar getgátur um þetta og mjög óvenjulegt að lengd myndarinnar sé ekki komin á hreint fyrr en núna.

Lengd Return of the King er 3 klst. og 21 mín. eða 201 mín.
FOTR var 2 klst. 58 mín og TTT 2 klst. og 59 mín. Þannig að hér er um að ræða 22 mín. lengri mynd. Athugið að í þessum tölum er "credits"-listinn talinn með.

Þrjár myndir úr Return of the King sem eru eiginlega full mikið af því góða. Þ.e.a.s. myndirnar þrjár sýna þrenn atriði úr myndinni sem ábyggilega er mun betra að sjá í fyrsta skipti í bíó. Sá sjálfur mjög á eftir því að hafa litið á þær. Myndirnar sýna senuna með Éoywyn og W...h K...g og senuna frá "Paths of the Dead". Sjá hér(MIKLIR SPILLAR)

Hér er myndskeið sem inniheldur nokkur stutt brot úr ROTK. Hef ekki hugmynd um hvað myndskeiðið snýst samt þar sem að ég er staddur á tölvu án hátalara. Sjá hér(Quicktime mynd)

Myndir úr ROTK at Nov 24, 2003 14:14:15 af Vefstjóri

Fullt af flottum ljósmyndum úr ROTK. Sjá hér


Mér sýnist sem að ég hafi sagt rangt til um að miðasala sé hafin á Smárabíóforsýningu á ROTK þann 18. des.
Miðasala á að hefjast núna á föstudaginn, skilst mér.

Upphaf ROTK at Nov 24, 2003 00:46:05 af Vefstjóri

Eftirtalin grein segir frá því í upphafssetningu hver fyrsta sena Return of the King mun koma til með að vera þannig að þeir passa sig sem það vilja. Sjá hér(SPILLIR)

Fréttabunki at Nov 23, 2003 01:26:24 af Vefstjóri

Það styttist og styttist í fyrstu sýningar á Return of the King. Fyrsta alvöru sýningin sem vitað er fjölmiðlaforsýning þann 27. nóv. eða eftir 4 daga þannig að alla vega þá gætu fyrstu umsagnirnar farið að birtast á netið.


Nokkrar góðar myndir úr Return of the King fyrir þá sem geta ekki beðið þessa örfáu daga sem eftir er (þar á meðal ég): Minas Morgul , Fullt af myndum, Pippin og Palantír.

Mjög gott myndskeið þar sem fjallað er um persónu Éowyn og Miranda Otto sem leikur hana. Inniheldur brot úr senu úr ROTK. Sjá hér

Plakat sem sýnir þá verðlaunaflokka sem New Line vilja að Lord of the Rings:Return of the King verði tilnefnd í. Þar má nefna að Ian McKellen, Elijah Wood, Sean Astin, Viggo Mortensen, Miranda Otto og Liv Tyler eru þar öll á listanum varðandi leikaratilnefningar. Sjá hér

Það er annars um Óskarsmöguleika ROTK á næsta ári að segja að myndin virðist skv. ýmsum veðbönkum og áhugamannasíðum vera líklegust til vinna til afreka. Og það þrátt fyrir að myndin sé ekki komin út. Spekingar segja að Akademían geti einfaldlega bara ekki hunsað þetta meistaraverk í þrígang og vilji sennilega verðlauna ROTK sem fulltrúa allrar trílógíunnar.

Þetta væri nú ekki góður Lord of the Rings vefur ef ég myndi hunsa ókvikmyndatengda hluti. En Ármann Jakobsson íslenskufræðingur hefur skrifað bók sem nefnist Tolkien og hringurinn og var bara að koma út. Ég hef ekki haft tíma til að skoða hana enn en mun án efa gera það. Sjá lýsingu á bók

Forsala er hafin eins og menn vita á nokkrar forsýningar hér á landi. Forsala hófst um daginn á Smárabíóforsýninguna þann 18. des. Veit ekki hvort uppselt sé.
Miðasala á Nexussýninguna þann 16. des. gekk víst ekki eins vel og áður hefur verið þannig að það er kannski möguleiki að enn séu miðar í boði. Sjá á nexus.is .

4-diska útgáfa The Two Towers eins og áður hefur verið nefnd stórkostleg. Ég veit að ég var hálfpartinn búinn að lofa e.k. gagnrýni en ég verð víst að draga það til baka þar sem ég hef varla tíma. Ég ætla þess í stað að reyna að vera duglegri með fréttir hér á síðunni sérstaklega núna á lokasprettinum þegar hlutirnir fara að gerast. Vona bara að það komi ekki of mikið niður á próflestrinum mínum.

Stutt umsögn at Nov 19, 2003 13:32:06 af Vefstjóri

Fékk 4-diska pakkann í gær og er búinn að skoða núna það helsta. Er virkilega sáttur með lengri útgáfu myndarinnar, fullt af góðum viðbótum sem gera myndina mun betri. Hér er aðallega um að ræða auka samtalssenur hér og þar sem í raun hægja á myndinni en mér finnst það í raun stór plús. Var sérstaklega sáttur með þær aukasenur sem Éowyn var í.


Aukaefnið er einnig mjög gott, í raun alveg snilldarlega unnið, þar sem athygli manns er haldið allan tímann. Sérstaklega er góður heimildarþátturinn um vinnuna á bak við handritið þar sem handritshöfundarnir útskýra margar þær leiðir sem farnar voru, eins og t.d. afhverju persónu Faramírs var breytt.


Ég kem vonandi með ítarlegri umsögn á morgun....

TTT:Extended Edition at Nov 18, 2003 18:35:58 af Vefstjóri

Var að frétta að The Two Towers: Extended Edition kæmi í verslanir á Íslandi í dag. Hef ekki náð að verða mér úti um eintak ennþá en þessi útgáfa er skyldueign fyrir alla aðdáendur kvikmyndanna.

Útgáfan inniheldur 40 mín. lengri mynd, yfir 6 klst. af heimildarþáttum um gerð myndarinnar, 4 auka hljóðrásir með framleiðendum og leikurum sem spjalla um kvikmyndina og margt fleira.

Mynd af Aragorni og Arwen at Nov 11, 2003 23:31:52 af Vefstjóri

Ný mynd sem sýnir þau Aragorn og Arwen (STÓR SPILLIR). Sjá hér

Tónlistin at Nov 9, 2003 14:26:53 af Vefstjóri

Lýsing á tónlistinni í Return of the King ásamt brotum úr hverju lagi. Sjá hér

Return of the King fréttir at Nov 8, 2003 12:29:04 af Vefstjóri

Orðrómur um lengd ROTK: Það hefur verið mikið um orðróm um að Return of the King sé jafnvel langt yfir 3 tíma en bæði TTT og FOTR voru tæplega 3 klst. að lengd (með credits-lista).
Tölur eins og 3 klst. 15 mín. og 3 klst. 30 mín hafa oft verið nefndar.

Nú virðist reyndar vera sem svo að það sé enn verið að klippa myndina og að þetta skýrist kannski ekki fyrr en í lok nóvember en skv. svari frá Peter Jackson virðist sem að staðfest tala sé 3 klst. 12 mín (án creditslista) sem hljómar vægast sagt mjög vel í mínum eyrum en ég vil endilega að myndin sé sem lengst svo þeir nái að klára söguna almennilega.

Senu sleppt í ROTK:
Það er hins vegar sem svo að í þessu sama svari Peter Jacksons kom annað í ljós sem segir frá heilli senu í Return of the King sem verður einfaldlega sleppt í bíóútgáfunni (en kemur svo í lengri útgáfunni), ekki endilega vegna lengdar senunnar heldur til þess að fá betri flæði í myndina. Vonbrigði vissulega en að mínu mati skiljanlegt. Sjá hér(SPILLAR)


Hérna er fyrsta umfjöllunin á tónlistinni í Return of the King. Sjá hér


Kominn er staðfestur útgáfudagur á lengri útgáfu The Two Towers en hann er 2 dögum seinna en í útlöndum, eða 20. nóvember. Hlakka til.


Ég geri mér grein fyrir því að ég þurfi að fara uppfæra ROTK síðuna mína með nýjum upplýsingum en ég ætla að reyna gefa mér tíma í það á morgun.

ROTK plakatið komið at Nov 5, 2003 20:36:47 af Vefstjóri


Aðalplakat Return of the King er nú komið og lítur mjög vel út eins og sjá má.
Hægt er að nálgast stærri útgáfu af plakatinu hér


Nokkrar nýjar myndir úr Return of the King. Sjá hér


Verslunin Nexus verður eins og áður með sérstaka forsýningu á undan öllum öðrum þar sem hörðustu aðdáendur (þ.e. þeir sem nenna að standa og bíða í 3 tíma á mjög köldum sunnudagsmorgni í nóvemberkuldanum) geta séð myndina 10 dögum fyrir frumsýningu.
Sýningin verður þann 16. des. en ekki er búið að ákveða hvenær miðar verða seldir. Miðaverð er 3000 kr en veitingar eru innifaldar. Nánar hér


Það styttist í útgáfudag Lord of the Rings: The Two Towers: Extended Edition en tæpar 2 vikur eru nú eftir.

Umsögn at Nov 1, 2003 14:02:51 af Vefstjóri

Fróðleg og mjög ítarleg grein um lengri útgáfu The Two Towers. Sjá hér

Fyrsta TTT:Extended Edition gagnrýni at Oct 27, 2003 21:36:14 af Vefstjóri

Jæja fyrsta gagnrýnin fyrir lengri útgáfu The Two Towers virðist vera komin á netið. Hljómar vægast sagt mjög vel. Sjá hér

Og enn koma myndirnar at Oct 27, 2003 13:21:57 af Vefstjóri

Enn bætast við myndir úr Return of the King en þessar koma flestar úr bókinni "Return of the King Official Photoguide" sem ætti að koma út nóvember-desember.

