J.R.R. Tolkien

 

File written by Adobe Photoshop® 4.0John Ronald Reuel Tolkien fæddist 3 janúar árið 1892 í Bloemfontein í Suður-Afríku en fluttist snemma til Englands. Hann er talinn vera einn færasti málfræðingur enskrar tungu sem uppi hefur verið og gjörþekkti rætur málsins, engilsaxnesku, kelstnesku, latínu og íslensku.

Seinna var hann ráðinn prófessor við Oxford vegna hæfileika sinna á þessu sviði. Tolkien hafði mikinn áhuga á öllum fornalda- og miðaldasögnum, þar á meðal Arthúrssögnum, Bjólfskviðu, Tristanssögu, Íslendingasögum, Snorra-Eddu (sjá Tolkien & Eddan) og hinni finnsku Kalevala. Áhuginn var orðinn nokkuð mikill þegar hann ákvað að gamni sínu að semja ímynduð forn tungumál álfa, dverga og manna og byrjaði seinna að skapa heim þar sem Álfar, Dvergar og Menn töluðu þessi tungumál og sagði sögu þeirra. Tolkien gerði meira að segja ráð fyrir mállýskum og hvernig mál breytast þegar hann samdi þessi tungumál sín. Þegar börnin hans fjögur fóru að biðja hann um að semja reglulega handa sér sögu tók hann til minnispunkta sína og samdi í kringum þá ævintýri. Þannig varð Hobbitinn til (sjá Hobbitinn). Hann fór þá að leita að möguleiku þess að gefa þetta efni út, en útgefendum fannst það fráleitt, enginn myndi lesa það. Útgefandinn Stanley Unwin gerði þá tilraun og lét 10 ára son sinn lesa þennan Hobbita. Drengurinn varð heillaður af sögunni og kom Hobbitinn út 21. september árið 1937. Sagan seldist vel og fékk ýmis verðlaun fyrir. Hobbitinn hefur verið þýddur á 25 tungumál og hafa verið seld um 35 milljón eintök af honum.

Lesendur Hobbitans fóru seinna að senda bréf til Tolkiens og spurðu hvort þeir gætu ekki fengið að vita eitthvað meira um Hobbita. Einnig voru útgefendur líka mjög jákvæðir í garð framhalds. Tolkien byrjaði þá að semja Hringadróttinssögu (sjá Hringadróttinssaga) strax eftir að Hobbitinn kom út. Biðin varð þó löng. Verkið varð ekki tilbúið fyrr en árið 1949 og olli að hluta til seinni heimsstyrjöldin þessari löngu bið. Þegar Tolkien lét útgefendur fá verkið urðu menn ekki hrifnir. Þetta var að vísu framhald af Hobbitanum, en mikið alvarlegri og stórbrotnari saga. Útgefendur sem höfðu óskað eftir sögu fyrir börn spáðu ekki vel fyrir sölumöguleikum þessa fáránlega stóra verks. Raunin varð önnur. Nýlega var t.d. Hringadróttinssaga kosin bók aldarinnar í Bretlandi.

Þegar Tolkien dó árið 1973 lét hann eftir sig gífurlegt magn af sögnum sem áttu að gerast löngu fyrir tíma Hringadróttinssögu, alls voru þetta um 60 000 blaðsíður. Þetta efni hafði aldrei verið gefið út. Kom einnig í ljós að Tolkien var ekki með það á hreinu hvenær hann átti að hætta og var til dágóður bunki af ókláruðum sögum.

Cristopher Tolkien, sonur hans lét seinna gefa út Silmerilinn (sjá Silmerillinn) árið 1977 og Unfinished Tales úr þessum sögnum föður sins.

Ekki má svo gleyma The Father Christmas Letters en það voru bréf frá jólasveininum til barna Tolkiens sem hann skrifaði og myndskreytti fyrir börnin sín. Þó að bréfin fjalli um jólasveininn þá er spunnið inn álfasögum o.fl Sú bók hefur heldur ekki verið gefin út á íslensku, að ég held.

Á hverju ári fer breskt Tolkien-félag að grafreiti Tolkiens, syngur lag á Álfamáli og minnist eins mesta rithöfundar aldarinnar.

 

 

 

 

 

Heim


 Höfundarréttur © 2001 Ragnar Björnsson