Nokkrar myndir

Og fleiri

Fleiri myndir at Oct 25, 2003 13:22:54 af Vefstjóri

Sjá hér

Og hér

Og líka hér


Og þetta eru náttúrulega SPILLAR.

ROTK myndir at Oct 24, 2003 14:02:52 af Vefstjóri

Glænýjar myndir úr Return of the King. Um er að ræða myndir sem sýna t.d. atriðin með Pippin og Palantírann og bálköst Denethors þannig að þeir líta undan þeir sem það kjósa. Sjá hér

Sýningar á Return of the King at Oct 16, 2003 19:01:53 af Vefstjóri

Jæja, hef aðeins fengið smá fréttir varðandi sýningar á ROTK hér á landi:

* Return of the King verður frumsýnd hér á landi 26. des.

* Nokkrar forsýningar verða þó, flestar á vegum einstakra fyrirtækja og svo verður ein almenn forsýning þann 18. desember.

* Það verða s.k. maraþon sýningar í Regnboganum 18.-20. desember, þar sem allar þrjár Lord of the Rings myndirnar verða sýndar (ath. ekki er um að ræða lengri útgáfur á FOTR og TTT). Það gætu jafnvel orðið fleiri svona sýningar líka.


The Two Towers: Special Extended Edition kemur svo út hér á landi þann 18. nóvember, sama dag og úti í heimi.

Hitt og þetta at Oct 15, 2003 10:06:17 af Vefstjóri

Tvær nýjar myndir úr Return of the King. Sjá hér

Lýsing á 20 mín. ROTK sýnishorni sem nokkrir útvaldir fengu að sjá. Sjá hér

ROTK aukatökur? at Oct 12, 2003 15:27:24 af Vefstjóri

Einhver orðrómur um aukatökur á Return of the King á næstu ári. Hljómar mjög ólíklega að mínu mati en hér er slóðin. Sjá hér

Grein um ROTK at Oct 8, 2003 19:42:43 af Vefstjóri

Áhugaverð grein um ROTK þar sem spáð er í Óskarsmöguleika myndarinnar á næsta ári. Sjá hér

Lítil mynd sem sýnir plakat fyrir Return of the King. Ekki er vitað hvort að þetta komi frá framleiðendum eða hvort þetta sé heimagert. Sjá hér

Lokahönd lögð á Return of the King at Oct 6, 2003 22:07:32 af Vefstjóri

Athyglisvert viðtal við Richard Taylor (forseti WETA Digital) þar sem hann segir frá því hvað verið sé að gera þessa síðustu daga áður en myndin fer í fjölföldun. Sjá hér

Return of the King nálgast at Oct 1, 2003 18:22:05 af Vefstjóri

Það er kominn október, frumsýningardagur síðustu myndar kvikmyndatrílógíu Peter Jackson nálgast óðfluga. Þrátt fyrir það virðist sem að aukatökur standi enn yfir. Peter Jackson ætlar greinilega að fullkomna síðustu myndina. Sjá grein hér

Heimsfrumsýning sýnist mér ætla að verða 1. desember næst komandi í Wellington, höfuðborg Nýja Sjálands. Almenn frumsýning í heiminum er svo 17. desember. Ég ætla að kanna hvort dagsetningar eru komnar hér á landi en annars þá verður mjög líklega hægt að fara á forsýningu í kringum 17. desember.

Ég ætla að reyna uppfæra ROTK síðuna um helgina með nýjustu upplýsingum, læt vita...

Trailer á íslenskt svæði at Sep 30, 2003 19:54:10 af Vefstjóri

Trailerinn er nú kominn á íslenskt svæði. Verði ykkur að góðu: Trailer (27 MB)

Hlaða niður trailer at Sep 29, 2003 19:44:37 af Vefstjóri

Athugið að þeir sem vilja hlaða niður stærstu útgáfunni getið hægri smellt á tengilinn hér og valið Save to disk/Download to disk . 26 MB

Trailerar í mörgum stærðum at Sep 29, 2003 19:40:36 af Vefstjóri

Jæja, nú eru loksins komnar hágæða Quicktime útgáfur af trailernum, stærsta útgáfan 26 MB. Vonast var til þess að stærri útgáfa myndi koma einnig en svo varð víst ekki.
Trailer-síða

Athugið að það er áreiðanlega stutt í að trailerinn komist á íslenskt svæði.

20 MB útgáfa at Sep 29, 2003 13:40:45 af Vefstjóri

Hér er komin 20 MB útgáfa af trailernum. Við erum enn að bíða eftir að lordoftherings.net taki við sér en þetta er besta útgáfan enn sem komið er. 20 MB (Quicktime)

Trailer at Sep 29, 2003 10:14:23 af Vefstjóri

America Online er komið með fyrstu opinberu útgáfu af trailernum sem hægt er að ná í HÉR (9 MB) .
Samkvæmt því sem New Line sagði fyrir nokkrum dögum ætti trailerinn að koma á lordoftherings.net í dag en ekki er vitað klukkan hvað.
En búist er við (eins og verið hefur) að hægt verði að ná í 30-40 MB toppgæða útgáfu af trailernum.

Búinn að sjá ROTK trailerinn at Sep 26, 2003 19:04:10 af Vefstjóri

Jæja, ég var svo skemmtilega bilaður að ég fór í bíó til að sjá Return of the King trailerinn og labbaði svo bara út áður en myndin byrjaði. Þar fór sá 800 kall. :-)

En þetta var alveg þess virði. Trailerinn er nefnilega ótrúlega flottur, inniheldur svo mikið af myndrænt stórkostlegum brotum að maður geti varla beðið eftir að fá að sjá hann aftur.

Hann er kannski ekki jafn grípandi og The Two Towers trailerinn og ekki jafn spennandi, en bætir það upp með því að sýna að hér virðist vera á ferðinni miklu betri mynd en The Two Towers.
Alla vega fékk ég það á tilfinninguna: Return of the King verður mynd myndanna.

Trailer í 70 mínútum at Sep 26, 2003 16:53:40 af Vefstjóri

Ég hef eins og aðrir lesið um það að þeir ætli að sýna ROTK trailerinn í "70 mínútum" á Popptíví í kvöld.
Ég veit ekki hvort að um er að ræða allan trailerinn eða bara brot úr honum. En ábyggilega sniðugt að fylgjast með því ef maður nennir ekki að bíða fram á mánudag eða kemst ekki í bíó eða tímir ekki.

2 nýjar myndir úr Return of the King at Sep 25, 2003 00:18:10 af Vefstjóri

Ath. dálitlir spillar, sérstaklega ef þú hefur ekki lesið bækurnar: Éowyn og Merry og Pippin á Pelennor

ROTK trailer frumsýndur hér á landi at Sep 24, 2003 19:41:48 af Vefstjóri

Jæja, enn betri fréttir.

Return of the King trailerinn verður sýndur hér á landi í bíó á föstudaginn, sama dag og úti.
Hann verður sýndur á undan myndinni Jeepers Creepers 2 sem er frumsýnd einmitt þennan dag á Íslandi í Regnboganum og Laugarásbíó.

Trailerinn verður eingöngu sýndur með þessari mynd til að byrja með.


Þannig að er um að gera drífa sig í bíó á föstudaginn. Ég hugsa að sjálfur fari ég bara til að sjá trailerinn.

Return of the King trailer at Sep 23, 2003 23:22:38 af Vefstjóri

Jæja, þetta er þá endanlega orðið ljós varðandi Return of the King trailerinn.
26. september verður hann fyrst sýndur, því miður bara í bíóhúsum Bandaríkjanna. Ég geri ráð fyrir að fljótlega eftir það verði hann sýndur í bíóhúsum hér heima. Ég mun komast að því.

29. september fer hann hins vegar á netið og hægt verður að sækja hann á hinni opinberu síðu kvikmyndanna, www.lordoftherings.net . Ég mæli þó með því að fólk fylgist með hér líka. Það verður að öllum líkindum gífurleg umferð á lordoftherings.net þann dag og oft betra að bíða í klst. eða svo eftir því að einhver annar taki sig til og hýsi hann.

Um er að ræða 2 mín. og 30 sek. trailer og miðað við hvernig fyrri LOTR-trailerar hafa verið verður þessi áreiðanlega stórkostlegur.
Ég held að þetta verði aðaltrailer myndarinnar en það er þó aldrei að vita hvað New Line hefur verið að skipuleggja. Return of the King hefur alla burði til þess að slá öll aðsóknarmet (nema kannski Titanic) og þeir munu áreiðanlega eyða enn meiri fjármunum í auglýsingar þetta árið.

Ian McKellen at Sep 21, 2003 01:04:17 af Vefstjóri

Áhugaverður pistill Ian McKellen þar sem hann segir frá síðustu kvikmyndatökum sínum í Nýja Sjálandi. Sjá hér

ROTK trailer at Sep 17, 2003 22:48:38 af Vefstjóri

Aðaltrailerinn fyrir Return of the King verður frumsýndur 26. september samhliða frumsýningu Secondhand Lions í bíóhúsum Bandaríkjanna. Hann verður væntanlega sýndur í íslenskum bíóhúsum nokkrum vikum seinna og svo ábyggilega reglulega fram í desember.
Internet útgáfa hefur alltaf fylgt í kjölfarið og hefur það yfirleitt verið samdægurs eða daginn eftir.
Fylgist með hér þegar nær dregur. Ég mun setja inn slóð á trailerinn um leið og trailerinn fer á netið.

TTT: Special Gift Set Edition at Sep 10, 2003 20:07:20 af Vefstjóri

Eins og með FOTR þá verður gefin út sérstök viðhafnar útgáfa af TTT:Extended Edition.
Hér er um að ræða 4. diska útgáfuna í sérstöku hulstri ásamt styttu af Gollum og svo auka DVD disk sem fjallar eingöngu um hvernig Gollum var gerður.
Hljómar vissulega vel og kannski maður skelli sér á þessa útgáfuna í stað hinnar hefðbundnu en báðar koma út 18. nóvember. Á þó eftir að rannsaka nákvæmlega hvað það er sem á Gollum disknum. Auka diskurinn sem fylgdi með FOTR: Special Gift Set Edition var nefnilega algert rusl og ég veit einnig að það er nóg af efni um hvernig Gollum var gerður í 4. diska útgáfunni. Sjá hér

Myndir úr TTT:Extended Edition at Sep 6, 2003 20:03:37 af Vefstjóri

Nokkrar nýjar myndir sem eru úr lengri útgáfu The Two Towers. Sjá hér

Rólegt at Sep 4, 2003 17:15:09 af Vefstjóri

Það er ekki mikið að gerast eins og er en í þessum mánuði kemur aðaltrailer Return of the King út. Heimildarmenn segja að það verði 26. september. Hann fer væntanlega bæði í bíóhús og einnig út á netið.

Hér er ný mynd úr Return of the King sem tekin er eftir stríð í lok sögunnar. Ath. gæti spillt. Sjá hér

The Two Towers komin á DVD at Aug 26, 2003 21:26:35 af Vefstjóri

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá fólki að The Two Towers kom út á DVD í dag. Útgáfan inniheldur tvo diska, á öðrum er myndin sjálf og á hinum er smá aukaefni. Aukaefnið er t.d. tvær ágætis heimildarmyndir um kvikmyndina sem þó hafa verið sýndar í bandarísku sjónvarpi áður og önnur var sýnd hér á Íslandi. Svo er 10 mín. umfjöllun um Return of the King sem inniheldur m.a. myndskeiðið sem fór á netið fyrir nokkrum vikum og við héldum að væri trailer. Einnig er sýnishorn úr lengri útgáfu myndarinnar sem kemur út í nóvember.
Fínt tónlistarmyndband með hinni íslensku Emilíönu Torrini er einnig á disknum.

Fín DVD útgáfa, með því betra sem gefið er út almennt þó þessi útgáfa bliknar náttúrulega í samanburði við 4 diska útgáfuna sem væntanleg er í nóvember. Allt um þetta á DVD síðunni

DVD Gagnrýni at Aug 22, 2003 23:57:16 af Vefstjóri

Gagnrýni fyrir The Two Towers DVD útgáfuna er byrjuð að streyma inn. Hér er ein góð. Sjá hér

Svo var ég að lesa um áform New Line um að byrja sýna lengri útgáfur Fellowship of the Ring og The Two Towers í nokkrum bíósölum í Bandaríkjunum og Kanada. Einnig eru áform um að sýna allar þrjár myndirnar í röð þann 16. desember sem Peter Jackson er ábyggilega mjög ánægður með en ég man eftir viðtali við hann (tekið árið 1999 minnir mig) þar sem hann hugsar til þess að kannski verði einhvern tímann hægt að sjá allar þrjár myndirnar í röð á hvíta tjaldinu. Lesið meira hér

Vonandi verður eitthvað svipað gert hér heima.

Hitt og þetta at Aug 21, 2003 16:17:55 af Vefstjóri

Nýtt Return of the King plakat er komið. Ath. aðalplakat myndarinnar kemur seinna. Sjá hér

Gífurlegur fjöldi mynda úr Return of the King og úr Two Towers:Extended Edition. Sjá hér
Athugið samt að allar þessar myndir koma úr myndskeiðum sem eru í DVD útgáfu The Two Towers sem væntanleg er á þriðjudaginn og kannski því skemmtilegra að bíða bara. Ég rétt leit yfir myndirnar sjálfur en ætla annars að bíða fram á þriðjudag.

ROTK-síðan hefur verið uppfærð talsvert og inniheldur núna nánast allt sem vitað er um myndina.

Klipptar senur í TTT-síðan hefur verið uppfærð mjög mikið og ætti núna að innihalda nánast allt sem vitað er um viðbættar senur í komandi DVD útgáfu í nóvember.

Miklar ROTK upplýsingar at Aug 17, 2003 13:28:10 af Vefstjóri

Það er mikið að gerast þessa dagana og gott að maður sé að fylgjast með mörgum Tolkien vefjum þessa dagana.

Byrjum á fleiri ljósmyndum úr TTT: Extended Cut. Þær staðfesta til dæmis margar nýjar senur sem verða í útgáfunni og sumir vilja kannski bíða fram í nóvember. Sjá hér

Þá eru það stóru fréttirnar.
En mikið af upplýsingum um Return of the King láku út á netið sem staðfesta m.a. margar sögubreytingar og skýra mikið af orðrómi sem gengið hefur undanfarið. Í heildina litið jákvæðar upplýsingar. Ég sé að ég þarf að endurbæta ROTK síðuna talsvert eftir þetta, vonandi í kvöld eða á morgun. ATH !! Mjög miklir spillar. Sjá hér

Fleiri myndir úr TTT: Extended Cut at Aug 17, 2003 13:06:59 af Vefstjóri

Sex nýjar myndir úr lengri útgáfu The Two Towers. Ath. Spillar. Sjá hér

Viðtal við Karl Urban at Aug 16, 2003 21:18:47 af Vefstjóri

Gleymdi þessu...

Ágætt viðtal við Karl Urban (Eomer). Sjá hér

Lengri lýsing at Aug 16, 2003 21:17:21 af Vefstjóri

Löng og ítarleg (eiginlega of ítarleg) lýsing á Return of the King sýnishorninu sem er í The Two Towers DVD útgáfunni er komin á netið. Sjá hér

Sjálfur ákvað ég að sleppa við að lesa þetta þar sem að stutt er í að maður fái sjálfur að skoða sýnishornið, en það er 26. ágúst sem að DVD útgáfan kemur út og bíða margir væntanlega spenntir eftir því nema kannski þeir sem að ætla bíða eftir lengri útgáfunni sem væntanleg er í nóvember.

Sjálfur vil ég eiga báðar útgáfurnar enda ýmislegt í ágúst útgáfunni sem ekki verður í nóvember útgáfunni.

Sex áhugaverðar ljósmyndir úr Return of the King. Sjá hér

Sex mjög flottar myndir úr nýjum senum lengri útgáfu TTT. Ath. spillar. Sjá hér

Hugleiðingar um mynd sem tekin var "bak-við-tjöldin" á kvikmyndatrílógíunni og gæti tengst atriði í Return of the King. Sjá hér

Lýsing á 10 mín. Return of the King sýnishorninu at Aug 11, 2003 13:36:30 af Vefstjóri

Það er nú vitað að trailerinn sem fór á netið fyrir nokkrum dögum síðan var hluti af ROTK sýnishorninu sem er á The Two Towers DVD disknum sem kemur út núna í ágúst. En það er hins vegar meira í þessu sýnishorni og einhver sem segist hafa séð það hefur skrifað smá lýsingu. Mjög áhugavert. Sjá hér

TTT: Extended Cut at Aug 9, 2003 12:43:50 af Vefstjóri

Smá umsögn manns sem nýlega sá lengri útgáfu The Two Towers. Hann nefnir margar áhugaverðar nýjar senur. Sjá hér

Trailer innanlands at Aug 3, 2003 03:54:47 af Vefstjóri

Búið er að koma trailernum á íslenskt svæði þannig að nú ættu allir hér heima að geta náð sér í eintak. Takk Vilhelm. Sjá hér

Trailerinn er annars mjög góður og Return of the King virðist ætla að slá hinum tveimur myndunum við. Get ekki beðið.

Þriðja tilraun at Aug 2, 2003 00:24:06 af Vefstjóri

Ekki eru þeir langlífir tenglarnir hjá mér.
Hér kemur þriðja tilraunin til þess að koma virkum rotk-trailer-tengli á forsíðuna.
Gjörið svo vel. Stærð þessarar útgáfu er aðeins meiri en hinsvegar er búið að laga hljóðið aðeins sem var í ósamræmi miðað við mynd. ROTK-trailer (16.2 MB)

Það er möguleiki að þetta komist á íslenskt svæði fljótlega.

Ný slóð í trailerinn at Jul 31, 2003 23:15:27 af Vefstjóri

Slóðin sem ég benti á í gær virðist vera dauð núna og mér tókst ekki að fá neinn til að koma þessu á íslenskt svæði.

Hins vegar er hér ný slóð í trailerinn. Sjá hér

Framhald at Jul 31, 2003 01:15:31 af Vefstjóri

Ég hefði náttúrulega átt að klára að lesa viðtalið við Peter Jackson sem ég benti á í síðustu frétt áður en ég kláraði fréttina. Þar segir nefnilega Peter Jackson að það verði bara einn trailer og að hann verði í september og verður væntanlega 3-4 mínútur (mín ágiskun). Þar af leiðandi vitum við ekki hvort að trailerinn sem að lak út á netið í gær sé bara hluti af honum eða eitthvað allt annað. Kannski er þetta úr ROTK sýnishorninu á DVD útgáfu TTT sem kemur út í ágúst, hver veit ?

Ég ákvað svo í leiðinni að fara í það að laga aðeins til aukasíðurnar hér á vefnum og sjá til þess að nýjustu og réttustu upplýsingarnar væru á ROTK síðunni, DVD síðunni og "klipptar senur"-síðunni þannig að þær hafa talsvert breyst.

Ég hefði átt að vera búinn að þessu fyrir löngu en maður er víst stundum latur.

Skipti um mynd á forsíðunni líka, að gamni.

En annars þá er DVD útgáfa TTT framundan. Hún kemur út 26. ágúst.

Return of the King trailer !! at Jul 31, 2003 00:42:52 af Vefstjóri

Fyrsti trailerinn er kominn út að vissu leyti. Út á netið lak 1.5 mínútna trailer. TheOneRing.Net voru fyrstir með fréttirnar og með tengla í trailerinn áður en New Line komst að því og lét loka því. Ekki er vitað hvort að þetta sé í raun trailerinn sem áformað var að gefa út núna í lok sumars eða ekki. Það er hins vegar ljóst að þetta er ekki aðaltrailerinn sem verður væntanlega á 3 - 4 mínútna bilinu eins og áður hefur verið, og er væntanlegur í október/nóvember.

Sjálfur er ég að hlaða niður 10 mb eintaki af trailernum en einnig á víst að vera til 22 mb eintak einhvers staðar. Samkvæmt því sem ég hef heyrt þá er trailerinn magnaður.

Ég hef ekki tök á því sjálfur að setja trailerinn á íslenskt svæði en ég ætla að spyrjast fyrir á nokkrum stöðum. Ef þið getið það þá er um að gera, að gera það og gefa svo upp slóðina til mín.

Tengillinn á trailerinn sem ég læt fylja með hér gæti dottið út hvenær sem er þannig að það er um að gera að reyna næla sér í eintak á meðan þið getið: ROTK-trailer (9.9 MB)


-Annað mál
Athyglisvert viðtal við Peter Jackson úr Official LOTR magazine er komið á netið. Peter Jackson svarar spurningum í sambandi við kvikmyndun Hobbitans, orðróminn um Sauron í ROTK og margt fleira. Sjá hér

Fyrsta TTT:Extended Cut umsögnin at Jul 26, 2003 22:14:40 af Vefstjóri

Aint-It-Cool.com segja frá lengri útgáfu The Two Towers sem væntanleg er í nóvember og nefna þær senur sem búið er að bæta við. Varúð, gæti spillt. Sjá hér

Hljómar vægast sagt mjög vel.

Hitt & þetta at Jul 22, 2003 12:44:31 af Vefstjóri

Fínar nýjar myndir af Gandalfi í Return of the King. Sjá hér

Á Comic-Con hátíðinni var nýlega sýnt 12 mín. ROTK-sýnishornið nokkrum heppnum einstaklingum, sem á að vera á DVD útgáfunni sem væntanleg er í ágúst. Hér er ágætis lýsing á sýnishorninu: Hér

Ágætis mynd af Denethor. Sjá hér

Ian McKellen at Jul 16, 2003 12:40:17 af Vefstjóri

Ian McKellen hefur uppfært síðu sína með smá umfjöllun um þær aukatökur sem hafa staðið yfir í sumar. Lýsir t.d. senu í ROTK sem gaman var að vita að sé í myndinni. Sjá hér

Upplýsignar um Shelob at Jul 3, 2003 17:15:23 af Vefstjóri

TheOneRing.Net eru með smá umfjöllun um það sem vitað er um skrímslið Shelob sem von er á í þriðju myndinni. Sjá hér

Það sem vitað er um ROTK og TTT:Extended Cut at Jul 3, 2003 02:04:02 af Vefstjóri

Það er erfitt að sjálfur reyna að halda uppi góðum lista yfir það sem vitað er um næstu mynd og lengri útgáfu fyrri myndar þegar fjöldi fólks á spjallborðum úti í heimi tekur sig saman og gerir þetta bara og það vel.

Eftirfarandi síður eru án efa bestu heimildirnar sem þið getið fengið ef þið eruð þyrst í upplýsingar um Return of the King eða lengri útgáfu The Two Towers.
Þetta eru náttúrulega miklir SPILLAR.

Listi á Tolkien Online um ROTK
Listi á Council-Of-Elrond um ROTK

Listi á Council-Of-Elrond um TTT:Extended Cut


Þetta þýðir samt ekki að muni ekki uppfæra listana mína, þvert á móti verður það auðveldara að gera það þegar búið er að setja þetta svona vel upp. Það er von á stóruppfærslu á næstu dögum þar sem sem týnt verður til ROTK og DVD upplýsingar.

Innihald Nóvember-útgáfunnar at Jun 30, 2003 03:28:38 af Vefstjóri

LordoftheRings.Net er komið með upplýsingar um innihald 4-diska DVD útgáfu The Two Towers sem væntanleg er í nóvember.

Eins og von var á er þetta í mjög svipuðum dúr og síðast sem er reyndar bara ágætt. Það er engin ástæða fyrir mig að reyna lýsa þessu. Lesið ykkur til sjálf. Sjá hér

DVD síðan verður uppfærð fljótlega með þessum upplýsingum.

Nýtt plakat komið at Jun 28, 2003 15:10:32 af Vefstjóri

LordoftheRings.Net hefur gefið út nýtt ROTK-plakat með mynd af Aragorni haldandi á Andúril (Narsíl). Þetta er að vísu bara s.k. teaser-plakat en alvöru plakatið kemur þegar nær dregur frumsýningu. ROTK síðan hefur verið uppfærð með þessari mynd en hægt er að ná í plakatið í fullri stærð og einnig sem skjáborðsmynd fyrir tölvu hér

TTT: Collector's Gift Set at Jun 21, 2003 04:10:33 af Vefstjóri

Forsala er hafin á TTT: Extended Edition og TTT: Collector's Gift Set auk þess sem mynd af síðarnefndu útgáfunni er komin. Sjá hér

Hitt og þetta at Jun 14, 2003 18:46:25 af Vefstjóri

Í komandi Return of the King tölvuleik má finna fullt af myndskeiðum sem koma úr ROTK-kvikmyndinni. Nýlega var verið að kynna tölvuleikinn og þá var hægt að fá að sjá smá myndskeið með efni úr kvikmyndinni sjálfri. Léleg gæði á þessu myndskeiði en það er þó hægt að sjá margt spennandi hérna eins og brot úr orustunni á Pelennor, Gandalf og Pippin á hestbaki o.s.frv. Sjá hér (krefst afpökkunarforrits eins og WinZip eða Stuffit Expander)

Hérna er hægt að sjá ljósmyndir úr myndskeiðinu. Sjá hér

Lights Out Entertainment hafa fengið eintak af Disk 1 af ágústútgáfu LOTR:TTT og segja frá því. Sjá hér

USA Today eru með góða umfjöllun um það sem koma skal í nóvemberútgáfu LOTR:TTT og staðfesta til dæmis ýmsar senur sem verða í lengri útgáfunni. Sjá hér

Það er mikið um orðróma núna á netinu um hvað gerist í ROTK myndinni en ég ætla bíða aðeins og sjá áður en ég tek það til umfjöllunar.

Fyndið myndskeið at Jun 7, 2003 02:46:39 af Vefstjóri

Gollum vann verðlaun á nýafstaðinni MTV kvikmyndahátíð sem besta afrek stafrænnar persónu.
Nokkuð sniðugt myndskeið kom fram á hátíðinni þar sem Gollum er að rífast við sjálfan sig um verðlaunin. Sjá hér (krefst Quicktime)

DVD at Jun 2, 2003 16:31:27 af Vefstjóri

Heyrði orðróm um að sér commentary verði með þeim Dominic og Billy (Merry & Pippin) á LOTR:TTT:Extended Edition og að sér commentary verði líka með Andy Serkis (Gollum). Þetta er þó óstaðfest.

Hitt & þetta at May 31, 2003 15:30:19 af Vefstjóri

Áhugavert viðtal við Peter Jackson um ROTK meðal annars. Sjá hér

Miranda Otto segir í viðtali frá senu í ROTK. Sjá hér


Samkvæmt dagblaði í Noregi á Return of the King að verða 3 klst. og 10 mín. löng. Hljómar vel ef satt er.


Lítið að gerast samt eins og er, eins og eðlilegt er á þessum tíma...

Nýjar ljósmyndir at May 28, 2003 02:59:42 af Vefstjóri

Þrjár myndir sem ekki hafa sést áður eru komnar á netið. Óljóst er hvort þær séu úr Return of the King eða The Two Towers: Extended Edition. Sjá hér

Ian McKellen svarar reglulega spurningum aðdáenda á síðu sinni sem er yfirleitt skemmtilegur lestur. Sjá hér

Heimsfrumsýning at May 23, 2003 14:19:05 af Vefstjóri

Heimsfrumsýning The Return of the King verður aðeins fyrr en venjulega (FOTR og TTT voru í kringum 10. des) en búið er að staðfesta að dagsetningu sem er 1. desember á þessu ári.

Mér skilst að verið sé að gera þetta með tilliti til þess að Óskarshátíðin verði mánuði fyrr á næsta ári þó ég viti í raun ekki mikið meira.

Einnig skilst mér að forsýningar fyrir fjölmiðla verði einnig fyrr en venjulega, sennilega strax í lok nóvember.

ROTK fréttir at May 22, 2003 02:55:34 af Vefstjóri

Peter Jackson sagði í viðtali í LOTR Fan Club magazine frá ýmsu sem gerist í ROTK myndinni. Flest allt mjög jákvætt. Sjá hér

Orðrómar at May 18, 2003 02:42:37 af Vefstjóri

Mikið er nú rætt á netinu um hvernig verði með sögubreytingar í þriðju myndinni. Í The Two Towers var nokkuð um kaldar gusur á við Álfa í Helm's Deep, platdauða Aragorns og freistingu Faramírs.
Það er einkum tvennt sem varðar Sauron annars vegar og Sarúman hins vegar. Þið getið lesið um þessa orðróma á ROTK-síðunni og á TORN var einmitt verið að blása lífi í bæði Sauron og Sarúman breytinguna.

Einnig eru menn órólegir yfir því að það sé einfaldlega of mikið eftir til þess að geta komið almennilega fyrir. Það er vissulega mikið sem eftir á að gerast en athugið samt að þriðja bókin er styst og ekki verður eytt jafn miklu púðri í hluti eins og austurför Róhansmanna, göngu Frodo og Sam, heimferð o.s.frv. Ég held maður verði bara að hafa trú á Peter Jackson sem segir að Return of the King eigi eftir að verða besta mynd þríleiksins.

ROTK at May 17, 2003 22:28:29 af Vefstjóri

Jæja, það hlaut að koma að því. Tuttugu og fimm ljósmyndir úr Return of the King, margar hverjar býsna athyglisverðar, eru komnar á Lord of the Rings.Net>/a>.

Hér er líka smá myndskeið sem að mér skilst komi frá ROTK tölvuleiknum. Það sýnir m.a. Gandalf og Pippin í Minas Tirith.
Sjá hér


Samkvæmt heimildarmanni þá virðist sem svo að New Line ætli að fresta trailernum fram í September. Ástæðan er víst sú að það er engin ástæða að fara kynna myndina nú, nægur tími verður til þess þegar nær dregur. En það verður náttúrulega sýnishorn á DVD útgáfunni í ágúst.

Ég rakst á spennandi tímarit í Eymundsson í gær. Þar var viðtal við John Rhys Davies (áður en TTT var frumsýnd) þar sem JRD nefnir senu með Gimla og Legolasi þar sem þeir ræða um hvar hafi unnið Orka-keppnina. Frábært að þessi sena skuli hafa verið tekin upp og vonandi verður hún í lengri útgáfu TTT.

DVD upplýsingar at May 15, 2003 23:13:01 af Vefstjóri

Jæja, 43 mínútna lengri útgáfa The Two Towers hefur víst endanlega verið staðfest. Það ruglaði menn í ríminu þegar lordoftherings.net sagði útgáfuna vera 35 mín. lengri en það hefur víst verið villa og síðan segir nú um 43 mín. útgáfu að ræða, sem er náttúrulega frábært.

Lord of the Rings.Net er líka núna með góða sérsíðu um komandi DVD útgáfur þótt upplýsingar um lengri útgáfuna er enn af skornum skammti. Þar kemur fram hvaða heimildarmyndskeið eru á disknum og þar kom líka fram að stuttmynd sem Sean Astin (Sam) gerði á meðan tökum á LOTR stóðu fyrir, verði á DVD disknum. Sjá hér

Orðrómur stendur nú yfir að líkt og í fyrra verði sérstök gjafaútgáfa einnig til sölu sem inniheldur auk 4-diska útgáfunnar, auka DVD disk sem fjallar eingöngu um gerð Golum.

Ný mynd at May 7, 2003 02:51:28 af Vefstjóri

Ákvað að breyta aðeins til og skipta um forsíðu mynd. Var satt að segja aldrei ánægður með hvernig þetta var, hvorki myndina né titilinn en er mjög sáttur núna með útlit forsíðunnar.


En það er því miður ósköp lítið að frétta. Bara ekkert merkilegt að gerast.

DVD síða The Two Towers at May 5, 2003 17:08:14 af Vefstjóri

Jæja, ég komst loksins í það að gera síðu um DVD útgáfur The Two Towers.

Hún er reyndar ekkert mjög merkileg þar sem að ágúst útgáfan er eiginlega bara alveg eins og ágúst útgáfa FOTR.
Og lítið er vitað um nóvember útgáfuna. Í sambandi við það mætti líka nefna að þrátt fyrir að Peter Jackson hafi sagt í viðtali að lengri útgáfan yrði 43 mín. lengri þá stendur á lordoftherings.net að lengri útgáfan sé 35 mín lengri. Við vonum náttúrulega að fyrri talan sé rétt. DVD útgáfur TTT

Svo virðist sem að við fáum ekki Return of the King-trailer í maí eins og spáð hafði verið. Vonandi verður það í sumar.

Hulstrin á DVD útgáfunum at Apr 29, 2003 15:45:41 af Vefstjóri

Hulstur lengri útgáfu The Two Towers sem væntanleg er í nóvember er komið í ljós og er eins og búast mátti við í sama stíl og hulstur lengri útgáfu FOTR. Sjá hér


Hulstur ágúst-útgáfunnar lítur svona út. Sjá hér


Á laugardaginn kemst ég í það að smíða sér síðu um DVD útgáfurnar og það sem vitað er um þær. Ég væri búinn að því fyrr ef ég hefði bara aðgang að tölvu minni dags daglega sem ég hef ekki um þessar mundir. En það breytist fljótlega.

DVD fréttir at Apr 22, 2003 01:14:53 af Vefstjóri

Mynd af hulstri komandi DVD disks (26. ágúst). Sjá hér

Myndir af valblöðum DVD disksins. Þar má meðal annars sjá aukaefni ágúst-disksins sem er mjög svipað og aukaefni FOTR disksins í fyrra.Sjá hér

Um leið og ég get bý ég til síðu um DVD útgáfur TTT.

Fréttir farnar í safn at Apr 20, 2003 20:56:15 af Vefstjóri

Allar fréttir síðasta árs hafa nú verið settar á sér síðu eins og þið sjáið hér til hliðar. Það var orðið of mikið af texta á forsíðunni.

Útgáfudagar staðfestir at Apr 20, 2003 17:58:48 af Vefstjóri

Tveggja diska útgáfa The Two Towers sem inniheldur myndina eins og hún var í bíó ásamt einhverju smá aukaefni kemur út á DVD og vídeó, 26. ágúst. Einnig er á DVD disknum sýnishorn úr Return of the King.

Lengri útgáfa myndarinnar sem verður 43 mínútum lengri ásamt mjög miklu aukaefni (sennilega 4 diskar) kemur út á DVD, 18. nóvember.

Athugið að þessir útgáfudagar miðast við Bandaríkin en ekki er ljóst hvernig verður hér heima.

Ég mun bráðlega smíða sér síðu um DVD útgáfur þessar en á meðan getið þið skoðað auglýsingu þar sem þið sjáið hvernig DVD hulstrið lítur út. Sjá hér


Dagatalið hefur svo verið uppfært.

Gleðitíðindi at Apr 11, 2003 16:49:24 af Vefstjóri

Vil fyrst benda ykkur á að ég er kominn með nýtt netfang: ratatoskur@simnet.is og er því búinn að breyta "Hafðu samband" -tenglinum. Bara minna fólk á þetta ef þið skylduð hafa gamla netfangið skrifað niður einhvers staðar.

Nú fréttir dagsins eru þær að Peter Jackson sagði í viðtali að lengri útgáfa The Two Towers verði 43 mínútum lengri en bíóútgáfan. Þetta hljómar vissulega mjög vel og ljóst er að mikið af nýjum senum verða beint úr bókinni.


ROTK-síða hefur verið lítillega uppfærð.

Viggo á Íslandi at Apr 9, 2003 03:16:29 af Vefstjóri

Grein og ljósmyndir um dvöl Viggo Mortensens á Íslandi. Sjá hér

Annars er lítið að frétta.
ROTK trailer sennilega í maí og DVD útgáfa TTT í ágúst (ekki staðfest enn samt)

Falsaðar síður at Apr 2, 2003 22:37:54 af Vefstjóri

Þessar síðustu tvær síður ROTK handritsins voru eins og við mátti búast falsaðar og liður í aprílgabbi.
Þannig að þar fór það.

Aprílgabb TORN at Apr 2, 2003 00:07:13 af Vefstjóri

Ef ég hefði bara fattað það í morgun hefði ég áreiðanlega hrekkt ykkur með einhverjum LOTR hryllingi en þið getið í staðinn lesið um hvernig TheOneRing.Net reyndi að gabba lesendur sína í dag. Sjá hér

Ég las það í Fréttablaðinu að Viggo Mortensen (Aragorn) væri staddur hér á landi núna í fríi. Býr víst á hóteli í miðbænum.

Viðtal við Peter Jackson þar sem hann talar um King Kong. Sjá hér

Frá manni sem kallar sig Leonides á TolkienOnline koma tvær síðustu síður ROTK handritsins (gömul útgáfa skv. honum). Með öðrum orðum, endir myndarinnar. Eða svo segir hann. Leonides þessi er vissulega traust heimild en hann getur einnig verið stríðinn og dagsetningin sem hann kom með þetta á, er einnig grunsamleg. Hljómar vel. Sjá hér

Peter Jackson ætlar að leikstýra King Kong at Mar 31, 2003 01:44:12 af Vefstjóri

Ljóst er hvert næsta verkefni Peter Jackson verður en í fréttatilkynningu frá Universal kom fram að hann muni leikstýra og skrifa handritið ásamt konu sinni Fran Walsh og Philippu Boyens (sem öll skrifuðu handritið að LOTR).
Hafist verður handa eftir að PJ hefur lokið vinnu sinni á ROTK.

Peter hafði áður sagt að eftir ROTK myndi hann taka sér smá frí og að næsta verkefni hans yrðu í smærri kantinum.

En ljóst er að svo verður ekki og verður spennandi að fylgjast með þessu en þetta hefur víst lengi verið draumur hans síðan hann sá upprunalegu útgáfuna af King Kong (1933) þegar hann var 9 ára.
Peter var meira að segja farinn að undirbúa gerð myndarinnar ásamt Universal fyrir tíma LOTR, þegar Universal hætti við.

Sjá meira hér

ROTK forsýnd mánuði fyrir frumsýningu ? at Mar 26, 2003 23:32:56 af Vefstjóri

Áform eru uppi um að forsýna muni Return of the King mánuði fyrr en venjulega fyrir gagnrýnendur og fjölmiðla. Ástæðan er sú að Óskarinn verður á næsta ári mánuði fyrr en venjulega og til að myndin verði komin með nægilegt umtal og gagnrýni finnst New Line þetta nauðsynlegt.
Önnur kvikmyndastúdíó eru að spá í að gera það sama.

Óskar at Mar 24, 2003 16:36:33 af Vefstjóri

Það hefði verið spáð að The Two Towers myndi ekki fá meira en 1-2 verðlaun á Óskarshátíðinni og þannig fór það. Myndin fékk verðlaun fyrir bestu tæknibrellur sem var talið sjálfsagt og svo kom það skemmtilega á óvart að myndin fékk verðlaun fyrir bestu hljóðvinnslu (sound editing) en FOTR var ekki einu sinni tilnefnd í þessum flokki í fyrra.

Chicago var valin besta myndin og Roman Polanski besti leikstjórinn.

Ef litið er á alla Lord of the Rings trílógíuna sem eina mynd þá er ljóst að verkið hefur fengið 14 tilnefningar til Óskarsverðlauna og fengið 5 verðlaun úr hverjum flokki (+ ein auka fyrir tæknibrellur annað árið í röð) sem er náttúrulega frábært og vonandi bætir verkið við sig tilnefningum og verðlaunum á næsta ári.

Því hefur verið spáð að á næsta ári muni Akademían verðlauna Return of the King ríkulega sem fulltrúa trílógíunnar allrar trílógíunna og margir halda því jafnframt fram að myndin eigi eftir að fá Óskarinn sem besta mynd. Við vonum það besta.

...
Gott viðtal við Peter Jackson þar sem hann er spurður út í Óskarinn og margt fleira. En sérstaklega athyglisvert er að hlusta á hvað frægum leikstjórum á við Ron Howard, Martin Scorsese og Stephen Daldry finnst um Peter Jackson og LOTR trílógíuna. Sjá hér (krefst RealPlayer)

...
Fín síða þar sem hægt er að hlusta á stuttar hljóðskrár úr The Two Towers. Sjá hér

...
Peter Jackson sagði að eftir nokkrar vikur myndu hefjast viðbótartökur fyrir Return of the King þar sem leikarar, framleiðendur o.fl. halda til Nýja Sjálands til að bæta við og laga ýmsar senur fyrir þriðju myndina.

Óskar í nótt at Mar 23, 2003 14:07:20 af Vefstjóri

Ekki missa af Óskarshátíðinni í nótt en hún hefst um kl. 1 að íslenskum tíma og er sýnd á Stöð 2.
The Two Towers er tilnefnd til 6 verðlauna.

Beregond og fleira at Mar 20, 2003 23:29:33 af Vefstjóri

Samkvæmt vefsíðu hins nýsjálenska leikara Ian Hughes þá fer hann með hlutverk Beregonds í Return of the King.
Það kemur mjög á óvart að þetta skuli ekki hafa komið fram fyrr en nú, en um þrjú ár eru liðin síðan tökur voru á myndinni.
Það var jafnvel talið að Bergond væri ekki í myndinni vegna þess að ekkert hafði heyrst um hver léki hann. Sjá vef Ian Hughes ásamt mynd

Við vonum náttúrulega að þetta sé satt og rétt.

...
Peter Jackson segist ekki ætla að mæta á Óskarshátíðina til að lenda ekki eftir á við vinnu sína á þriðju myndinni en hana er verið að klippa núna. Þetta kemur ekkert á óvart svo sem þar sem að Peter Jackson hafi áður sagt að hann ætlaði ekki að mæta á neinar hátíðir þetta árið.
Einnig er óvíst hvort Cate Blanchett mæti.

...
Fyrsti trailer fyrir Return of the King er væntanlegur í maí.

...
Athugið að þar sem að ég verð ekki heima hjá mér næstu daga þá get ég ekki uppfært neinar aukasíður vefsins heldur bara fréttasíðuna.

ROTK-síða uppfærð at Mar 13, 2003 22:43:33 af Vefstjóri

Return of the King-síðan hefur verið uppfærð með nýjum upplýsingum varðandi Sauron og Denethor.

Einnig ákvað ég að færa sögubreytingar ROTK af sögubreytingasíðunni yfir á ROTK síðuna svo það verði auðveldara fyrir mig að uppfæra. Þannig að frá og með nú þarf bara að fara á ROTK síðuna til að fá nýjustu upplýsingar og orðróma.


10 dagar í Óskar...

Um myndskeiðin at Mar 11, 2003 14:36:11 af Vefstjóri

Eftir að hafa skoðað dálítið af myndskeiðunum sem eru í greininni sem ég benti á fyrir neðan ætla ég að benda ykkur sérstaklega á nokkur mjög áhugaverð:

Motion capture comparison; hér er greinilega hægt að sjá hversu mikinn hlut Andy Serkis átti í Gollum
Gollum goofs; smá fyndni
Early battle; gömul útgáfa Massive hugbúnaðarins þar sem sá galli var til staðar að nokkrir tölvugerðu kallarnir tóku stundum upp á því að flýja vígvöllinn.

Ég er samt ekki búinn að skoða öll myndskeiðin þannig að það er ábyggilega margt fleira þarna áhugavert. Svo ætti þetta allt saman líka að birtast á DVD útgáfu TTT.

Gerð tæknibrellna í TTT at Mar 11, 2003 14:06:10 af Vefstjóri

Frábær grein sem fjallar um hvernig Gollum og Enturnir voru gerðir og einnig hvernig Massive hugbúnaðurinn virkar. Greinin er með fjölda áhugaverðra myndskeiða. Sjá hér

Ýmsar greinar og viðtöl at Mar 10, 2003 23:19:40 af Vefstjóri

Grein um ýmsar tæknibrellur í TTT.Sjá hér

Lýsing á trailer fyrir ROTK sem væntanlegur er. Vafasöm heimild. Sjá hér

Viðtal við Billy Boyd þar sem hann talar um ROTK.Sjá hér

Fréttir um kvikmyndatónlist FOTR og TTT. Sjá hér

TTT: Extended Cut at Mar 8, 2003 14:09:04 af Vefstjóri

Brot úr viðtali við Peter Jackson þar sem hann segir aðeins frá hvað við eigum von á í lengri útgáfu myndarinnar. Nefnir hann þar að flestar nýjar senur séu með Entunum og Gollum.

Einnig kom fram í viðtali við tæknimann WETA að árás Entanna verði eitthvað lengri í TTT:Extended Cut.

Upplýsingar um ROTK at Mar 7, 2003 14:58:19 af Vefstjóri

Einhver sniðugur tók sig til og smíðaði trailer fyrir The Hobbit með því að blanda saman brotum úr Fellowship of the Ring og Reign of Fire. Mjög athyglisvert. Sjá hér


Loksins smá orðrómar! Notandi sem kallar sig Leonides er kominn með smá upplýsingar varðandi söguþráð Return of the King. Ég bæti þessu fljótlega við ROTK síðuna og Sögubreytingasíðuna en þið getið lesið þetta hér á meðan. Sjá hér

Hobbit ? at Mar 4, 2003 00:28:09 af Vefstjóri

Áhugavert viðtal við Ian McKellen þar sem hann talar meðal annars um kvikmyndun Hobbitans. Sjá hér

Fréttir frá Peter Jackson at Feb 28, 2003 02:20:33 af Vefstjóri

Harry Knowles (vefstjóri AICN sendi Peter Jackson tölvupóst fyrir stuttu og spurðist fyrir um mögulegan ROTK trailer o.fl.

Peter Jackson svaraði honum að fyrsti ROTK trailerinn kæmi væntanlega ekki fyrr en í maí eða júní. Ástæðan fyrir engu sýnishorni aftan við TTT sagði hann að væri vegna erfiðisvinnu við lengri útgáfu The Two Towers og einfaldlega enginn tími til þess að útbúa trailer.
Sem dæmi nefndi hann að FOTR: Extended Cut var með 35 auka tæknibrelluatriði en The Two Towers: Extended Cut verði með 150 auka tæknibrelluatriði. WETA er að vinna á fullu við þessar auka tæknibrellur.

Sjá bréf hér

Aðsókn at Feb 27, 2003 21:43:01 af Vefstjóri

Ljóst er að The Two Towers er aðsóknarmesta bíómynd á Íslandi en um 90.800 hafa séð myndina. Myndin sló fyrra metið sem Titanic átti en það var um 88.000.

87.693 manns sáu Fellowship of the Ring.


Nokkuð fróðlegt viðtal við Peter Jackson. Sjá hér

Hitt & þetta at Feb 26, 2003 23:13:02 af Vefstjóri

Þess skal geta að myndirnar sem tilnefndar voru til Bafta verðlauna í flokknum "besta mynd að mati fólksins" eru aðsóknarmestu myndir Bretlands og því engin nefnd sem ákvað myndirnar. Almenningur valdi The Two Towers sem er auðvitað fín viðurkenning.
Fyrri frétt mín um þetta var dálítið klaufalega orðuð og byggð á misskilningi frá minni hálfu.
(Takk Sigurður)

Fleiri virðist nú benda til þess að ekkert ROTK sýnishorn verði í lok TTT.
Hins vegar er sá orðrómur kominn á kreik að í annarri viku mars-mánaðar ætli New Line að setja Return of the King trailer í bíóhúsin.

Ruglið hjá Tolkien fjölskyldunni at Feb 24, 2003 04:00:39 af Vefstjóri

Athyglisverð grein sem segir m.a. frá því hvernig Simon Tolkien (barnabarn J.R.R.) og faðir hans Cristopher Tolkien tala ekki saman vegna ágreinings m.a. vegna kvikmynda Peters Jackson. Sjá hér

The Two Towers með 3 verðlaun at Feb 24, 2003 03:52:51 af Vefstjóri

The Two Towers gekk sæmilega á BAFTA-hátíðinni og fékk verðlaun fyrir búningahönnun og tæknibrellur.

Myndin var svo valin besta mynd að mati fólksins, þ.e. símakosning fór fram.
En þar sem að myndir eins og Scooby Doo og Austin Powers voru aðrar myndir sem tilnefndar voru í þessum flokki þá veit ég ekki hversu merkileg þessi verðlaun eru.

BAFTA ekki í beinni at Feb 23, 2003 22:03:51 af Vefstjóri

Ég biðst afsökunar á því á þeim röngu upplýsingum að BAFTA verðlaunin hafi verið í beinni útsendingu á RÚV en afhendingin er víst búin og upptaka frá henni verður kl. 23.45.

BAFTA verðlaunin í kvöld at Feb 23, 2003 16:12:40 af Vefstjóri

Ekki missa af afhendingu verðlauna bresku kvikmyndaakademíunnar (BAFTA) sem verður í beinni útsendingu kl. 23.45 á RÚV í kvöld.
The Two Towers er tilnefnd til 9 verðlauna, þar á meðal er "Besta mynd". Listi yfir allar tilnefningar

Þess má geta að Fellowship of the Ring fékk verðlaun fyrir bestu mynd og bestu leikstjórn á síðustu hátíð.


Ekki lítur það vel út varðandi mögulegan ROTK trailer í lok TTT. Þó að myndinni hafi vissulega gengið mjög vel í miðasölu og hafi slegið met FOTR þá fer aðsókn mjög minnkandi núna þannig að það líti út fyrir að mjög fá bíóhús verði enn með myndina í sýningu þegar sýna á trailerinn.

Og vegna reglu sem Óskarsakademían setur þá má ekki breyta filmu á kvikmynd sem tilnefnd er, fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu ef myndin á ekki að missa tilnefningarnar sínar.

Þeir sem þekkja til kvikmyndaiðnaðarins segja því litlar líkur á trailer fyrir aftan TTT.

Gollum at Feb 18, 2003 23:31:03 af Vefstjóri

Fín grein sem fjallar um Gollum og aðrar tölvugerðar persónur þar sem spurningar eru settar fram um hvort Akademían muni einhvern tímann viðurkenna mikilvægi leikarans á bak við tölvugerðu persónuna. Sjá hér

Einni eða tveimur myndum hefur verið bætt við á síðuna: Útlit kvikmyndanna

Síða um klipptar senur úr The Two Towers er loksins til: Klipptar senur frá The Two Towers
Athugið að lítið er vitað um hvaða senur koma til með að vera í lengri útgáfunni en það skýrist á næstu mánuðum. Það er alla vega vitað að lengri útgáfan verði um hálf tíma lengri.

Lítið fréttnæmt hefur verið um þessar mundir eins og þið hafið tekið eftir og fátt framundan sem ég veit um. Það helsta er að í mars ætti að öllum líkindum sérstakt sýnishorn úr Return of the King að vera sett í lok The Two Towers myndarinnar í bíóhúsum um allan heim.
Og svo er náttúrulega Óskarsverðlaunahátíðin 23. mars, þó ég sé reyndar vonlítill um einhvern árangur TTT.

Óskar at Feb 12, 2003 18:26:59 af Vefstjóri

Áhugaverð grein þar sem fjallað er um mögulegar ástæður þess að TTT fékk ekki jafn margar Óskarstilnefningar og FOTR. Sjá hér

Tilnefningar til Óskarsverðlauna at Feb 11, 2003 15:21:55 af Vefstjóri

Allar tilnefningar eru komnar í ljós og útkoman er viðunandi.

The Two Towers fékk eftirfarandi tilnefningar: Besta mynd, listræn stjórnun, hljóð, hljóðvinnsla, tæknibrellur og klipping.

6 tilnefningar sem sagt, en FOTR fékk 13 í fyrra.

Aðalvonbrigðin eru náttúrulega að Peter Jackson fær ekki tilnefningu sem leikstjóri og Andrew Lesnie fær ekki tilnefningu fyrir kvikmyndatöku.

Og manni finnst hálf fáránlegt þegar maður hugsar um verðlaunin sem FOTR fékk í fyrra: Besta förðun, besta kvikmyndataka, bestu tæknibrellur og besta tónlist.
Fyrir utan tæknibrellutilnefninguna þá fær TTT engar tilnefningar fyrir flokka sem FOTR vann í fyrra. Og það þrátt fyrir að nákvæmlega sama fólkið vann við myndirnar tvær og þær voru meira að segja teknar upp í einu.

En það er greinilega litið svo á að það sé þegar búið að verðlauna þetta fólk og engin ástæða til þess að gera það aftur.


Af þessum tilnefningum sem myndin fékk, finnst mér líklegt að myndin gæti fengið 2-3. Verðlaun fyrir tæknibrellur finnst mér klárt mál og svo á myndin möguleika fyrir hljóð, hljóðvinnslu, listræna stjórnun og klippingu.
Myndin á enga möguleika í að verða valin Besta mynd hinsvegar. Því miður.
Tilnefningin er hins vegar gott mál og gæti líklega aukið miðasölu eitthvað.
Myndin Chicago fékk alls 13 tilnefningar, jafn margar of FOTR í fyrra. Chicago er talin líklegust til þess að verða valin Besta myndin.

Það er hinsvegar talað um að næsta ár gæti orðið Return of the King hliðhollt. Það er jafnvel talið að myndin gæti unnið, fyrir hönd allrar trílógíunnar.

Empire kvikmyndaverðlaun at Feb 11, 2003 03:13:39 af Vefstjóri

Ég gleymdi víst að segja frá einni verðlaunahátíð sem var á dögunum: The
Empire Awards (Verðlaun Empire-kvikmyndatímaritsins)

The Lord Of The Rings: The Two Towers var valin Besta myndin

En því miður þá voru þetta einu verðlaunin þrátt fyrir þónokkrar tilnefningar. Sjá meira hér


Ekki svo gleyma að tilnefningar til Óskarsverðlauna koma í ljós á morgun en það verður spennandi að sjá hversu margar The Two Towers fær.
Við vonum það besta.

Ég ætla að gera smá spá að gamni mínu.
Ég spái að TTT fái eftirtaldar tilnefningar:
Besta mynd, leikstjóri, listræn stjórnun, búningahönnun, klipping, kvikmyndataka, hljóð og besta lag (Gollum's song).


Athugið að tilnefningar fyrir bestu hljóðvinnslu, tæknibrellur og förðun eru þegar komnar í ljós og var TTT tilnefnd fyrir bestu hljóðvinnslu og tæknibrellur.

Arwen við Helm's Deep ? at Feb 10, 2003 17:26:57 af Vefstjóri

Þegar Helm's Deep atriðið var tekið upp var búið að skrifa handritið þannig að Arwen væri á staðnum og myndi meira að segja berjast við hlið Aragorns. Sem betur fer var nú hætt við að hafa hlutverk Arwenar þannig en engu að síður var mikið efni tekið upp með Liv Tyler við Helm's Deep. Ljóst er að ef horft er á lokaatriði Helm's Deep þá er hægt að finna þar veru í baksýn á hvítum hesti með dökkt hár og álfaeyru í rauðum búning. Eftir að hafa komist yfir eintak af atriðinu þá finnst mér alveg greinilegt að hér sé Arwen á ferð en tæknimenn hafa greinilega látið þetta fram hjá sér fara. Sjá myndir hér

Uppfærslur á vef at Feb 9, 2003 17:45:32 af Vefstjóri

TTT-síðan hefur verið talsvert uppfærð og er hún orðin mjög lík FOTR síðunni. Ég bætti líka við mynd sem sýnir aukahlutverk Peter Jackson í myndinni.

Ég hef einnig bætt við aðeins af myndum á síðunni sem heitir Útlit kvikmyndanna og er þar nú m.a. mynd af Treebeard, Gollum, Nazgúla á fáki sínum og Balroggnum.


Eins og komið hefur kannski fram áður þá ætla ég að hætta með myndasöfnin mín og eins og segir á "Myndasöfn og trailerar" þá bendi ég fólki á mjög góð myndagallerí á Council of Elrond vefnum. Sjá hér

Þar eru stöðugt nýjar myndir að bætast við en ég mun samt halda áfram að benda fólki á þegar einhverjar merkilega myndir berast á Netið.

Listi yfir klipptar senur úr The Two Towers er á næsta leyti.

Myndir at Feb 8, 2003 17:08:39 af Vefstjóri

LordoftheRings.Net er með nokkrar fínar skjáborðsmyndir úr The Two Towers. Sérstaklega eru flottar myndirnar af Gollum og Entunum. Sjá hér

CouncilOfElrond.Com er með fullt af myndum teknar beint úr The Two Towers. Sjá hér

Um mögulega kvikmyndun Hobbitans at Feb 4, 2003 22:09:39 af Vefstjóri

Peter Jackson sagði í nýlegu viðtali að ef hann yrði beðinn um að gera Hobbitann þá myndi hann taka málið til mikillar umhugsunar.
En PJ hefur yfirleitt svarað þessari spurningu þannig að hann myndi sennilega engan veginn nenna því og væri þess í stað spenntur að fá að mæta í bíó og sjá myndina sem venjulegur áhorfandi án þess að hafa komið nærri myndinni á nokkurn hátt.

Við vonum náttúrulega að Peter Jackson taki kvikmyndina að sér enda væri það langbest að fá söguna kvikmyndaða í sama stíl og Lord of the Rings.

Ýmsar fréttir at Feb 2, 2003 23:46:59 af Vefstjóri

Ég fann frábært viðtal við Andy Serkis, manninn á bak við Gollum. Andy sá algerlega um rödd Gollum í kvikmyndinni, engin hljóðtækni á bak við hana og það var mjög gaman að heyra Andy Serkis breyta rödd sinni allt í einu í rödd Gollum í þættinum. Mjög fyndið þegar stjórnendur þáttarins báðu svo Andy að segja umferðarfréttirnar með rödd Gollums. Sjá hér (krefst RealPlayer)


Margir muna eftir því í fyrra þegar Peter Jackson ákvað sem smá gjöf til aðdáenda kvikmyndanna að setja 4 mínútna sýnishorn úr The Two Towers aftan við Fellowship of the Ring myndina í mars þegar sýningarskeið myndarinnar var að fara renna út.
Aðdáendur vona náttúrulega að það sama verði gert hér og að við fáum að sjá sýnishorn úr Return of the King og skv. nýlegri en óstaðfestri frétt frá frekar vafasömum miðli (Comingsoon.Net) þá gerist það kannski.


Samkvæmt aðilanum sem sendi inn fréttina þá nefndi hann lista yfir atriði sem eiga að vera í þessu sýnishorni og getið þið lesið um þau hér. Sjá hér


Ég las skemmtilega frétt frá konu sem sagði þá sögu að maðurinn hennar sem er nánast alveg heyrnarlaus hafði í fyrsta skipti getað lesið varir tölvugerðrar persónu í kvikmynd (Gollum) en það hefur alltaf farið í taugarnar á honum þar sem tæknibrelluhönnuðir hafa ekki nennt að fara spá í það.
Skemmtilegt dæmi um þá gífurlegu vinnu sem farið hefur í smáatriði við vinnu þessarar kvikmyndatrílógíu. Nánar hér


The Two Towers er komin fram úr The Fellowship of the Ring hvað varðar miðasölu í Bandaríkjunum. Þar sem myndin á eflaust nokkrar vikur eftir þá er ljóst að heildarmiðasala á eftir að verða mun meiri en fyrri myndin.

Arda University, hin frábæra Tolkien ensýklópedía á netinu hefur útbúið skemmtilegar sérsíður um báðar kvikmyndirnar. Bæði innihalda síðurnar upplýsingar um helstu sögubreytingar en einnig skemmtilegar uppgötvanir.
FOTR og TTT




ROTK síða tilbúin at Jan 30, 2003 02:23:07 af Vefstjóri

Jæja ég er tilbúinn með sérsíðu fyrir Return of the King. Enn sem komið er, er ekki mikið af upplýsingum um myndina enda er ekki mikið vitað um hana. Sögubreytingasíðan er einnig lítillega uppfærð hvað varðar ROTK breytingar. Það munu svo bætast við upplýsingar á þessar tvær síður þegar eitthvað nýtt fréttist eða ég man eftir einhverju eða ég man eftir einhverju sem ég var búinn að gleyma.

Næst á dagskrá hjá mér er að setja saman síðu varðandi klipptar senur úr The Two Towers en mikið af upplýsingum eru nú komnar varðandi það efni.

Hitt & þetta at Jan 29, 2003 23:54:55 af Vefstjóri

The Two Towers hefur fengið viðurkenningu Rotten Tomatoes sem sú mynd sem hefur fengið besta gagnrýni á árinu en myndin endaði með 97 % jákvæða gagnrýni.

Tilnefningar til Óskarsverðlauna varðandi förðun eru komnar fram og athygli vekur að sneitt er framhjá myndum eins og The Two Towers, Men in Black 2 og The Hours. Aðeins tvær myndir eru tilnefndar: Frida og The Time Machine.

Athugið að uppfærsla er væntanleg í nótt...

TTT tilnefnd til Bafta-verðlauna at Jan 28, 2003 03:20:35 af Vefstjóri

The Two Towers hefur fengið 9 tilnefningar hjá bresku kvikmynda-akademíunni.
Tilnefningarnar eru: Besta mynd, leikstjórn, kvikmyndataka, listræn stjórnun, búningahönnun, klipping, hljóð, tæknibrellur og förðun & hárgreiðsla.

FOTR fékk 12 tilnefningar í fyrra og vann 5, þar af besta mynd.

Verðlaunaafhendingin er 23 febrúar.


Mjög góð síða sem inniheldur nokkurn veginn allar þær ljósmyndir sem komnar eru út á Internetið úr Return of the King. Sjá hér

Ég hef einnig ákveðið að hætta við að gera myndasafn fyrir Return of the King eins og ég hef gert með hinar myndirnar. Ástæðan er sú að það er einfaldlega allt of mikið vesen fyrir mig auk þess sem myndirnar missa strax gildi sitt þegar kvikmyndin er svo loks frumsýnd. Ég mun hins vegar eflaust einhvern tímann útbúa minna myndasafn einhvern tímann sem inniheldur gæða ljósmyndir úr myndunum þremur sem inniheldur myndir sem gaman er að sjá, t.d. úr senum sem enn aldrei hafa sést o.s.frv. eða einfaldlega flottar myndir.

Ég mun þess í stað halda því áfram sem ég hef verið að gera, vísa á viðkomandi vefsíðu sem inniheldur nýjar ljósmyndir.

Ég hef uppfært flestar síður sem tengjast kvikmyndunum hér á vefnum þar sem ég var aðallega að laga ýmsar staðreyndavillur og breyta orðalagi með tilliti til þess að önnur myndin hefur verið frumsýnd. Skiptir kannski ekki máli fyrir þá sem fylgst hafa lengi með en skiptir auðvitað máli fyrir nýja gesti.
Ætlunin er einnig að myndskreyta "Útlit kvikmyndanna" aðeins betur með ljósmyndum af Gollum, Treebeard, Balroggnum og kannski skipta út nokkrum myndum og setja nýjar.

Ég uppfærði sögubreytingasíðuna talsvert mikið en þó aðallega með tilliti til The Two Towers. Það skiptir kannski ekki máli fyrir flesta þar sem þeir hafa séð myndina en það gengur auðvitað ekki að á vefnum séu úreltar og kolrangar upplýsingar.
Efni um ROTK var aðeins uppfært en ég er nú að vinna í að koma skipulagi á ROTK síðuna og einnig varðandi sögubreytingar.
Vonandi verður það orðið klárt á morgun.

Uppfærsla at Jan 26, 2003 23:36:33 af Vefstjóri

Á lista IMDB (Internet Movie Database), vinsælustu kvikmyndasíðu netsins yfir 250 bestu myndir allra tíma er Lord of the Rings: The Two Towers skyndilega komin upp í annað sætið en margir hafa greinilega verið að gefa henni góða einkunn nýlega. Sjá hér

Eins og er, er samt voða lítið annað að frétta en ég er að vinna í því að fara yfir allt efni vefsins upp á nýtt og setja sumt nýtt upp eins og t.d. síðu um ROTK, DVD útgáfur TTTT o.fl. Ég verð við það í kvöld og á morgun.
Biðst velvirðingar á seinagangi eins og er...

Engin verðlaun at Jan 20, 2003 03:56:30 af Vefstjóri

The Two Towers fékk engin verðlaun á Golden Globe verðlaunahátíðinni í gær.
The Hours var valin besta myndin í drama-flokki.

Uppfærsla at Jan 20, 2003 00:26:17 af Vefstjóri

Fínar myndir úr Return of the King. Sjá hér

Ýmislegt bendir til þess að The Two Towers verði gefin út á vídeó og DVD í júlí. Special Extended útgáfan yrði þá sennilega í Október/Nóvember.

IGN vefmiðilinn hefur útbúið myndskreyttan lista sem fjallar um þær senur sem vitað er að klipptar voru út úr The Two Towers myndinni og líkur eru á að komi í Special Extended Edition. Sjá hér
-Ég fer sjálfur að útbúa lista fljótlega.

IGN hefur einnig útbúið lista yfir 101 athyglisverð atriði í The Two Towers sem kannski er gaman að hafa í huga þegar maður sér myndina í síðasta skipti í bíó bráðlega. Sjá hér

The-Trades.Com hefur sett trailerinn fyrir The Two Towers í 15. sæti yfir bestu trailera síðasta árs. Sjá hér

Nokkrar Óskarstilnefningar hafa verið settar fram: Verðlaun fyrir tæknibrellur og Verðlaun fyrir hljóðvinnslu. The Two Towers er tilnefnd til beggja verðlauna.
Enn eru getgátur um hvort Andy Serkis gæti orðið tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt sem Gollum.
Þann 11. febrúar kemur í ljós hvort The Two Towers verði tilnefnd til fleiri verðlauna.

Á opinberri vefsíðu LOTR má nú finna frábært nýtt myndskeið sem fjallar um hvernig Gollum varð til. Sjá hér

Flott mynd af Aragorni og Legolasi úr ROTK. Sjá hér

The Two Towers vegnar vel í miðasölu og ætti að fara yfir 300 milljón dollara markið á morgun í Bandaríkjunum, þann 20. janúar. Fellowship of the Ring náði ekki því marki fyrr en í lok mars á síðasta ári.

Lítið hefur komið fram um trailer fyrir Return of the King en mjög líklegt er talið að svipað verði gert og í fyrra og trailer fyrir ROTK verði því settur strax á eftir TTT-myndinni þegar síðustu sýningar á myndinni verða í mars.

Athyglisvert viðtal við Richard Taylor þar sem hann talar um atriðið þegar Legolas fer upp á hest sinn á eftirminnilegan hátt í The Two Towers. Sjá hér

Á næstu dögum fer ég í það að búa til Return of the King síðu á vefnum, útbúa lista um klipptar senur úr TTT og ýmislegt fleira.


Golden Globe verðlaunahátíðin er svo að fara hefjast en ég ætla fylgjast með henni og vona að ekki verði litið framhjá Lord of the Rings enn eina ferðina.

Vefurinn kominn í gang á ný at Jan 19, 2003 01:52:32 af Vefstjóri

Ég biðst afsökunar á að hafa steingleymt að láta það koma fram hér á vefnum að ég væri að fara í tveggja vikna frí og því engin uppfærsla á meðan.
Ég var í útskriftarferð á Kanarí og gleymdi öllu um Lord of the Rings á meðan.

En nú er ég alla vega kominn aftur og búinn að missa af miklu sem ég þarf að fara í gegnum og því verður pottþétt risastór fréttabunki á morgun. Ábyggilega nóg af trailerfréttum, DVD-fréttum o.fl.

Golden Globe verðlaunin verða afhend á morgun og bein útsending verður á vegum Stöðvar 2 hér á landi. The Two Towers er tilnefnd sem besta mynd og Peter Jackson er tilnefndur fyrir besta leikstjóra.

 


Höfundarréttur © 2001 Ragnar Björnsson

 

 

 

Kvikmyndirnar

Lordoftherings.net
Vefur framleiðenda
The One Ring.net
Mjög góður fréttavefur
TolkienOnline.com
Góður kvikmyndavefur með eitt besta umræðusvæðið
Complete List of Film Changes

Listi yfir allar sögubreytingar
Quintessential Movie Shots
Ljósmyndum úr kvikmyndunum er raðað upp eftir köflum bókarinnar
Lord of the Rings Fan Club

Frábær klúbbur tengdur kvikmyndunum með góða netverslun

Bækurnar

Encyplopedia of Arda
Alfræðiorðabók um allt í ævintýraheimi Tolkiens
Greenbooks questions
Svör við spurningum sem öllum langar til að vita
Ardalambion
Lestu þér til um tungumálin í sögum Tolkiens
Rolozo Tolkien

Myndir frægra listamanna af atburðum í sögum Tolkiens

Shire Fellowship
Mjög góður alþjóðlegur umræðuvefur um Tolkien og allt sem tengist honum.